Fréttablaðið - 26.11.2021, Page 42

Fréttablaðið - 26.11.2021, Page 42
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Sigrún Lilja segir það ótrúlega gefandi að sjá viðskiptavini ná markmiðum sínum loksins með hjálp líkamsmeð- ferða The House of Beauty. FRéttABLAðið/ EyÞóR Í Covid var unnið að því aðtaka yfir húsnæðið við hliðina á Nýbýlaveginum og er stofan nú orðin þrefalt stærri en hún var í upphafi. Þessi glæsilega brúður kom til okkar sem módel í Brúðar makeover pakkann. Hún byrjaði 14. febrúar (fyrir-mynd) og kláraði 1. maí (eftir-mynd). Það eru ekki nema 2,5 mánuðir á milli mynda. Mynd/AðSEnd Árangur viðskiptavina þykir mikill og vekur eftirtekt Ein af árangurssögum The House of Beauty er frá Súsönnu Ósk. „Súsanna byrjaði hjá okkur í meðferðum í september 2020. Hún vildi bæta heilsuna og minnka daglega verki. Síðan þá hefur hún misst heila 91 sentimetra. Þá hefur hún endurheimt heilsuna sem er auð- vitað það mikilvægasta í hennar ferðalagi,“ segir Sigrún. „Ég mætti sárþjáð í The House of Beauty, gekk nánast með göngu- grind og gat varla hreyft mig. Eina sem læknar gátu gert voru að gefa mér sterasprautur og sjúkraþjálfarar höfðu gefist upp á mér. Ég byrjaði í Lipomassage Silkligth í september síðastliðnum og með- ferðin hefur gert kraftaverk á mér. Ég er farin að geta hreyft mig, ganga upp tröppur, get beygt mig sem ég gat ekki áður og það hefur fokið af mér 91 sentimetri. Geðheilsan er líka orðin miklu betri. Það er líka svo æðislegt að vera hjá ykkur, alltaf tekið á móti manni með bros á vör. Ég er bara eins og ný manneskja frá því ég byrjaði að mæta. Ég vissi hreinlega ekki að annað eins væri til og ég get ekki mælt meira með,“ segir Súsanna. Árangurinn hjá Sú- sönnu er greinilegur eftir Lipomassage Silklight meðferð- ina. En mikilvægast er að henni líður ein- faldlega mun betur í skrokknum. Mynd/AðSEnd líkaminn nuddaður með með­ ferðartækinu, frá toppi til táar. Við fáum marga gigtarsjúklinga til okkar vikulega sem ná að halda niðri verkjum með því að koma í þessa meðferð. Sumir geta jafnvel minnkað lyf á móti sem er auð­ vitað alltaf markmiðið. Lipo­ massage­meðferðin bætir blóð­ flæði og dregur úr bólgum og bjúg. Það skemmtilegasta er að sjá þegar fólk nær bata í heilsunni. Eftir að hafa sjálf misst heilsuna og þurft að berjast fyrir henni aftur, þá gerir maður sér grein fyrir hversu verðmæt heilsan okkar er. Það er því eitt af þessu sem ég brenn fyrir í dag, að leggja mitt af mörkum við að aðstoða fólk við að byggja upp heilsu. Lipomassage er þar gríðar­ lega öflugt enda skipta jákvæðar reynslusögur í dag örugglega hundruðum,“ segir Sigrún Lilja. Velashape fyrir stjörnurnar Velashape­líkamsmeðferðina nota frægustu stjörnurnar í Hollywood. „Meðferðin kemur frá Bandaríkjun­ um og er þekkt að Victoria’s Secret fyrirsæturnar nota tækið til að fullkomna línurnar fyrir sýningar. Einnig nota Kardashian­systurnar meðferðina.“ Meðferðin tekur 20 mínútur og mótar og stinnir líkamann á áhrifaríkan hátt. Blanda af infra­ rauðum geislum, rafbylgjum og svokallaðri ryksugu orsakar djúpa hitun á fitufrumum, vefjum og undirliggjandi kollagen­trefjum. Meðferðin beinist að staðbundinni fitu í líkamanum og örvar elastín­ og kollagenframleiðslu húðarinnar. Velashape er öflugt á blöndu af lausri húð og fitu. „Meðferðin er vinsæl hjá konum eftir barnsburð, til að vinna á svuntu og lausri húð eftir þyngdartap. Sama gildir um fitusöfnun á baki og kringum brjóst og ekki má gleyma bingóvöðvanum svokallaða eða þríhöfðanum. Það er mjög vinsælt að koma í Veloshape og fara svo beint í Lipomassage á eftir. Hvor um sig virka mjög vel, en saman gefa þær enn meiri árangur. LED­húðmeðferðin okkar er einnig mjög öflug ljósmeðferð til að vinna á örum, slitum og vinna á lausri húð.“ Totally Laser Lipo Totally Laser Lipo líkamsmeð­ ferðin er hönnuð til að vinna á staðbundinni fitusöfnun. Sérstak­ ar leiserblöðkur eru notaðar til að opna fitufrumuna, breyta fitunni þar úr föstu í f ljótandi form, sem lekur svo út úr frumunni og losast út úr líkamanum með sogæða­ kerfinu á náttúrulegan hátt. „Við mælum alltaf með að fólk taki brennsluæfingu innan tólf tíma eftir slíka meðferð, til að hjálpa sogæðakerfinu að losa fituna úr líkamanum. Ekki má fara í þessa meðferð oftar en að 72 klukku­ stundir líði á milli til að gefa líkam­ anum og lifrinni sem vinnur út fituna nægan tíma á milli. Vinsælt er að fara í Fitform á eftir Totally Laser Lipo. Þar er djúp rafleiðni notuð til að styrkja vöðvana og auka brennslu. Þessar tvær virka dúndurvel saman.