Þjóðmál - 01.12.2018, Side 11

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 11
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 9 staðinn að því, að vinna gegn meginmark- miðum og hagsmunum Flokks fólksins, skal hann sviptur félagsaðild og skal það gert á stjórnarfundi með auknum meiri- hluta atkvæða og félagsmanni tilkynnt það formlega“. Stjórnin harmar þá rýrð sem þeir hafa kastað á Flokk fólksins, með óafsakanlegri þátttöku sinni á fundi með þingmönnum Miðflokksins á Klaustur-bar þann 20. nóv. sl. [Séra] Halldór Gunnarsson hefur sagt sig úr stjórn flokksins ásamt öðrum trúnaðar- störfum er hann gegndi.“ Karl Gauti og Ólafur voru ósáttir við brott- reksturinn. Þeir sögðust ætla að starfa utan flokka á þingi. Halldór Gunnarsson sagði sig úr stjórn flokksins af því að hann vildi ekki reka þá félaga sína úr honum. Þeir hefðu ekki gerst sekir um óviðurkvæmilegt tal. Inga Sæland sá hins vegar að Karl Gauti talaði niður til hennar. Hún áttaði sig einnig á því að þeir sátu þennan fund til að leggja á ráðin um andóf gegn henni, ef ekki beina uppreisn í samvinnu við Miðflokksmenn. Lítið er spunnið í flokksformann sem bregst ekki við slíkum samblæstri. IV. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sendi flokkssystkinum sínum bréf föstudaginn 30. nóvember. Þar tilkynnti hann að Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór Ólason hefðu verið sendir í leyfi. Hann sagði þingmenn flokksins „miður sín yfir mörgum þeirra orða sem féllu í einkasamtölum sem gerð hafa verið opinber undanfarna daga“. Vanlíðan viðkomandi þingmanna hefði verið mikil. Hann „hefði átt að stöðva“ fundinn í Klaustri. Þá sagði flokksformaðurinn: „Ég skammast mín fyrir að hafa ekki gert það en sök mín hvað þetta varðar er því miður miklu meiri en nemur þessum eina fundi. [...] Ég hef setið ótalsinnum með full- trúum ólíkra flokka þar sem sambærilegar umræður hafa átt sér stað án þess að ég eða aðrir höfum stöðvað þær.“ Hafi Sigmundur Davíð setið marga fundi um menn og málefni þar sem orðbragð og hugarfar er á borð við það sem upptökurnar af kráarfundinum í Klaustri sýna ber það vott um stjórnmálastarf á fúnum grunni. Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokksins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.