Þjóðmál - 01.12.2018, Side 10

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 10
8 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Í fyrsta lagi vildu Miðflokksmenn reyna að fá Karl Gauta og Ólaf til að ganga til liðs við sig. Virtist Ólafi standa til boða að verða þing- flokksformaður Miðflokksins í stað Gunnars Braga. Í öðru lagi minnti Gunnar Bragi á að hann hefði skipað Árna Þór Sigurðsson, þáv. þingmann VG, sendiherra samtímis Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins. Þetta hefði hann gert til að skapa frið um skipun Geirs og tekist það. Hann hefði rætt málið við Bjarna Benedikts- son, formann Sjálfstæðisflokksins. Gunnar Bragi gaf til kynna að hann ætti inni hjá sjálfstæðismönnum að þeir skipuðu sig sendi herra. Sigmundur Davíð tók undir þau orð. Bjarni Benediktsson og Guðlaugur Þórðarson utanríkisráðherra hafa afdráttar- laust hafnað því að Gunnar Bragi eigi eitthvað inni hjá sjálfstæðismönnum varðandi stöðuveitingar. Birting á samtölum þingmannanna og einkum niðrandi ummæli þeirra um konur vöktu hneykslun og reiði fimmtudaginn 29. nóvember. Steingrímur J. Sigfússon, forseti alþingis, sagði á ruv.is: „Mér líður mjög illa. Mér finnst þetta hrylli legur atburður [...] Þannig að þetta er óskaplega dapur dagur.“ III. Að kvöldi fimmtudagsins 29. nóvember var árlegt kvöldverðarboð forseta Íslands fyrir alþingismenn. Hvorki Gunnar Bragi Sveinsson né Bergþór Ólason, orðljótustu mennirnir á fundi sexmenninganna, sóttu veisluna. Vildu þeir hlífa samstarfsmönnum við návist sinni. Föstudaginn 30. desember boðuðu þeir tveir fjarveru á nefndarfundum. Bar þetta vott um að í hópi samstarfsmanna á þingi væru þeir illa séðir. Sama viðhorf var innan þeirra eigin flokka. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, birti eftirfarandi yfirlýsingu á vefsíðu flokksins föstudaginn 30. nóvember: „Í ljósi alvarlegs trúnaðarbrests sem upp er kominn í þingflokki Flokks fólksins ákvað stjórn flokksins á nýafstöðnum fundi sínum í dag, að vísa þingmönnum flokksins þeim Karli Gauta Hjaltasyni og Ólafi Ísleifssyni úr Flokki fólksins, sbr. samþykktir flokksins grein 2.6 en þar segir: „Sé félagsmaður Ólafur Ísleifsson þingflokksformaður Flokks fólksins. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.