“ Msculpta PRO „Nýjasta meðferðin, Msculpta PRO, er öflugasta vöðvauppbyggingar­ meðferð sem við höfum komist í tæri við. Stórar rafsegulblöðkur virkja ákveðin vöðvasvæði eins og kvið eða rass og hjálpa líkam­ anum að byggja upp vöðvann. Tækið getur virkjað vöðvana því sem nemur 50.000 kviðæfingum eða hnébeygjum, eitthvað sem líkaminn gæti aldrei gert sjálfur í einu. Hver tími er hálftími og getur stækkað rassvöðvana og myndað sixpack. Árangurinn er ótrúlegur og frábær viðbót fyrir þá sem ná ekki að styrkja ákveðna vöðvahópa nógu vel í ræktinni. Algengt er að kviðvöðvarnir gliðni í sundur hjá konum á með­ göngu. Þetta má laga með skurðað­ gerð en við sjáum líka gríðarlegan árangur með þessari meðferð. Msculpto PRO kemur einnig sterk inn í bland við aðrar meðferðir hjá okkur,“ segir Sigrún. Þinn árangur er okkar markmið Viðskiptavinir The House of Beauty eru á aldrinum átján og upp úr. „Um 95% kúnna okkar eru konur. Hingað koma þó líka karlar enda eru meðferðirnar ekki síður fyrir þá. Við bjóðum upp á sniðuga sér­ hannaða makeover­pakka til að vinna á algengum vandamálum, líka fyrir herrana. Við bjóðum svo upp á sérhannaða jólapakka sem fara eingöngu í sölu fyrir jólin. Þeir eru á breiðu verðbili og kallast brons, silfur, gull, platínum og demants. Í ár bætum við fleiri minni og ódýrari pökkum við jólapakkana til að auka úrvalið enn frekar fyrir þá sem vilja gefa gjafapakka frá okkur undir jólatréð. Klassísku makeover­pakkarnir og gjafabréfin okkar eru líka sívinsæl í jólagjafir og koma öll gjafabréfin okkar í fallegum gjafaöskjum.“ Enginn gildistími er á kortunum, gjafabréfum eða pökkum. „Þess má geta að við erum enn að bóka hjá okkur í meðferðir og meðferðar­ pakka fyrir jólin.“ Mikil ánægja með árangur „Algeng tímalengd á meðferðar­ pökkum er um 4­8 vikur. Á þeim tíma sér fólk almennt flottan árangur. Í upphafi fyllir viðskipta­ vinur út nákvæma heilsufars­ skýrslu, en ýmislegt sem tengist heilsufari getur haft áhrif á árangur. Við viljum að fólk fari af stað með réttar væntingar og leiðbeinum fólki í samræmi við núverandi heilsufar. Við hvetjum alltaf viðskiptavini til þess að fá mælingu og fá teknar fyrir­myndir. Markmið okkar er ekki endilega að missa ákveðinn fjölda kílóa, þó að það sé oft fylgi­ fiskur. Stefnan er að árangurinn sjáist á mælingum og með berum augum. Því er samanburðinn á fyrir­ og eftir­myndunum mikil­ vægur. Meðferðirnar henta ekki þeim sem eru ekki tilbúnir til að leggja sitt af mörkum og axla ábyrgð á eigin árangri. Árangur byggist á samstarfi meðferða, meðferðar­ aðila og viðskiptavinar. Við gerum ekki kröfu um sérstakt mataræði eða æfingar en hvetjum fólk alltaf til að stunda heilbrigt líferni. Heil­ brigður lífsstíll hefur alltaf góð áhrif og mun alltaf hjálpa til við að ná hámarksárangri með meðferð­ unum.“ Tilboðssprengjur og afslættir fram mánudag Svartur föstudagur er genginn í garð og hvetur Sigrún áhuga­ sama að kíkja á vefsíðu The House of Beauty: thehouseofbeauty.is. „Bestu og stærstu tilboð ársins frá upphafi hafa verið yfir Black Friday­ og Cyber Monday­helgina. Sama verður uppi á teningnum í ár. Tilboðin hófust á miðnætti í gær og gilda fram á miðnætti á mánu­ dag. Þá er hægt að gera fáránlega góð kaup hjá okkur. Allar meðferðir eru á minnst 30% afslætti. Einnig eru sérvaldar meðferðir og pakkar á enn meiri afslætti. Við vörpum auk þess risa tilboðssprengjum á ákveðna pakka yfir tímabilið sem fara á 50% afslátt. Tilboðin eru bæði í boði á netinu en líka er hægt að versla á staðnum. Þá er um að gera að bóka sig í fría mælingu og ráð­ gjöf og gera bestu kaup ársins hjá okkur.“ ■ Upplýsingar um meðferðir og jóla- makeover pakkana er að finna á vefsíðunni thehouseofbeauty.is. Þar má einnig bóka sig í fría mælingu og ráðgjöf. 2 kynningarblað A L LT 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.