Þjóðmál - 01.12.2018, Page 40

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 40
38 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Heimild: Vinnumálastofnun Með inngöngu í EFTA og EES- samningnum má segja að heimurinn hafi minnkað - og Ísland var statt í miðri alþjóðavæðingunni. Markmið með aðild okkar að þessum alþjóðasamningum var, og er, að tryggja aðgang að erlendum mörkuðum fyrir okkar framleiðsluvörur til að afla gjaldeyris en jafn- framt að stuðla að aukinni samkeppnishæfni okkar og Evrópu gagnvart öðrum efnahags- svæðum. Ef Íslenskt fyrirtæki kemur með betri lausnir stuðlar það að bættri samkeppnis stöðu evrópska efnahagssvæðisins. Við höfum e.t.v. ekki alveg fundið taktinn í þessari þróun, við viljum auka kaupmátt, hækka laun en jafnframt lækka verðlag. Þessi vandi sést best á fréttum undanfarið þar sem sagt var frá að leigufélag verkalýðshreyfingarinnar hyggst byggja hagkvæmar leiguíbúðir með því að kaupa einingahús frá Lettlandi og innréttingar frá IKEA, því það er ódýrara, en á sama tíma fara fram á mikla hækkun lægstu launa hér á landi svo íslenskur iðnaður verði ekki samkeppnisfær. Þeir útlendingar sem hingað koma starfa oft á þeim sviðum þar sem lægstu launin voru greidd. Erlent vinnuafl hefur hefur í miklu mæli sótt til Íslands í hærri laun en því býðst í sínu heima landi. EES- samningur inn heimilaði frjálsa för launafólks og er erlent vinnuafl nú yfir 13% af vinnu- markaði. Lágmarkslaun í Lettlandi eru 60 þúsund á mánuði, á Spáni um 107 þúsund og í Bretlandi um 205 þúsund. Verkalýðs- hreyfingin horfði þá í auknu mæli til þessarar staðreynda við mótun kröfugerða. Á þessum tíma urðu einnig miklar tækni- breytingar. Með upptöku strikamerka og nýrra verslunarhátta varð um 20% fækkun starfa í verslun. Mikil fækkun starfsfólks varð einnig í sjávarútvegi og fiskvinnslu með tilkomu kvótakerfisins og nýrrar tækni svo einhver dæmi séu nefnd. Menntunarstig þjóðarinnar hefur einnig breyst hratt. Árið 1990 voru háskólamenntaðir um 11% af vinnu markaði á Íslandi en eru nú um 37% og á sama tíma hefur hlutfall þeirra sem einungis hafa grunnmenntun fækkað í um 26%. Menntunarmál hafa orðið æ fyrirferðar- meiri í starfsemi stéttarfélaga sem leið til bættra kjara og til að tryggja samkeppnis- hæfni um störfin með alþjóðavæðingunni.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.