Fréttablaðið - 10.12.2021, Síða 34
Okkur fannst
Ísland vanta sér
íslenskar ofurhetjur sem
væru með krafta sem
tengdust mögnuðu
íslensku náttúrunni.
Úlfar Konráð Svansson
Höfundar myndasögu-
bókanna um Landverðina
fannst vanta íslenskar ofur-
hetjur. Í nýjustu bókinni
birtist nýjasti meðlimur
teymisins sem er Íra, en
hún hefur ofurkrafta hins
íslenska íss.
Nýlega kom út önnur bókin í
myndasöguflokknum um Land-
varðateymið, sem ber heitið Land-
verðirnir: Íra. Í fyrri bókinni voru
Atlas, sem hefur krafta íslenska
vatnsins, og Avion, sem hefur
krafta íslenska vindsins, kynntir
til sögunnar en nú bætist þriðja
ofurhetjan við sem er Íra. Um er að
ræða íslenskar teiknimyndasögur
úr smiðju þeirra Dags Lárussonar,
Úlfars Konráðs Svanssonar og
Fannars Georgs Gilbertssonar, auk
þess sem þeir nutu aðstoðar Ísold-
ar Ellingsen Davíðsdóttur við gerð
nýju bókarinnar, en hún aðstoðaði
Fannar við að lita bókina.
„Í þessari annarri bók um Land-
verðina fáum við að kynnast henni
Íru, sem virðist í fyrstu vera venju-
lega unglingsstelpa en reynist
svo vera með ofurkrafta, krafta
hins íslenska íss, en kann ekki að
nota þá. Einn daginn hittir hún þá
Atlas og Avion og eftir það verður
líf hennar aldrei eins. Í kjölfarið
þarf Íra að ákveða hver hún eigi að
vera í raun og veru. Vill hún vera
venjuleg unglingsstelpa eða nýjasti
meðlimur Landvarðateymisins
sem berst gegn Azar og Hamfara-
teymi hans,“ segir Dagur.
Dagur og Úlfar eru rithöf-
undar bókanna en Fannar teiknar
myndirnar.
Vantaði íslenskar ofurhetjur
Úlfar segir hugmyndaheim Land-
varðanna fyrst og fremst spretta
upp úr sameiginlegum nördaskap
þeirra. „Okkur fannst Ísland vanta
séríslenskar ofurhetjur sem væru
með krafta sem tengdust mögnuðu
íslensku náttúrunni. Ísland er
meðal annars þekkt fyrir ísinn,
eldinn og vindinn og þess vegna
ákváðum við að leika okkur aðeins
með það. En fyrst og fremst vildum
við skapa ofurhetjur sem gera
öðrum gott, ekki bara í bókunum,
heldur líka í alvörunni og þess
vegna létum við búa til búninga út
frá karakterunum sem við höfum
notað þegar við höfum farið til
dæmis í heimsókna á Barnaspítala
Hringsins og fleiri staði.“
Ánægðir með viðtökurnar
Fyrsta bókin fékk virkilega góðar
viðtökur að sögn Fannars og voru
þeir mjög ánægðir með sölu henn-
ar. „Við seldum á milli 400 og 500
Góðhjarta ofurhetjur nýta krafta náttúrunnar
Úlfar Konráð Svansson, Fannar Georg Gilbertsson og Dagur Lárusson eru höfundar Landvarðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Landverðirnir: Íra, er önnur bókin í
flokknum um Landverðina.
Dagur Lárusson
með grímuna
sem tilheyrir
karakternum
Avion úr bókum
Landvarðanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
eintök af bókinni sem er nokkuð
gott og það þýddi einmitt að við
gátum gefið Barnaspítalanum
hálfa milljón króna. Okkur fannst
nefnilega skilaboðin okkar með
þessum bókum og ofurhetjum
vera þau að við viljum hvetja fólk
til þess að gera öðrum gott, vegna
þess að það er það besta sem við
gerum. Núna stefnum við hins
vegar á að selja fleiri bækur og við
værum til í að geta gefið spítal-
anum heila milljón. Það væri algjör
draumur, en til þess þarf auðvitað
margt að ganga upp.“ n
Hægt er að fylgjast með ævintýr-
um Landvarðanna á landverdirnir.
is, á Facebook (Landverðirnir) og
Instagram (landverdirofficial).
Mikið úrval og gott verð. Kíktu við á Laugavegi 18.
Opið alla daga frá klukkan 10–20.
16 kynningarblað 10. desember 2021 FÖSTUDAGURBÓK AJÓL