Fréttablaðið - 26.11.2021, Page 22

Fréttablaðið - 26.11.2021, Page 22
Arizona, Georgía, Michigan, Pennsylvanía og Wisconsin, verða aðalbarátturíkin í forsetakosningunum árið 2024 ef marka má kann- anir. Donald Trump undirbýr framboð, en Joe Biden stefnir á endurkjör. kristinnhaukur@frettabladid.is BANDARÍKIN Donald Trump, fyrr- verandi Bandaríkjaforseti, lét fyrir skemmstu gera kannanir í fimm lykilríkjum, sem hann sér sem tæki- færi til þess að sigra Joe Biden árið 2024. Biden hefur þegar gefið það út að hann hyggist stefna á endurkjör. Samkvæmt gögnum sem miðill- inn Politico hefur undir höndum eru ríkin Georgía, Arizona, Mic- higan, Wisconsin og Pennsylvanía. Allt eru þetta ríki sem Trump vann árið 2016 en tapaði fjórum árum síðar. Hin þrjú síðastnefndu hafa verið kölluð blái veggurinn eða ryðbeltið og var mikið áfall fyrir Demókrata að tapa á sínum tíma. Það sama má segja um Georgíu, sem Repúblikanar bjuggust alls ekki við að tapa í fyrra. Samkvæmt könnununum myndi Trump vinna í öllum fimm ríkj- unum, meðal annars með 12 pró- sentum í Michigan. Hafa ber þó í huga að kannanir gerðar af stjórn- málamönnum sjálfum gefa sjaldn- ast rétta mynd af niðurstöðum kosninga. Athygli vekur þó að í þessum fimm ríkjum er munurinn minnstur í Georgíu, en þar leiðir Trump aðeins með 3 prósentum samkvæmt þessum könnunum. Þetta rímar þó kannski við almenna íbúaþróun í r íkjum Bandaríkjanna. Fólki í minni- hlutahópum er að fækka hlutfalls- lega í ryðbeltinu og Repúblikanar þar með að sækja á. Ekki aðeins í umræddum ríkjum heldur í Minne- sota, Ohio og Iowa einnig. Að sama skapi er íbúaþróunin að snúast Demókrötum í vil í suðrinu og suðvestrinu. Ekki aðeins Georgíu og Arizona heldur líta Demókratar til þess að vinna Norður-Karólínu, Utah og Texas á komandi árum eða áratugum. „Þessar kannanir sýna greini- lega að Trump er enn þá 800 punda górillan í Repúblikanaflokknum og verður frambjóðandi flokksins árið 2024 ef hann vill það,“ sagði Tony Fabrizio, forstjóri fyrirtækisins sem framkvæmdi þær. Búist er við því að Donald Trump tilkynni formlega framboð sitt eftir þingkosningarnar á næsta ári. En þá eru töluverðar líkur á því að Demó- kratar tapi annarri eða hugsanlega báðum þingdeildum, sem myndi gera Biden mun erfiðara fyrir að stýra landinu. Flestar kannanir sem gerðar hafa verið á árinu benda til þess að Joe Biden myndi örugglega sigra fram- bjóðenda Repúblikana, hvort sem það eru öldungadeildarþingmenn- irnir Mitt Romney eða Ted Cruz, eða þá ríkisstjórar á borð við Ron De Santis og Nikki Haley. Undan- tekningin á þessu er Trump, en kannanir hafa verið á báða vegu hvað varðar hugsanlega rimmu þeirra. Nýjasta könnun YouGov, frá því í byrjun mánaðar, sýnir að mjótt er á munum og leiðir Biden aðeins með 4 prósentum. n Munurinn var mestur í Michigan en minnstur í Georgíu. Horfir til fimm barátturíkja Trump var mættur til Atlanta í Georgíu til þess að fylgjast með úrslitum hafnaboltadeildarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 25% - 70%25% - 70% BRANDSON.IS SVARTUR FRJÁDAGUR RAFRÆNN MÁNADAGUR VANDAÐUR FATNAÐUR - ÍSLENSK HÖNNUN LÍTTU VIÐ OG GERÐU GÓÐ KAUP! LÍTTU VIÐ OG GERÐU GÓÐ KAUP! A F S L Á T T U RA F S L Á T T U R bth@frettabladid.is ÚTIVIST Mikil uppbygging er fram undan á skíðasvæðum höfuðborg- arsvæðisins. Keyptar verða fjórar til fimm lyftur, þar af tvær til þrjár stólalyftur. Fjárfest verður í tækjum til snjóframleiðslu. Heildarfjárfest- ingin nemur 5,1 milljarði. Magnús Árnason, framkvæmda- stjóri skíðasvæðis höfuðborgar- svæðisins, segir komið að því að stíga ný skref. Fyrstu tvær lyfturnar komi árin 2022 og 2023. Árið 2024 muni snjóframleiðsla hefjast í Blá- fjöllum og í Skálafelli ári síðar. Verður það í fyrsta skipti sem snjór verður framleiddur á skíðasvæðum í nágrenni höfuðborgarinnar. Magnús segir hægt að framleiða snjó við frostmark. Mesta fram- leiðnin sé ef frostið er 4-7 gráður. Erfitt sé að vera sífellt háð úrkomu. „Við erum fyrst og fremst að reyna að tryggja meiri stöðugleika. Við fáum hláku á hverjum einasta vetri sem getur skemmt mun meira fyrir okkur en ef það væri góður grunnur, vegna snjóframleiðslu.“ Aðstæður til skíðaiðkunar muni stórbatna við þessi skref. „Við erum komin á þann stað að hætta þessu klastri. Þetta mun þýða verulega breytta tíma í fjöllunum, miklu meiri breidd og stöðugleika,“ segir Magnús. Í nýrri skýrslu Umhverfisstofn- unar Evrópu er spáð að skíðasvæði víða í Evrópu gætu orðið fyrir búsifjum vegna veðrabreytinga sem tengjast loftslagsbreytingum. Ekki er vikið sérstaklega að Íslandi í þeim efnum. Magnús segir að veturnir séu mjög mismunandi. Þess vegna sé tímabært að bregðast við með fyrr- nefndum hætti. n Stutt í snjóframleiðsluna í Bláfjöllum Heildarfjárfesting stórátaks í uppbyggingu skíðasvæða höfuðborgarsvæðis- ins nemur 5,1 milljarði króna. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN 20 Fréttir 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.