Fréttablaðið - 10.12.2021, Síða 14
gegn Úígúrum í sjálfsstjórnarhérað-
inu Xinjiang.
Minnst milljón Úígúrum hefur
verið haldið í sérstökum fanga-
búðum og ásakanir um kerfis-
bundna þrælkunarvinnu, alvarleg
kynferðisbrot og þvingaðar ófrjó-
semisaðgerðir hafa verið viðraðar.
Stjórnvöld í Kína neita ásökunum
sem hafa borist um mannréttinda-
brot í Xinjiang, og Wang Wenbin,
talsmaður utanríkisráðuneytis
Kína, segir að um pólitíska sýndar-
mennsku sé að ræða hjá ríkjunum
sem hafa ákveðið að sniðganga
leikana.
Í svari við fyrirspurn Frétta-
blaðsins um það hvort íslenskir
embættismenn verði viðstaddir
leikana, segir talsmaður utanríkis-
ráðuneytisins að þátttaka íslenskra
fulltrúa yrði miklum vandkvæðum
bundin. „Fyrir liggur að þátttaka
fulltrúa íslenskra stjórnvalda á
Ólympíuleikunum í Peking yrði
miklum vandkvæðum bundin og
er afar ólíkleg sökum strangra sótt-
varnarkrafna og mikils umstangs
og tilkostnaðar sem fælist í slíku
ferðalagi“.
Ráðuneytið segir Íslensk stjórn-
völd hafa ítrekað gagnrýnt fram-
göngu kínverskra stjórnvalda
í Xingjiang-héraði á vettvangi
alþjóðastofnana og í tvíhliða sam-
skiptum við Kína.
„Íslensk stjórnvöld fylgjast því
ákaf lega vel með þeirri umræðu
sem á sér stað um sniðgöngu á
grundvelli framgöngu Kína í mann-
réttindamálum. Nokkur lönd hafa
nú þegar ákveðið að senda ekki full-
trúa stjórnvalda á leikana af þessum
sökum. Íslensk stjórnvöld eiga í
nánu samstarfi og samráði við sín
helstu samstarfsríki um þetta mál-
efni, eins og jafnan um alþjóðleg
mannréttindamál.“
Stjórnvöld í Kína höfðu áður
varað Bandaríkin við að grípa til
þess ráðs að senda ekki embættis-
menn á leikana, það myndi koma
í bakið á ríkinu. Keppendur frá
Bandaríkjunum munu hins vegar
taka þátt á leikunum, samkvæmt
þeim upplýsingum sem hingað til
hafa borist.
Í svari utanríkisráðuneytis-
ins segir jafnframt að það sé ósk
íslenskra stjórnvalda að leikarnir
geti farið fram í nafni þess sem
sameini okkur öll og með þátttöku
íþróttafólks hvaðanæva að úr heim-
inum.
„Ólympíuleikarnir eru tákn um
frið og samvinnu, þar sem fólk frá
ýmsum þjóðum fagnar því sem er
okkur öllum sameiginlegt óháð
pólitískum deilum og þrætum. Þeir
hafa það hlutverk að sýna fram á það
besta sem einstaklingar og hópar
einstaklinga hafa fram að færa.“ n
Það er ósk íslenskra
stjórnvalda að leik-
arnir geti farið fram í
nafni þess sem sam-
einar okkur öll.
Utanríkisráðuneytið
hjorvaro@frettabladid.is
FÓTBOLTI Tilkynnt var á miðviku-
daginn að Sif Atladóttir, landsliðs-
kona í fótbolta, hafi ákveðið að
leika undir stjórn eiginmanns síns,
Björns Sigurbjörnssonar, hjá Sel-
fossi á komandi keppnistímabili.
Sif kemur á Selfoss frá Kristianstad
í Svíþjóð, þar sem hún hefur leikið
síðasta áratuginn um það bil.
