Fréttablaðið - 26.11.2021, Síða 85
4.999 kr.
Sigurverkið
Íslenskur úrsmiður situr í höll
Danakonungs og gerir upp
forna glæsiklukku. Kvöld eitt
rekst sjálfur einvaldurinn,
Kristján sjöundi, inn til hans.
Þeir taka tal saman og svo
fer að úrsmiðurinn rekur fyrir
hátigninni dapurlega sögu
föður síns og fóstru.
5.299 kr.
Náhvít jörð
Á hvítum vetrarmorgni finnst
yfirgefinn flutningagámur
í Rauðhólum við Reykjavík.
Þegar hann er opnaður blasir
hryllingurinn við: fimm lífvana
konur sem augljóslega hafa
verið fluttar í þessum gámi
yfir hafið. Hvernig getur svona
lagað gerst og hverjir standa
að baki þessari óhæfu?
5.299 kr.
Merking
Skáldsagan Merking er
margradda verk sem fjallar
um afstöðu og pólaríseringu,
fordóma og samkennd.
Þjóðin er klofin í afstöðu
sinni til samkenndarprófsins,
byltingarkenndrar tækni
sem spáð getur fyrir um
andfélagslega hegðun; annar
helmingurinn vill öruggara
samfélag, hinn vill réttlátt
samfélag.
5.299 kr.
Sprakkar
Konur á ólíkum sviðum
þjóðlífsins koma víða við í
spjalli um stöðu kynjanna,
atvinnulífið, móðurhlutverkið
og ótalmargt fleira. Brugðið er
upp litríkri mynd af íslensku
nútímasamfélagi, kostum
þess og göllum, og rýnt í
það sem enn er óunnið í
jafnréttismálum.
3.899 kr.
Þín eigin ráðgáta
Þín eigin ráðgáta er öðruvísi
en aðrar bækur. Hér ert
þú söguhetjan og stjórnar
ferðinni. Einn daginn
vaknarðu og ekkert er eins og
áður. Allir símar eru ónýtir.
Samfélagsmiðlar eru hættir að
virka. Tölvuleikir hafa þurrkast
út. Hvað í ósköpunum gerðist?
5.299 kr.
Systu megin
Systa býr ein í kjallarakompu
við bágar aðstæður en hún
ræður sér sjálf. Hún hefur
losað sig að mestu undan
ægivaldi Mömmu eins og Brósi,
bróðir hennar og bandamaður.
Þau hafa tekist á við harðan
heim en valið hvort sína leið,
Brósi innan samfélagsins,
Systa utan þess.
3.999 kr.
ADHD: Bannað að
eyðileggja
Alexander Daníel Hermann
Dawidsson er með ADHD en
það er allt í lagi – nema þegar
lífið tekur upp á því að fara
á hvolf. Bannað að eyðileggja
er spennandi saga um
Alexander og Sóleyju
bekkjarsystur hans og litríku
fjölskyldurnar þeirra.
5.299 kr.
Rætur – á æskuslóð
minninga
Rætur birtir nýjar hliðar á
forseta sem flestir telja sig
þekkja vel. Meitluð mynd,
sannfærandi, hreinskilin og
opinská. Hér leitar Ólafur
Ragnar Grímsson upprunans
og svara við fjölmörgum
spurningum. Óvænt bók sem
lengi verður lesin.
5.299 kr.
Sextíu kíló af
kjaftshöggum
Sjálfstætt framhald
verðlaunaskáldsögunnar
Sextíu kíló af sólskini. Sagan
hefst í Segulfirði, árið 1906.
Áfram vindur furðuríku
ferðalagi Íslendinga út úr
myrkum torfgöngum inn í
raflýstar stofur. Lesandinn er
hrifinn með í dans á síldarpalli,
í ólgandi takti sem dunar í
huganum.
5.299 kr.
Bærinn brennur
Árið 1828 myrti Friðrik
bóndasonur í Katadal
nágranna sinn, bóndann og
lækninn Natan Ketilsson á
Illugastöðum í Húnavatnssýslu.
Ráðskona Natans, Sigríður, og
vinnukona hans, Agnes, lögðu
á ráðin með Friðriki.
Nákvæmar yfirheyrslur eru hér
raktar en þær varpa nýju ljósi
á málið.
Lægra verð – léttari innkaup
Bókaðu gleðileg jól
Með því að nýta þér netverslun Nettó
sparar þú þér tíma í jóla amstrinu.
Nýttu tímann frekar í að lesa góða bók.
Úrval bóka er mismikið eftir verslunum.
Jólainnkaupin
hafa aldrei verið eins leikandi létt.
Þú færð jólabækurnar á netto.is