Þjóðmál - 01.12.2018, Page 63

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 63
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 61 Drama á Stöð 2 Ég hafði hafið umfjöllun um fimmtugsafmæli Bryndísar Schram á Sjónvarpinu og tvíefldist á Stöð 2 með áfengisnótur sem hafði verið lekið til mín úr Ríkinu. Þar var rækilega tíunduð hver einasta flaska sem hafði farið úr Borgartúni í veisluna á Hótel Íslandi. Afmælis- veislan var sumsé í boði skattborgara. Jón Baldvin hafði boðið gestum upp á ráðherra- vín, svo sem tíðkast hafði um áratugaskeið. Jóni mislíkaði mjög myndir sem við sýndum þegar gestir komu til veislunnar. Jón Baldvin og félagar í nýrri ríkisstjórn vildu reka mig og Pál Magnússon af Stöð 2. Það var eftir að þeir höfðu sparkað Þorsteini Pálssyni úr ríkisstjórn og tekið Ólaf Ragnar inn í stjórnina. Jón Baldvin kom í viðtal við okkur Pál og var heitt í hamsi og sló til mín í beinni útsendingu. Jón Óttar Ragnarsson var auðvitað og skiljanlega reiðubúinn að fórna okkar aumu persónum fyrir 500 milljón króna ríkisábyrgð til þess að halda völdum á Krókhálsi en féll á tíma og missti Stöð 2. Nýir eigendur tóku við keflinu. Páll varð sjónvarpsstjóri og Ingvi Hrafn fréttastjóri að mínu frumkvæði. Davíð Oddsson felldi Þorstein í formannsslag 1991 og allar götur síðan hefur Þorsteinn Pálsson glefsað í hæla sinna gömlu félaga. Bílskúr af áfengi og Bermúdaskál Brennivín hefur alltaf verið stórmál á Íslandi. Magnús Thoroddsen, forseti Hæstaréttar, var gómaður með fullan bílskúr af áfengi og dæmdur frá embætti. Svo var það fyrrnefnt ráðherravín Jóns Baldvins. Ríkisendurskoðun „sýknaði“ Jón Baldvin enda gæslumaður kerfisins sem sér um sína blýantanagara. Svo var það Bermúdaskál Davíðs Oddssonar. Við höfðum setið saman til borðs í veislu Skáksambands Íslands í veislusölum ríkisins í Borgartúni. Davíð var þá með slæm útbrot á enni eftir erfið veikindi og á sterkum fúkka- lyfjum. Davíð hélt úr veislunni til þess að taka á móti heimsmeisturum okkar færandi heim Bermúdaskálina; HM-bikar bridgeheimsins. Ótrúlegt afrek og mikil gleði í Leifsstöð. Þar var skálað. „Við segjum ekki bara skál, heldur Bermúdaskál,“ sagði Davíð. Þar var með hljóðnema Bjarni vinur minn Felixson. Bjarni Fel fylgdi Davíð líkt og skugginn þó að athyglin hefði átt að beinast að sigursælum heimsmeisturum. RÚV-arar töldu sig finna keim af áfengi og í fréttatíma eftir fréttatíma sóttu hart að Davíð. Það lá vel á ráðherra en hann var fráleitt fullur. Um það get ég vitnað eftir að hafa setið með honum í veislu Skák- sambandsins. Í þætti á Stöð 2 tók ég fyrir Bermúdaskálina. Davíð Oddsson mætti í Krókhálsinn til þess að ræða almennt um pólitíkina við mig og Kristján Má Unnarsson, þann flotta frétta- mann. Þessi teikning eftir Sigmund birtist í Morgunblaðinu eftir að Hallur Hallsson hafði fjallað um áfengiskaup Jóns Baldvins Hannibalssonar. Boðað var til blaðamannafundar þar sem tilkkynnt var um tilboð SÍS í Útvegsbankann. Hallur er lengst til vinstri á myndinni.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.