„Það voru nokkur félög, bæði í
efstu og næstefstu deild, sem höfðu
samband við mig eftir að ég gaf það
út að ég væri á leiðinni heim. Ég var
alveg hreinskilin við þau félög sem
ég ræddi við um að það þyrfti allt
að ganga upp varðandi fjölskyldu-
hagi og fótboltann til þess að ég
gæti samið þar. Þegar ég velti öllu
því sem var í boði fyrir mér þá leist
mér best á Selfoss og ég er bara virki-
lega ánægð með þá ákvörðun. Það er
þægilegt að vera búin að taka þessa
ákvörðun og nú tekur bara við að
pakka búslóðinni og koma okkur
heim. Stefnan er að vera komin
heim 18. desember og byrja að æfa
með liðinu í kjölfarið,“ segir Sif um
vistaskiptin.
Spennandi ár fram undan
„Það er spennandi tilhugsun að vera
að fara að spila aftur heima eftir tólf
ára veru erlendis. Markmiðið hjá
mér persónulega er að koma mér í
gott líkamlegt form og halda sæti
mínu í landsliðinu, þar sem eru
mjög spennandi verkefni á næsta
ári, bæði í riðlinum í undankeppni
HM og svo lokakeppni Evrópu-
mótsins næsta sumar. Ég er líka
spennt fyrir því að minna á mig
þar sem margir hafa kannski bara
séð mig með landsliðinu síðustu
árin en minna með félagsliðunum,“
segir varnarmaðurinn þrautreyndi,
sem lék með Val, Þrótti, FH og KR
á Íslandi áður en hún fór utan til
Þýskalands þar sem hún spilaði í
tvö ár.
„Það er gaman að sjá að Barbára
Sól Gísladóttir ætli að taka slaginn
með Selfossi næsta sumar og ég
hlakka til að vinna með henni í
varnarlínunni og reyna að miðla
af reynslu minni til hennar og ann-
arra ungra og efnilegra leikmanna
sem eru í leikmannahópnum. Mark-
miðið á Selfossi er að gera betur en á
síðustu leiktíð,“ segir hún um kom-
andi tíma við bakka Ölfusár.
„Það er frábær aðstaða á Selfossi
og haldið hefur verið vel utan um
kvennastarfið hjá félaginu þar. Í
viðræðum mínum við önnur félög
var líka spennandi að sjá metnaðinn
fyrir kvennafótboltanum þar og ég
finn það áþreifanlega að það séu
spennandi tímar handan við hornið
í íslenskum fótbolta kvennamegin,“
segir Sif um framhaldið. n
Sif spennt fyrir því að minna á sig á íslenskri grund
Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfa
dóttir, utanríkis
ráðherra
aron@frettabladid.is
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um það hvort embættismenn á
vegum íslenskra stjórnvalda sæki
Vetrarólympíuleikana sem fara
fram í Peking í Kína á næsta ári.
Stjórnvöld nokkurra ríkja, þar með
talið Bandaríkjanna og Bretlands,
hafa greint frá ákvörðun sinni um
að senda ekki embættismenn á
leikana. Um er að ræða táknræn
mótmæli ríkjanna við bága stöðu
mannréttinda í Kína. Þá sérstak-
lega í tengslum við að Kínverjar hafa
verið sakaðir um mannréttindabrot
Íslensk stjórnvöld segjast
ítrekað hafa gagnrýnt fram-
göngu kínverskra stjórnvalda
í Xinjiang-héraði en ekki
hefur verið tekin ákvörðun
um það hvort embættismenn
á vegum íslenskra stjórnvalda
sæki Vetrarólympíuleikana
sem fara fram í Peking í Kína
á næsta ári
Frá setningar
athöfn Vetraról
ympíuleikanna í
Sochi í Rússlandi
árið 2014.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
14 Íþróttir 10. desember 2021 FÖSTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 10. desember 2021 FÖSTUDAGUR
Óvíst hvort embættismenn fara til Peking
Sif á að baki 84 leiki fyrir íslenska landsliðið. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI