Fréttablaðið - 26.11.2021, Side 44
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654.
„Á hverjum degi alla vikuna höfum
við hlaðið í ný tilboð og stærstu
afsláttarsprengjurnar springa svo
á sjálfum Svörtum fössara, sem er
einmitt í dag. Þá erum við að bæta
við tilboðum en önnur tilboð sem
komu inn aðra daga vikunnar
gilda ennþá svo lengi sem tak-
markaða magnið er ennþá til. Öll
tilboðin munu gilda út helgina, ef
magnið leyfir. Svo kemur Stafræni
mánudagurinn eftir helgina eins
og rúsínan í pylsuendanum,“ segir
Sófús Árni Hafsteinsson, þjónustu-
stjóri ELKO.
„Það eru mjög margir sem nýta
sér þessi tilboð og eru þá bara
dálítið snemma í því að kaupa jóla-
gjafirnar. Ég held að það skipti máli
fyrir okkar viðskiptavini að geta
með góðri samvisku gefið jólagjafir
sem eru keyptar á Svörtum fössara
og Stafrænum mánudegi því að í
ELKO erum við með jólaskilamiða
sem gildir út janúar á næsta ári. Í
langflestum tilfellum geta þau sem
fá jólagjöf úr ELKO jafnvel prófað
gjöfina og séð hvort þeim líkar hún
og skilað henni síðan ef hún hentar
ekki og fengið inneign eða jafnvel
endurgreitt.“
Á Svörtum fössara og öðrum
tilboðsdögum dettur inn aragrúi
tilboða og er því stundum um að
ræða takmarkað magn á mestu
sprengjutilboðunum. „Við mælum
eindregið með því að fólk skrái
sig á póstlistann okkar á elko.is.
Þau sem eru á listanum fá sendar
upplýsingar um það hvaða vörur
eru að fara á tilboð. Þau fá til dæmis
dagstilboðin send, fá að vita um
föstudagstilboðin fyrst allra og það
sama gildir um tilboðin á Stafræn-
um mánudegi,“ segir Sófús Árni.
Geta aftur tekið á móti
viðskiptavinum í búðunum
En eru þá Svartur fössari og Staf-
rænn mánudagur í raun einn stór
tilboðsviðburður?
„Nei, þetta rennur aðeins saman
en er þó vel afmarkað. Við keyrum
tilboðin á Svörtum fössara í öllum
verslunum okkar sem og í vefversl-
un en Stafrænn mánudagur er ein-
göngu í vefverslun. Viðskiptavinir
okkar verða því að panta á ELKO.
is á mánudeginum til að nýta
tilboðin. Í fyrra var þetta raunar
með öðru sniði. Þá keyrðum við
Svartan fössara eingöngu í gegnum
vefverslunina vegna þess að þá
var tíu manna samkomubann.
Þetta gerðum við til að koma í veg
fyrir að fólk færi að hópast saman
í biðröð fyrir utan verslanirnar
okkar. Við erum búin að vera mjög
spennt að geta tekið aftur á móti
viðskiptavinum okkar í þessari til-
boðsviku en pössum að sjálfsögðu
vel upp á allar sóttvarnir og förum
eftir reglum um leyfilegan fjölda
viðskiptavina í verslunum en eins
og staðan er núna munum við ekki
þurfa að takmarka aðgang við-
skiptavina að verslunum okkar.“
Engar raðir í vefversluninni
Sófús Árni greinir frá því að í ár
verður Svartur fössari í fyrsta sinn
í ELKO á Akureyri. „Við opnuðum
verslunina þar í desember í fyrra,
eða eftir tilboðsvikuna. Akureyr-
ingar eru því að fá Svarta fössar-
ann hjá okkur í fyrsta skipti í ár í
sinni eigin verslun fyrir norðan.
Verslunin á Akureyri er eina ELKO
verslunin á landsbyggðinni en við
leggjum mikla áherslu á vefversl-
unina til að þjóna viðskiptavinum
á landsbyggðinni.
Í dag þarf fólk ekkert að fara
í verslun frekar en það vill
vegna þess að í vefversluninni
er hægt að kaupa öll tilboð sem
eru í gangi og velja úr mörgum
afhendingarmöguleikum. Ég get
til dæmis nefnt að hér á höfuð-
borgarsvæðinu erum við með 65
afhendingarstaði fyrir smávöru
og 70 á landsbyggðinni, til dæmis
á N1-stöðvum, og því til viðbótar
bjóðum við upp á heimsendingu.
