Þjóðmál - 01.09.2017, Qupperneq 61

Þjóðmál - 01.09.2017, Qupperneq 61
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 59 Gnýr Guðmundsson(4) (GNG) gerir ráð fyrir eftirfarandi heildarfjölda ökutækja árið 2030, hlutdeild tengiltengdra rafbíla, þ.e. ökutæki knúin vetnisefnarafölum eða metani eru þar ekki meðtalin. Þá er þarna sýnd aflþörf í MW og orkuþörf þessara orkuskipta, sem dreifikerfin, flutningskerfið og nýjar virkjanir þurfa að anna (sjá töflu hér til hliðar á síðunni). Spá af slíku tagi er óvissu háð en hún er engu að síður mikilvæg til að gera sér grein fyrir líklegri innviðaþörf og líklegri losun CO2 frá umferð á vegum landsins á tilteknum tíma, hér markmiðsárinu 2030. Ef þetta verður niðurstaðan fer því fjarri að markmiðið um 40% sam- drátt losunar náist 2030. Þá verða 59% ökutækjanna enn knúin sprengihreyfl- um og þótt þau muni brenna 10% minna eldsneyti á hvern ekinn km þá en 2016 munu þau samt þurfa um 175 kt, sem er 60 kt yfir markmiðinu. Til þess að ná settu markmiði þarf hlutdeild umhverfisvænna ökutækja af heild að verða 60%. Hvers vegna hafa stjórnvöld valið töluna 40% og láta sem hún dugi til að uppfylla skuldbindinguna frá París 2015? Áætlaður fjöldi ökutækja árið 2030 Flokkur Heildar- fjöldi Raf- knúin Afl MW Orka Gwh/ár Fjölskyldubílar 253.307 40% 80 340 Strætisvagnar 200 40% 1 8 Sendiferðabílar 28.209 30% 8 42 Vörubílar 12.745 3% 3 23 Bílaleigubílar 34.375 70% 45 156 Smárútur 3.056 65% 8 50 Stórrútur 3.929 45% 28 150 Heild 335.821 41% 172 769 Áætlaður fjöldi ökutækja árið 2040. Flokkur Heildar- fjöldi Raf- knúin Afl MW Orka Gwh/ár Fjölskyldubílar 268.170 70% 144 596 Strætisvagnar 244 70% 2 10 Sendiferðabílar 29.864 45% 14 60 Vörubílar 13.493 25% 28 118 Bílaleigubílar 40.625 100% 67 245 Smárútur 3.611 95% 11 40 Stórrútur 4.643 77% 57 206 Heild 360.650 70% 324 1.276 Losun umfram markmið verður samkvæmt þessu 190 kt CO2 árið 2030. Það er hægt að binda þetta magn árið 2030 með skógrækt í samvinnu við skógarbændur, sem hæfist strax og næmi 4,3 kha/ár. Kostnaður af slíku yrði um 1,3 milljarðar króna á ári og stæði yfir í 10 ár. Þetta er sennilega hagkvæmasta úrræðið sem stjórnvöld hafa til að ná markmiðinu, og mundu þá slá tvær flugur í einu höggi; fá skatttekjur seinna meir af sölu koltvíildiskvóta til útlanda og af tekjum nytjaskógræktar. Þessi aðferð þarf að verða liður í langtímaáætlun stjórnvalda í stað þess að þau rjúki upp með andfælum við að markmið náist ekki. Skilyrði er auðvitað full viðurkenning ESB á þessari aðferð við kolefnisbindingu sem fullgildri mótvægisaðgerð samkvæmt Parísarsam- komulaginu. Vonandi mun eitthvað í þessa veru sjást í aðgerðaráætlun stjórnvalda. Á áratugnum 2031-2040 mun eldsneytis- notkun bifreiða fara undir 40% af notkuninni árið 1990. Það er áhugavert að virða fyrir sér spá GNG fyrir árið 2040 (sjá töflu hér að ofan). Eins og sú fyrri er hún reist á opinberri mann- fjöldaspá, spá um fjölda erlendra ferðamanna og þingsályktunum um málefnið. Á 4. áratugnum verður markinu um brennslu innan við 115 kt/ár af eldsneyti í umferðinni náð, því að samkvæmt ofangreindri töflu verður fjöldi ökutækja með sprengihreyfli rúmlega 108.000 árið 2040, og þau munu að líkindum brenna 90 kt af olíu. Í skýrslu GNG er greint frá því að rafaflþörfin (MW) sé reiknuð á grundvelli raforkuþarfarinnar (GWh/ár) með því að áætla meðalnýtingartíma hleðslutækja fjölskyldubíla, strætisvagna, sendiferðabíla og vörubíla 4.250 klst. á ári. Þetta samsvarar tæplega helmingi úr ári.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.