Fréttablaðið - 10.12.2021, Page 37

Fréttablaðið - 10.12.2021, Page 37
Þjóðararfurinn•Hátíðarútgáfa Íslendingasögur og þættir í nýrri og glæsilegri fimm binda heildarútgáfu Ritstjórar útgáfunnar eru Aðalsteinn Eyþórsson, Bragi Halldórsson, Jón Torfason, Sverrir Tómasson og Örnólfur Thorsson. Útgáfan er myndskteytt af dönsku listakonunni Karin Birgitte Lund. Útgáfan er aðgengileg og læsileg, sögurnar 40 og þættirnir 51 eru á nútímastafsetningu og þeim fylgja ítarlegir formál- ar sem greiða götur um veröld sagnanna, vandaðar orðskýr- ingar, vísnaskýringar og nafnaskrá auk greina og mynda sem varpa ljósi á húsakost og híbýli, skip og siglingar, vopn og verjur. Þá fylgir útgáfunni sagnalykill sem nýtist þeim sem vilja skyggnast dýpra í sagnaheiminn, skoða sambærilega þætti í fleiri en einni sögu, hvort sem áhuginn beinist að bardögum og vígum, haugum, dysjum og helgum fjöllum eða útræði og hlunn- indum, aflraunum og líkamsburðum eða draugum og reim- leikum, svo nokkur dæmi séu nefnd. Bækurnar fimm eru einstaklega vandaðir prentgripir. Jólatilboð - Forlagsverð vinland@centrum.is • sími: 8322555 • 8937719 „Íslendingasögurnar eru úrvals- verk heimsbókmenntanna og fá enn nýtt líf í þessari vönduðu útgáfu Saga forlagsins. Þær hafa öllu öðru fremur skapað og styrkt vitund Íslendinga sem þjóðar við útmörk Evrópu og verið okkur sið- ferðislegur leiðarvísir og vísidóms- brunnur. Enn eru þær sístarfandi að mótun okkar og mikilvægi þeirra er augljóst á hvaða tímum sem er - og kannski sérstaklega nú á okkar dögum.“ Arnaldur Indriðason „Oft er talað hátíðlega um sög- urnar sem krúnudjásn íslenskrar menningar. Það má til sanns vegar færa en um leið eru þær fyrst og fremst óslítanleg ígangsklæði sem aldrei fara úr tísku. Hér er allt til staðar, dramatík, spenna, speki, húmor, djúpur mannskilningur og magnaðar stemmningar. Íslend- ingasögurnar koma æ meir á óvart því oftar sem þær eru lesnar. Þórarinn Eldjárn „Íslendingasögurnar bjóða okkur að setjast við fótskör formæðra okkar og forfeðra þar sem við heyrum þau sjálf segja frá sigrum sínum og sorgum, vonum og ótta. Enn berst þaðan hvinur af sverðum og gustur hnífbeittra orða.“ Gerður Kristný

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.