Við bjóðum þannig viðskipta-
vinum okkar upp á mjög mikinn
sveigjanleika til að mæta þeirra
þörfum. Á elko.is eru engar raðir og
við komum vörunni til viðskipta-
vina eins fljótt og mögulegt er eða
í síðasta lagi einum til tveimur
dögum eftir að pantað er. Því til
viðbótar erum við með þjónustu-
snillinga tilbúna á vaktinni í
þjónustuverinu okkar sem geta
aðstoðað og svarað spurningum
frá morgni til kvölds. Hvort sem
það er í gegnum Facebook, netsp-
jall, síma eða tölvupóst.“
Fyrsti Svarti fössarinn hjá ELKO
var 2017 sem mun hafa verið fyrsta
árið sem Svartur fössari varð að
nokkuð stórum viðburði hér á
landi. Síðan hefur Svarti fössarinn
vaxið stöðugt og er þetta orðið að
risastórum viðburði um allt land,
að sögn Sófúsar.
Nokkuð bar á því í byrjun að
talað væri um Black Friday en nú
virðist íslenskan hafa orðið ofan á.
„Já, við komum nokkuð snemma
með Svartan fössara inn í þetta
og viljum frekar nota íslenskuna.
Katrín Jakobsdóttir notaði tæki-
færið á Degi íslenskrar tungu
og hvatti fólk til að nota frekar
Svartan fössara en Black Friday
og við tökum algerlega undir með
henni. Og þetta á ekki bara við
um Svartan fössara. Við reynum
að nota íslensku heitin yfir alla
þessa daga, hvort sem það er
Dagur einhleypra, Svartur fössari
eða Stafrænn mánudagur,“ segir
Sófús Árni.
En hver er munurinn á til-
boðum sem eru á Degi einhleypra,
Svörtum fössara og Stafrænum
mánudegi?
Sófús Árni segir Dag einhleypra
snúast nær eingöngu um smá-
vöru. „Á Svörtum fössara eru þetta
allir vöruflokkar, mikil áhersla á
verslanirnar í heild sinni og valdar
vörur innan vöruflokka. Stafrænn
mánudagur er svo langstærsti
dagur ársins í vefversluninni en
þá erum við með afsláttartilboð á
mjög mörgum vöruflokkum.“
Og jólagjöfin í ár er ...
En hvaða vörur eru vinsælastar?
Hver er jólagjöfin í ár?
„Það er mjög mismunandi milli
ára hvaða vörur eru vinsælastar. Á
Svörtum fössara eru stór heimilis-
tæki á borð við ísskápa og þvotta-
vélar mjög vinsælar vörur. Sama
má segja um sjónvarpstæki. Þau
eru alltaf vinsæl. Svo er það með
jólagjafirnar. Mér sýnist Airfryer,
eða loftsteikingarpottar, ætla að
verða feikilega vinsælir í ár. Svo
erum við að sjá mikla eftirspurn
eftir heyrnartólum, nuddbyssum
og öðrum heilsuvörum, hátöl-
urum, snjallúrum, hlaupahjólum,
hvers kyns tölvuleikjavarningi og
ýmiss konar smáum raftækjum
fyrir eldhúsið. Samt er óhætt
að segja að maður rennir alltaf
dálítið blint í sjóinn með vinsæld-
ir. Maður sér það alveg á Svörtum
fössara að fólk er mikið að kaupa
jólagjafir en það er einnig oft að
gera góð kaup á stærri raftækjum
fyrir heimilið.“
„Þjónustuver ELKO er almennt
opið frá morgni til kvölds eða
9-21 virka daga og 12-21 um
helgar og geta viðskiptavinir
stólað á góða þjónustu hvort sem
þeir eru í verslun eða vefverslun
þar sem við leggjum okkur fram
við að aðstoða viðskiptavini við
að velja réttu jólagjafirnar,“ segir
Sófús að lokum.
Tilboðin á Svörtum fössara hjá ELKO gilda fram á Stafrænan mánudag eða á meðan birgðir endast. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Það er hægt að gera ótrúlega góð kaup í ELKO á tilboðsdögum sem nú standa yfir.
2 kynningarblað 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURSvartur föStudagur