Fréttablaðið - 26.11.2021, Qupperneq 70
Reykjavíkurflugvöllur er í
raun stærstu stríðsminj-
arnar og minnisvarði um
þennan tíma á höfuð-
borgarsvæðinu.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Elsku besta mamma okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
Ellen Marie Sveins
Hrafnistu, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum Fossvogi,
miðvikudaginn 17. nóvember.
Útför fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
mánudaginn 29. nóvember kl. 13.00.
Gestir eru beðnir um að framvísa niðurstöðu um
neikvætt Covid-hraðpróf við innganginn, sem tekið er á
viðurkenndum stöðum og er ekki eldra en 48 klst. gamalt.
Útförin verður einnig í streymi á slóðinni:
https://youtu.be/UHR-uC-bX8U
Þorbjörg Rósa
Guðrún Ásta og Guðmundur
Sveindís Anna og Arnar
ömmubörn og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ingvar Daníel Eiríksson
mjólkurbílstjóri,
lést á Dvalarheimilinu Lundi á Hellu,
sunnudaginn 21. nóvember.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju,
miðvikudaginn 1. desember kl. 14.00.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu geta einungis
nánustu aðstandendur verið viðstaddir.
Streymt verður frá útförinni á www.selfosskirkja.is.
Eygló Jóna Gunnarsdóttir
Eiríkur Ágúst Ingvarsson Ásthildur Óskarsdóttir
Jón Helgi Ingvarsson Ásthildur B. Sigþórsdóttir
Lísa Björg Ingvarsdóttir Sveinn Valtýr Sveinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Um helgina rekur Churchill
klúbburinn ferðir forsætisráð-
herrans á Íslandi frá heimsókn
hans til landsins 1941.
arnartomas@frettabladid.is
Churchill klúbburinn á Íslandi hefur
verið starfræktur frá 2008 og er hugs-
aður sem fræðsluvettvangur um ævi og
störf Winston Churchill. Á laugardag
stendur klúbburinn fyrir fræðsluferð
þar sem umsvif breska hernámsliðsins
og síðar bandaríska setuliðsins verða
í forgrunni. Þá verður einnig farið á
þær slóðir þar sem Churchill fór um
þann dagpart sem hann hafði viðdvöl á
stríðsárunum.
„Það er núna áttatíu ára afmælisár
heimsóknar Churchill til Íslands,“ segir
Friðþór Eydal, fyrrverandi blaðafulltrúi
Varnarliðsins, sem verður með leiðsögn í
ferðinni. „Af því tilefni hef ég verið með
leiðsögn fyrir hóp á vegum klúbbsins,
bæði austur í Kaldaðarnes þar sem flug-
völlurinn var og upp í Hvalfjörð, sem ég
hef ritað bók um.“
Um helgina er fyrirhugað að fara
um höfuðborgarsvæðið, Nauthólsvík,
Reykjavíkurf lugvöll, Valhúsahæð og
upp í Mosfellssveit þar sem Friðþór mun
fræða gesti um hvað herliðið var að gera
og í hvaða tilgangi.
Aðspurður um hvort einhver kenni-
leiti séu á leiðinni sem fólk átti sig
kannski ekki á að séu stríðsminjar, segir
Friðþór að ekki sé mikið um það lengur.
„Það er ekki mikið um það í byggð í
dag, því hún hefur teygt sig yfir nánast
öll þessi svæði sem voru undir hernum
á þessum tíma,“ segir hann. „En Reykja-
víkurflugvöllur er í raun stærstu stríðs-
minjarnar og minnisvarði um þennan
tíma á höfuðborgarsvæðinu.“
Þá segir Friðþór að á ýmsum stöðum
í kringum borgina megi finna ýmis
mannvirki, eins og til dæmis í Öskju-
hlíðinni, og braggana við Nauthólsvík,
en ferðin mun einmitt enda í Bragganum
í Nauthólsvík.
