Þjóðmál - 01.12.2018, Side 62
60 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018
Þeir notuðu tækifærið til að reka Ingva Hrafn
af Sjónvarpinu ekki löngu síðar út af öðru máli.
Aðförin að mér hófst með áminningarbréfi en
áður en stund hefndarinnar rann upp hafði ég
stokkið yfir á Stöð 2 enda hafði Páll Magnús-
son beðið mig að koma yfir.
SÍS vildi Útvegsbankann
en gaf upp öndina
Í ágúst 1987 gerðu SÍS og nokkur dóttur-
félög tilboð í hinn fallna Útvegsbanka, sem
átti að sameina Samvinnubankanum. Strax
myndaðist mikil andstaða við að SÍS yfirtæki
Útvegsbankann, svo að allt ætlaði vitlaust
að verða. Síðar kom á daginn að SÍS var
að sökkva og fjölmörg dótturfélög, líkt og
Hafskip. SÍS hafði virst óhagganlegt í íslensku
samfélagi, líkt og hið gerska heimsveldi. Það
var boðað til blaðamannafundar þar sem
þeir Valur Arnþórsson stjórnarformaður og
Guðjón B. Ólafsson tilkynntu tilboð SÍS. Ekki
varð af kaupunum og sannarlega veit enginn
ævina fyrr en öll er. Valur lést í hörmulegu
flugslysi árið 1990, aðeins 55 ára. Guðjón lést
þremur árum síðar aðeins 58 ára gamall.
SÍS fór á hliðina. Landsbankinn kom til bjargar,
keypti Samvinnubankann og sameinaði
rekstri sínum. Skuldastaða SÍS var slík að
bankinn neyddist til að taka félagið yfir
og afskrifaði helming skulda, þá í kringum
700 milljónir króna. Það þykja ekki háar
upphæðir í dag, en voru að sönnu stórar
tölur fyrir aldarfjórðungi. Öllu starfsfólki SÍS
var sagt upp í kjölfarið og reksturinn heyrði
sögunni til. Útvegsbankinn sameinaðist
Iðnaðarbankanum, Verslunarbankanum og
Alþýðubankanum og varð að Íslandsbanka,
sem síðar varð Glitnir.
Forseti Alþingis ákærður
Jóhann Einvarðsson, forseti Alþingis, var
sviptur þinghelgi og ákærður vegna Útvegs-
bankans. Á laugardegi hafði krafan um
sviptingu þinghelgi verið kynnt forsætisnefnd,
og það mátti heyra saumnál detta þegar ég
gekk inn um dyr Alþingis þennan laugardag.
Ég fengið ábendingu frá heimildar manni.
Frétt mín um þann einstæða atburð var
sem pólitískur landskjálfti upp á tíu. Ísland
nötraði. Sérstakur saksóknari hafði ákært
Jóhann og félaga í bankaráði. Jónatan
Þórmundsson hafði verið skipaður sérstakur
saksóknari eftir að bróðir Jóhanns, Hallvarður
Einvarðsson ríkissaksóknari, hafði verið
dæmdur vanhæfur og frá Hafskipsmálinu.
Aðeins einu sinni áður hafði þingmaður verið
sviptur þinghelgi. Það var 1932 þegar
Magnús Guðmundsson sagði af sér en Hæsti-
réttur sýknaði dómsmálaráðherrann stuttu
síðar.
Myndin til vinstri er tekin árið 1987 þegar Hallur var fréttamaður á Sjónvarpinu. Myndin til hægri er
tekin árið 2016, í tilefni af 30 ára afmælis Stöðvar 2 – hvar Hallur starfaði um árabil.