Fréttablaðið - 26.11.2021, Side 68
Fyrsti leikurinn á
Old Trafford gegn
Manchester United,
það var stórt fyrir
stuðningsmann
Manchester United.
Jóhann Berg Guðmundsson
hefur leikið í sex ár í stærstu
og erfiðustu deild í heimi,
ensku úrvalsdeildinni. Hann
er ákaflega stoltur af því.
Hann hefur á tíma sínum hjá
Burnley upplifað gleði og sorg
en kann í dag betur að meta
þá stöðu sem hann er í.
hoddi@frettabladid.is
Fótbolti Landsliðsmaðurinn í
knattspyrnu Jóhann Berg Guð-
mundsson lék sinn 150. leik fyrir
enska úrvalsdeildarfélagið Burn-
ley um liðna helgi. Jóhann er á sínu
sjötta tímabili í þessari stærstu
íþróttadeild í heimi og hefur þann-
ig fengið að upplifa drauminn sem
f lestir ungir knattspyrnumenn
ganga með í maganum.
Burnley er lítið félag þegar það er
mátað við þau stærstu á Englandi
en með dugnaði og eljusemi hefur
Sean Dyche, stjóra liðsins, og leik-
mönnum tekist að gera félagið gild-
andi í deildinni sem flesta dreymir
um að spila í.
„Þetta er búinn að vera skemmti-
legur tími og það hefur mikið
gengið á,“ segir Jóhann Berg í sam-
tali við Fréttablaðið þegar hann
er beðinn um að rifja upp leikina
150. „Liðinu hefur gengið mjög vel
þegar þú horfir í það að Burnley er
lítill klúbbur. Okkur hefur tekist
að komast í Evrópudeildina eftir
að hafa endað í sjöunda sæti árið
2018. Þetta hefur verið gríðarlega
skemmtilegur tími þó ég hafi glímt
við mín meiðsli sem hafa sett strik
í reikninginn. Ég hef þó spilað fullt
af leikjum.“
Tímabilið 2019-2020 var einstak-
lega erfitt fyrir Jóhann þar sem þrá-
lát meiðsli gerðu honum lífið leitt
og spilaði Jóhann aðeins 13 leiki.
Annars hefur þessi knái kantmaður
gert það gott.
„Það var erfitt ár, ég meiðist illa
með landsliðinu þegar ég meiðist
aftan í læri. Það voru mjög alvarleg
meiðsli sem tók langan tíma að
vinna sig upp úr. Þegar maður kom
til baka þá komu bakslög sem erf-
itt var að takast á við. Svo eru líka
tímabil sem ég hef spilað mikið
af leikjum,“ segir Jóhann sem var
að klára æfingu og að labba út af
æfingarsvæðinu, Barnfield, þegar
blaðamaður náði tali af honum.
Tölfræði
2021/2022
n 13 leikir
n 0 mörk
n 1 stoðsending
2020/2021
n 26 leikir
n 2 mörk
n 0 stoðsendingar
2019/2020
n 13 leikir
n 1 mark
n 1 stoðsending
2018/2019
n 36 leikir
n 3 mörk
n 7 stoðsendingar
2017/2018
n 38 leikir
n 2 mörk
n 8 stoðsendingar
2016/2017
n 24 leikir
n 1 mark
n 3 stoðsendingar
Samtals
n 150 leikir
n 9 mörk
n 20 stoðsendingar
Uppáhaldsleikir
„Sigur á útivelli gegn Liverpool,
þegar ég skoraði á heimavelli
gegn Manchester City. Það var
skemmtilegt augnablik gegn
ótrúlegu fótboltaliði. Fyrsti
leikurinn á Old Trafford gegn
Manchester United, það var
stórt fyrir stuðningsmann
Manchester United. Að spila
þar er alltaf eitthvað sérstakt.“
Jóhann Berg
Guðmundsson
n Aldur: 31 árs
n Uppeldisklúbbur: Breiðablik
n Félög í atvinnumennsku: AZ
Alkmaar, Charlton Burnley
n Landsleikir: 81
Fólkið lifir fyrir fótbolta
Burnley er lítið samfélag sem telur
aðeins rúmlega 70 þúsund íbúa,
rúmlega 20 þúsund af þeim mæta
á hvern einasta leik liðsins í ensku
úrvalsdeildinni. „Fólkið lifir fyrir
fótboltann. Það vinnur virka daga
frá níu til fimm og fer svo á völlinn
á laugardögum. Það gefur bænum
gríðarlega mikið að eiga lið í ensku
úrvalsdeildinni. Þetta eru forrétt-
indi, það er gaman að sjá hvað þetta
gefur samfélaginu mikið. Við höfum
reynt að gefa samfélaginu mikið til
baka en það hefur verið erfitt undan-
farið út af Covid.“
Draumur flestra krakka sem æfa
fótbolta er að spila í stærstu deild
í heimi. Jóhann segist hafa lært að
meta það meira í hvaða stöðu hann
er í eftir því sem árin líða. „Þetta eru
algjör forréttindi. Maður þarf oft að
minna sig á í hvaða stöðu maður er.
Þegar maður er að tuða og væla yfir
einhverjum hlutum þá þarf maður
að minna sig á í hvaða stöðu maður
er.
Ég er að spila í erfiðustu og bestu
deild í Evrópu að mínu mati. Hver
einasti leikur er gríðarlega erfiður,
hver einasta mínúta er erfið og sér-
staklega fyrir lið eins og Burnley.
En þegar það gengur vel, þá er þetta
skemmtilegast í heimi.
Maður tók þessu kannski sem
sjálfsögðum hlut en í dag veit ég að
það er ekkert sjálfsagt að vera í þess-
ari deild svona lengi. Maður þarf að
minna sig á þetta, ég hef lagt mikið á
mig og þetta hefur tekið mikið á. Það
er gaman að sjá að allt sem maður
gerði fyrir þennan tíma skilaði sér.
Markmiðið sem ungur drengur var
alltaf að komast á þennan stað sem
ég er á í dag og ég er stoltur af því að
það tókst.“
Eru að finna taktinn
Burnley hefur í síðustu leikjum verið
að finna taktinn og fengið fimm stig
í þremur síðustu leikjum. Liðið er
þó áfram í fallsæti aðeins tveimur
stigum frá öruggu sæti. „Mér finnst
við ekki hafa spilað illa á þessu tíma-
bili. Við höfum þó verið að hleypa
inn fleiri mörkum en vanalega. Yfir-
leitt þegar við komust yfir þá höfum
unnið þá leiki. Það hefur ekki verið
að ganga í ár og við þurfum að laga
það. Við erum að finna gott jafnvægi
í liðinu, erum að skora meira en við
þurfum að bæta varnarleikinn.“ n
Markmiðið
frá unga aldri varð
að veruleika
FréttAbLAðið/getty
42 Íþróttir 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGUR