Fréttablaðið - 10.12.2021, Qupperneq 12
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún
Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Þessum
þing-
mönnum
var fyrir-
munað
að standa
með nátt-
úruvernd
vegna
þess að
þeim var
svo mjög
í mun
að koma
höggi á
Guðmund
Inga.
Áföll og
andlegt
álag á borð
við við-
varandi
misrétti
og ofbeldi
geta
stuðlað að
áhættu-
hegðun.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
Brautirnar
eru
fáanlegar
með
mjúklokun
Mikið úrval
rennihurðabrauta frá
Þýsk gæðavara.
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
Hver sá stjórnmálamaður sem
beitir sér fyrir náttúruvernd er
að berjast hinni góðu baráttu.
Honum ætti að þakka inni-
lega í stað þess að hneykslast á
áherslum hans. Þess vegna er það sönn gleði-
fregn að Guðmundur Ingi Guðbrandsson hafi,
á síðasta degi sínum í embætti umhverfisráð-
herra, friðlýst jörðina Dranga á Ströndum. Það
sýnir að honum er verulega annt um náttúru-
perlur þessa lands og beitir áhrifum sínum til
að vernda þær, í stað þess að sitja aðgerðalaus
hjá.
Ekki gerði þessi góða gjörð þó alls staðar
lukku. Til dæmis ekki hjá Miðflokknum. Þing-
menn þess flokks, eða það sem er eftir af þeim,
sáu ástæðu til að kveðja sér hljóðs á Alþingi til
að froðufella vegna ákvörðunar Guðmundar
Inga. Ekki kom það á óvart. Þingmenn Mið-
flokksins hafa alveg einstakt lag á að leggjast
gegn góðum málstað.
Hitt vekur meiri furðu, að hluti stjórnarand-
stöðunnar ákvað að stilla sér upp við hliðina á
Miðflokknum, þar á meðal þingmenn Samfylk-
ingarinnar og Viðreisnar. Þessir tveir flokkar
eiga, eins og alkunna er, í töluvert mikilli
tilvistarkreppu. Sú vonda staða hefur greinileg
áhrif á einhverja þingmenn þessara flokka, sem
virðast vera orðnir ansi ruglaðir í ríminu. Eða af
hverju tóku þeir upp á því að gagnrýna það sem
þeir hefðu réttilega átt að styðja?
Frammistaða stjórnarandstöðunnar þennan
dag var ansi aum – og er þá vægt til orða tekið.
Ákvörðun Guðmundar Inga, sögðu þingmenn-
irnir, væri dæmi um undarleg vinnubrögð.
Þessum þingmönnum var fyrirmunað að standa
með náttúruvernd vegna þess að þeim var svo
mjög í mun að koma höggi á Guðmund Inga og
vildu um leið reyna að ala á tortryggni innan
ríkisstjórnarinnar. Hluta stjórnarandstöðunnar
fannst sem sagt mikilvægara að steypa sér í
pólitískar skotgrafir en að lýsa yfir stuðningi
við náttúruvernd. Sú forgangsröðun kallar ekki
beinlínis á aðdáun. Það er dapurlegt að horfa
upp á þennan vesældarlega afleik stjórnarand-
stöðunnar. Hún verður að standa sig betur en
þetta ætli hún sér að verða marktæk.
Tómas Guðbjartsson, læknir og ötull náttúru-
verndarsinni, þekkir hina fögru náttúru lands-
ins betur en flestir aðrir og er, eins og margir,
heillaður af hinni einstöku náttúru Stranda.
Hann segir: „Þetta er einhver stórkostlegasta
náttúra sem Ísland hefur upp á að bjóða … Frá-
farandi umhverfisráðherra verður minnst fyrir
stuðning sinn við friðun þessarar náttúruperlu
á meðan hinir gráðugu munu gleymast.“ n
Friðunin
Við fáum oft að heyra að íþróttir séu besta forvörnin,
en er það svo? Við getum aðeins treyst á forvarnar-
gildi íþróttaástundunar þegar jafnrétti ríkir í allri
sinni dýrð. Aðeins þá.
Eðli forvarna er að sporna við hvers konar áhættu-
hegðun, eða hegðun sem gæti dregið úr lífsgæðum og
hamingju. Áföll og andlegt álag á borð við viðvarandi
misrétti og of beldi geta stuðlað að áhættuhegðun og
ýtt undir aðra kvilla á borð við kvíða, brotna sjálfs-
mynd og þunglyndi.
Á meðan #MeToo-bylgjan stóð sem hæst var það
álit fólks að frásagnir af upplifun stúlkna og kvenna
í íþróttum væru hvað mest sláandi. Þar afhjúpaðist
hversu mikið kynjamisréttið hefur verið í gegnum
tíðina.
En átakanlegast fannst mér að lesa um það kyn-
ferðisof beldi sem hefur verið beitt og svo þaggað
niður. Líkt og fram kemur hér að ofan geta slík áföll
orðið algjör andhverfa þess sem forvarnir standa
fyrir.
Í vikunni kom út skýrsla um kynferðislega áreitni
og of beldi innan KSÍ og tillögur starfshóps til úrbóta
innan hreyfingarinnar. Í skýrslunni blasir vandinn
skýrt við og það er ósk mín að þessar tillögur marki
tímabær tímamót í sögu íþrótta á Íslandi.
Í dag, 10.desember, er alþjóðlegur dagur mann-
réttinda og af því tilefni stendur Mannréttindaráð
Reykjavíkurborgar fyrir opinni málstofu um jafn-
rétti í íþróttum í Ráðhúsinu kl.9 - 10.30. Þar verða
kynntar niðurstöður jafnréttisúttektar hverfis-
íþróttafélaga í Reykjavík, rætt um hinsegin fólk
og íþróttir, aðgengi fólks af erlendum uppruna að
íþróttum og fyrrnefnda skýrslu um KSÍ.
Við verðum að nýta þann mikla kraft sem umræða
um kynjamisrétti í íþróttum hefur gefið okkur til
að efla enn frekar forvarnagildi íþrótta, til að við öll
getum stundað þær með þeirri vissu að jafnrétti ríki
þar í öllum birtingarmyndum. n
Eru íþróttir besta
forvörnin?
Diljá
Ámundadóttur
Zoega
situr fyrir hönd
Viðreisnar í
mannréttinda-,
nýsköpunar- og
lýðræðisráði í
Reykjavík
ser@frettabladid.is
Skrýtin byrjun
Hildur Björnsdóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
tilkynnti í fyrradag að hún
sæktist eftir oddavitastöðu
f lokksins í Reykjavík og hygðist
þar með keppa við Eyþór
Arnalds um fyrsta sætið fyrir
borgarstjórnarkosningarnar
á næsta ári. Alvanalegt er að
frambjóðendur láti bera meira
á sér en minna eftir svona
yfirlýsingar og því vakti það
sérstaka athygli í gær, þegar
Hildi bauðst að setjast niður
með Eyþóri á Fréttavaktinni á
Hringbraut, að hún sá sér ekki
fært að mæta. Kannski er þetta
nýtt trix í bókinni …
Vinaóreiðan
Hagsmunaöflin í landinu hafa
verið á ofsafengnum yfirsnún-
ingi síðustu daga, eftir að ein
mesta verkefnatilfærsla innan
íslenskra ráðuneyta var til-
kynnt með viðhöfn af Katrínu
og kó á Kjarvalsstöðum. Og
voru nú góð ráð dýr, því allt
í einu voru uppsöfnuð og árang-
ursrík kynni þrýstihópanna við
lykilfólk í einu ráðuneyti orðin
einskis nýt af því málaflokkur-
inn tilheyrði nú allt öðru húsi
Stjórnarráðsins.
En staðan er þá þessi: Aldrei
hafa eins margir lobbíistar
þurft að eignast jafn marga nýja
vini innan kerfisins og einmitt
núna … n
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 10. desember 2021 FÖSTUDAGUR