Þjóðmál - 01.09.2017, Page 66
64 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017
Bílaframleiðendur auka eldsneytisnýtni
vélanna svo að nú komast menn meira en tvö-
falda vegalengd á lítranum miðað við 1990, en
skattayfirvöldin auka skattheimtuna á móti.
Þessi skattheimta er komin í ógöngur og
henni ber að umbylta sem fyrst. Til að jafn-
ræðis sé gætt ber að leggja til grundvallar
þessari skattheimtu akstursvegalengd, stað-
setningu, öxulþyngd ökutækis og útblástur
hættulegra efna og afleggja í staðinn bifreiða-
gjald og eldsneytis- og kolefnisgjöld. GPS-stað-
setningarbúnaður er þegar fáanlegur í alla bíla,
og frá og með 2020 verða allir nýir bílar með
GSM-samskiptakerfi. Hægt verður að draga
úr biðröðum með því að senda upplýsingar
um breytilega gjaldskrá, kr./km, og hugmynd
samgönguráðherra um vegtolla til að fjár-
magna nauðsynleg nývirki á borð við Sunda-
braut verður auðveld og ódýr í framkvæmd.
Sanngjarnt má telja að akstursgjald af
bifreiðum standi straum af öllum kostnaði
við vegakerfið og bílferjur, stofnkostnað og
rekstrarkostnað, og ekkert umfram það. Nú
renna aðeins 0,56 kr. af hverri krónu sem
innheimt er af eldsneytisknúnum bílum og
notkun þeirra til Vegagerðarinnar. Það er
ósanngjarnt að láta afmarkaðan hóp standa
undir meiri samfélagskostnaði en hann veldur.
Ef fjárveitingar til vegamála verða auknar úr 25
ma.kr./ári í 35 ma.kr./ári, eins og nauðsynlegt
er til að ná lágmarksöryggisstigi á vegunum
sem tíðkast í Evrópu, og virðisaukaskattur af
nýjum bílum verður látinn renna óskiptur til
Vegagerðarinnar, þarf veggjaldið að nema
5,1 kr./km að meðaltali og vera talsvert hærra
á þung ökutæki og talsvert lægra á ökutæki
undir meðalþyngd ef nálgast á gjaldbyrði í
samræmi við slit ökutækis á vegum.
Samantekt
Þróuð hafa verið reiknilíkön til að meta áhrif
hlýnunar á afkomu íbúa á afmörkuðum
svæðum. Þetta hefur t.d. verið gert fyrir allar
sýslur Bandaríkjanna, 3.143 talsins. Afleiðing-
ar hlýnunar eru mjög mismunandi, yfirleitt
neikvæðar í Suðurríkjunum en jákvæðar í
nyrztu ríkjunum. Heildarniðurstaðan er að
jafnvel hófleg hlýnun, 1,5 °C, er líkleg til að
hafa dregið úr árlegum hagvexti í Banda-
ríkjunum undir lok 21. aldarinnar á bilinu
0 -1,7%. Hækkun um 4 °C mun þá líklega
hafa dregið úr árlegum hagvexti á bilinu
1,5% - 5,6%(11), og þess vegna verður hann
neikvæður sums staðar. Þessar tölur dylja þó
öfgar áhrifanna því að sums staðar verður
verðmætasköpunin um 10% meiri á mann en
núna vegna loftslagsbreytinganna, en annars
staðar mun hún hafa dregizt saman um 20%.
Þetta mun auka lífskjaramun á milli hlýrra og
svalra landsvæða um allan heim. Sem dæmi
spá líkönin illa fyrir Suðurríkjum Bandaríkjanna
en vel fyrir Nýja-Englandi og Norðvestur-
ríkjunum við Kyrrahafið. Það er auðvitað
öfugsnúið að hlýnunin bitnar meir á þeim sem
minni sök eiga á henni og geta síður fjármagn-
að mótvægisaðgerðir.
Á Íslandi er staðan ekki einhlít. Súrnun hafs-
ins, sem leiðir af koltvíildisupptöku þess úr
andrúmsloftinu, hefur í för með sér upplausn
kalkskelja, svo að undirstöðudýr á borð við
skeldýrin munu eiga erfitt uppdráttar. Við
hlýnun hafsins flytur ætið sig til norðurs og
fiskistofnar fylgja í kjölfarið, eins og þegar er
merkjanlegt með loðnu og makríl. Hlýnun
lofts og lagar hefur í för með sér bráðnun jökla
og hækkun sjávarborðs, sem bráðlega þarf
að gera ráðstafanir til að verjast hérlendis.
Úrkoma mun vaxa hér á landi og vatns-
búskapur batna, sem þýðir aukna orkuvinnslu-
getu þegar uppsettra virkjana ef lónin verða
stækkuð til að miðla vatninu eða hverflum/
rafölum bætt við. Grænkustuðull Íslands
(magn græns gróðurs) óx um 80% tímabilið
1980-2010 og vaxtarhraði birkis er nú áttfaldur
miðað við árið 1970. Repjuræktun mun gefa
árvissa uppskeru, sem gefur af sér 1,0 t/ha
Nú renna aðeins 0,56 kr. af
hverri krónu sem innheimt er af
eldsneytisknúnum bílum og notkun
þeirra til Vegagerðarinnar. Það er
ósanngjarnt að láta afmarkaðan
hóp standa undir meiri
samfélagskostnaði en hann veldur.