Fréttablaðið - 10.12.2021, Síða 37
Þjóðararfurinn•Hátíðarútgáfa
Íslendingasögur og þættir
í nýrri og glæsilegri fimm binda heildarútgáfu
Ritstjórar útgáfunnar eru Aðalsteinn Eyþórsson, Bragi Halldórsson, Jón Torfason, Sverrir Tómasson og Örnólfur Thorsson.
Útgáfan er myndskteytt af dönsku listakonunni Karin Birgitte Lund.
Útgáfan er aðgengileg og læsileg, sögurnar 40 og þættirnir
51 eru á nútímastafsetningu og þeim fylgja ítarlegir formál-
ar sem greiða götur um veröld sagnanna, vandaðar orðskýr-
ingar, vísnaskýringar og nafnaskrá auk greina og mynda
sem varpa ljósi á húsakost og híbýli, skip og siglingar, vopn
og verjur. Þá fylgir útgáfunni
sagnalykill sem nýtist þeim sem vilja skyggnast dýpra í
sagnaheiminn, skoða sambærilega þætti í fleiri en einni
sögu, hvort sem áhuginn beinist að bardögum og vígum,
haugum, dysjum og helgum fjöllum eða útræði og hlunn-
indum, aflraunum og líkamsburðum eða draugum og reim-
leikum, svo nokkur dæmi séu nefnd.
Bækurnar fimm eru einstaklega vandaðir prentgripir.
Jólatilboð - Forlagsverð
vinland@centrum.is • sími: 8322555 • 8937719
„Íslendingasögurnar eru úrvals-
verk heimsbókmenntanna og
fá enn nýtt líf í þessari vönduðu
útgáfu Saga forlagsins. Þær hafa
öllu öðru fremur skapað og styrkt
vitund Íslendinga sem þjóðar við
útmörk Evrópu og verið okkur sið-
ferðislegur leiðarvísir og vísidóms-
brunnur. Enn eru þær sístarfandi að
mótun okkar og mikilvægi þeirra
er augljóst á hvaða tímum sem er -
og kannski sérstaklega nú á okkar
dögum.“
Arnaldur Indriðason
„Oft er talað hátíðlega um sög-
urnar sem krúnudjásn íslenskrar
menningar. Það má til sanns vegar
færa en um leið eru þær fyrst og
fremst óslítanleg ígangsklæði sem
aldrei fara úr tísku. Hér er allt til
staðar, dramatík, spenna, speki,
húmor, djúpur mannskilningur og
magnaðar stemmningar. Íslend-
ingasögurnar koma æ meir á óvart
því oftar sem þær eru lesnar.
Þórarinn Eldjárn
„Íslendingasögurnar bjóða okkur
að setjast við fótskör formæðra okkar
og forfeðra þar sem við heyrum þau sjálf
segja frá sigrum sínum og sorgum, vonum
og ótta. Enn berst þaðan hvinur af sverðum og
gustur hnífbeittra orða.“
Gerður Kristný