„Þar ætlum við að segja sögu Hótel
Winston sem þar reis í lok stríðsins
og var f lugvallarhótel í nokkur ár,
sem bragginn frægi var hluti af,“ segir
Friðþór. Þar verður einnig fyrirlestur
um bókina Vítislogar, heimur í stríði
1939-1945 eftir Max Hastings, sem er
nýútkomin í íslenskri þýðingu og lýsir
persónulegum afleiðingum styrjaldar-
innar. n
Áttatíu ára slóðir Churchill
Friðþór segir að í dag hafi byggð teygt sig yfir nánast öll þau svæði sem voru undir hernum á sínum tíma. mynd/aðsend
Winston Churchill á sér víða áhugamenn.
Merkisatburðir
399 Sirikíus páfi deyr.
783 Adosinda, drottningu Asturias, er haldið í gíslingu
í klaustri til að koma í veg fyrir að ætt hennar taki
konungsstólinn aftur af valdaræningjanum Maure
gatus.
1594 Tilskipun er gefin út um að Grallarinn, messusöng
bók Guðbrands Þorlákssonar Hólabiskups, skuli
notuð í báðum biskupsdæmum.
1778 James Cook verður fyrsti Evrópumaðurinn til að
heimsækja Maui.
1789 Fyrsti opinberi þakkargjörðarhátíðardagurinn
fer fram í Bandaríkjunum eftir tilskipun George
Washington forseta.
1825 Háskólanemar stofna Kappa Alpha Society, fyrsta
bandaríska háskólabræðralagið, í Unionháskóla í
Schenectady í New York.
1917 Bandaríska íshokkídeildin, NHL, er stofnuð.
1918 Svartfellska þingið samþykkir innlimun í Serbíu.
1922 Howard Carter og Carnarvon lávarður verða fyrstu
mennirnir í rúm 3.000 ár til að ganga inn í grafhýsi
Tútankamons faraós.
1942 Kvikmyndin Casablanca er
frumsýnd í New York.
1981 Dagblaðið og Vísir samein
ast og verða DV.
1981 Skemmtistaðurinn Broad
way við Álfabakka opnaður.
1993 Leikritið Skilaboðaskjóðan
frumsýnt í Þjóðleik
húsinu.
2000 Katherine
Harris, þá
innan
ríkisráðherra
Flórída,
lýsir George
W. Bush
sigurvegara
forsetakosn
inga í ríkinu.
2003 Síðasta flug
Concordeflug
vélarinnar.
arnartomas@frettabladid.is
Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði
verður opnað í dag og verður opið allar
helgar á aðventunni. Þorpið var fyrst
opnað árið 2003 og hefur síðan þá orðið
fastur liður í jóladagskrá margra. Í ár
verða ljósin á jólatrénu tendruð að við-
stöddum fámennum hópi leikskóla-
barna vegna takmarkana.
„Það kom ekkert annað til greina en
að opna,“ segir Andri Ómarsson verk-
efnastjóri viðburða hjá Hafnarfjarð-
arbæ. „Þetta er orðinn ómissandi hluti
af aðventunni fyrir svo marga.“
Í ár verða um tuttugu sölubásar opnir
í þorpinu auk þess sem fastagestir eins
og Grýla og jólasveinarnir munu líta við.
Andri segir þó að jólakjötið eitt helsta
aðdráttarafl þorpsins.
„Það eru margir sem eru að selja sauð-
fjárafurðir hjá okkur og þegar maður er
á vappi í jólaþorpinu þá er mest spurt
um það,“ segir hann. „Svo er alls konar
gott matarkyns, bæði kakó, kruðerí og
skyndibiti sem er líka vinsælt.“
Þorpið verður opið milli klukkan
13.00 og 18.00 allar helgar á aðventu. n
Jólaþorpið í Hafnarfirði opnað í dag
Jólaþorpið var fyrst opnað 2003.
TímamóT FréTTablaðið 26. nóvember 2021 FÖSTUDaGUR