Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 9

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 9
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 7 Í greininni segir: „Stuðningur við nýsköpun og rannsóknir hefur enn verið efldur, nú síðast með tvöföldun hámarksupphæða endurgreiðslu vegna rannsóknar- og þróunarverkefna fyrirtækja. Sömuleiðis er unnið að nýsköpunarstefnu fyrir Ísland sem er lykilatriði fyrir framtíð samfélagsins og fjöl- breyttari stoðir efnahagslífsins. Unnið er að endurskoðun á starfsumhverfi vísinda og rannsókna og von á frumvarpi um heilindi í vísindarannsóknum.“ Ástæða er til að staldra sérstaklega við þennan kafla greinarinnar og hvetja til þess að nýsköpun reist á rannsóknum og vísindum nái til sem flestra þátta. Nýsköpun er afrakstur samkeppni og metnaðar. Hún leiðir til hag- kvæmni og framfara. Losa verður um tök ríkisins á sviði heilbrigðis- og félagsmála og leyfa nýjum straumum að leika um þessi stóru útgjaldasvið, ekki til þess að rýra opin- beran fjárstuðning heldur til að tryggja að fjármunir séu nýttir undir aga samkeppni. Hér á þessum vettvangi hefur því verið haldið fram að samstarf þessara þriggja ólíku flokka sé vel til þess fallið að skapa æskilegt og nauðsynlegt jafnvægi á stjórnmálavettvangi og í samfélaginu almennt. Það hefur tekist á fyrsta ári stjórnar- samstarfsins. Næstu vikur reynir á þanþol þess þegar sverfur til stáls í kjaraviðræðum. Nýir forystumenn Eflingar stéttarfélags og Verslunarmannafélags Reykjavíkur (VR) haga sér að nokkru eins og strengjabrúður öfgafullra sósíalista þegar þeir boða ágæti stéttaátaka. Að tekist skuli á við þessa tíma- skekkju hér núna þegar kaupmáttaraukning hefur verið meiri en nokkru sinni er til marks um að litlir jaðarhópar hafa komið ár sinni fyrir borð í fjölmennum samtökum launa- manna. Umbjóðendur þessa forystufólks finna fyrir skaðsemi þess að fela því ábyrgð verði ekki samið um kaup og kjör innan þeirra marka sem þjóðarbúið og eðlileg fram- vinda þess þolir. Undir lok afmælisgreinar sinnar vara formenn stjórnarflokkanna við öfga- og lýðskrums- flokkum og stjórnmálamönnum sem vilja „sundra og grafa undan þeim lýðræðislegu gildum sem hafa tryggt stórstígar framfarir í mannréttindamálum, hagsæld og öryggi“. Við þessar aðstæður sé mikilvægt „að sýna fram á að það er hægt að taka tillit til ólíkra sjónarmiða, miðla málum og vinna samhent að sameiginlegum markmiðum, þvert á flokka, samfélaginu öllu til heilla“. Takist flokkunum þetta verður samstarf þeirra þjóðinni til heilla. II. Að kvöldi þriðjudags 20. nóvember 2018 komu sex þingmenn saman í Klaustri, veitinga stað skammt frá Alþingishúsinu. Þetta voru fjórir forystumenn Miðflokksins: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson flokks- formaður, Gunnar Bragi Sveinsson, fyrsti varaformaður og þingflokksformaður, Anna Kolbrún Árnadóttir, annar varaformaður, og Bergþór Ólason, varaformaður þingflokks. Þá voru þarna tveir forystumenn þingflokks Flokks fólksins: Ólafur Ísleifsson þingflokks- formaður og Karl Gauti Hjaltason, vara- formaður þingflokks. Bára Halldórsdóttir sem var stödd í Klaustri fyrir tilviljun tók upp samtalið með leynd í 3 klst. og 41 mínútu. Í samtali við Stundina 7. desember kom fram að henni blöskraði svo níðangurslegt tal þingmannanna um konur og fatlað fólk að hún notaði farsíma sinn sem upptökutæki. Sjálfri sér lýsir hún sér sem samkynhneigðri og öryrka. Að kvöldi miðviku dags 28. nóvember birtust bútar af samtalinu á vefsíðum DV og Stundarinnar með mynd af hluta þing- mannanna. Síðan rúllaði málið af stað og skildi eftir sig pólitískt svöðusár. Fyrir utan að tala niður til kvenna með skít- legum orðum voru tvö mál þingmönnunum ofarlega í huga.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.