Fréttablaðið - 10.12.2021, Page 48
Berglind Guðmundsdóttir
sælkeri, lífskúnstner og
köku- og matarbloggari er
eigandi bloggsíðunnar Gulur,
rauður, grænn og salt, sem
á næsta ári fagnar tíu ára
afmæli sínu.
sjofn@frettabladid.is
„Ég er hrikalega stolt af síðunni
minni sem ég fæ ósjaldan að heyra
að bjargi eldamennsku margra
heimila á landinu,“ segir Berglind
og hlær. Sjálfri finnst henni allt
sem tengist mat vera jákvætt og
lífið snúist í raun um að njóta góðs
matar.
Berglind er mikið aðventubarn
og kann svo sannarlega að njóta
lífsins í desember samhliða öllum
þeim verkefnum sem hún tekur sér
fyrir hendur.
Hvernig lítur desembermánuður
út hjá þér, ertu búin að skipuleggja
allt?
„Já, það er í nægu að snúast, en þó
er ég hætt að hafa of mikið að gera.
Ég stýri mínum verkefnum vel svo
ég ráði vel við allt en passa líka upp
á hvíldina. Jafnvægi er lykilorð í
mínu lífi.“
Berglind segir að nóvember og
desember séu stórir mánuðir í
matarbransanum. „Og jú, reyndar
janúar líka, þetta eru allt stórir
mánuðir í matarbransanum. Ég
er með mörg matartengd verkefni
bæði fyrir GRGS.is og svo einnig
fjölbreytt verkefni fyrir Insta
gram gulurraudurgraennogsalt. Á
Instagram fæ ég að leika mér með
umfjallanir um mat, snyrtivörur,
heimilisvörur, bætiefni, hárvörur,
fatnað og svo margt annað sem
snýr að mínum áhuga.
Kjólaleikur
Talandi um það þá var ég að byrja
með Kjóladagatal GRGS sem verður
frá 1.24. desember. Nýr dagur – nýr
kjóll. Ég var með þetta í fyrra og
það vakti svo mikla lukku að ég
ætla að endurtaka leikinn. Ég er
forfallinn kjólafíkill og ef hann er
með tjulli eða pallíettum þá er ég
til. Því meiri glamúr því betra. Þetta
er hins vegar mjög ópraktískt þar
sem ég vinn heima flesta dagana og
er þá bara á joggaranum í ullar
sokkum. Daginn sem mér verður
boðið á rauða dregilinn – þá verð ég
tilbúin.“
Mæðgurnar með TikTok-þætti
Verkefni Berglindar eru mörg og
ólík. „Önnur verkefni í desember
eru upptökur fyrir Uppkast, sem
er ný streymisveita, en þar fæ ég
að leika mér og gera mínar uppá
haldsuppskriftir. Í þáttunum fæ ég
til mín matgæðinga sem elda sína
uppáhaldsrétti, ég elda jólaupp
skriftir þar sem ég meðal annars
kenni landanum að gera skot
heldar Sörur. Svo erum ég og Áslaug
dóttir mín með TikTokþætti þar
sem við eldum öruppskriftir sem
henta börnum sérstaklega vel til að
spreyta sig í eldhúsinu. Í desember
hefjast svo tökur á heilsuréttum og
þeir þættir birtast í janúar.“ Að auki
er Berglind hjúkrunarfræðingur.
„Þannig að ég hef verið að kíkja
niður í höll af og til og bólusetja
landann og hef svo gaman af því. Ég
vinn mjög mikið ein svo mér finnst
þetta vera eins og að koma í sauma
klúbb að hitta hinar hjúkkurnar og
spjalla smá. Best að nota tækifærið
og kasta á þær kveðju: „Stelpur, þið
eruð algjörar hetjur!“
Segðu aðeins frá jólabarninu í
þér.
„Ég er eiginlega meira aðventu
barn en jólabarn. Ég elska aðvent
una og er ein af þessum óþolandi
týpum sem byrja frekar snemma að
hlusta á jólalög og svo er himneskt
að labba um miðbæinn á þessum
árstíma og fá sér gott að borða
í góðum félagsskap. Eftir að ég
skildi þá finnst mér stundum þessi
árstími smá erfiður. Börnin eru
hjá mér og pabba sínum til skiptis
og alls konar tilfinningar tengdar
jólunum sem eru ekki bara happy
jolly. Ég hef prófað að vera ein á
aðfangadag, fjölskyldu og vinum til
mikils hryllings, því mig langaði að
vita hvernig sú tilfinning væri. Það
var bara algjörlega dásamlegt og þá
vissi ég að ég væri komin á góðan
stað. Ef maður unir sér einn, þá eru
manni allir vegir færir.“
Kökurnar innsiglaðar
Áttu einhverjar minningar tengdar
bakstri frá bernskuárum þínum?
„Það sem kemur fyrst upp í
hugann var hversu vel geymdar
kökurnar voru. Það var bakað og
innsiglað og geymt fram að jólum.
Mjög spes. Ég kann betur að meta
frjálsræðið sem ríkir í dag.“
Áttu þér einhverja fallega minn-
ingu bak við matarástríðu þína í
áranna rás?
„Já, þegar ég bauð mínum bestu
vinkonum heim og við bökuðum
saman Sörur og vorum að njóta
saman. Svona hefð sem mig langar
að halda í en hefur verið frestað út
af sottlu.“
Kúlugottið setti allt á hliðina
Þegar Berglind er beðin um að
deila með lesendum uppáhalds
jólasmákökuuppskrift er hún ekki
lengi að hugsa sig um. „Ég er ekki
mikið fyrir að flækja hlutina þegar
kemur að bakstri og mér dettur
strax í hug Kúlugottið dásamlega.
Það er bara það allra besta í heimi.
Ekki beint smákökur en svona
nammikúlur. Einu sinni byrjað og
þú getur ekki hætt. Það besta er að
það eru fá hráefni, þú skellir öllu í
hrærivélina og húðar með súkku
laði. Málið dautt og úr verður
heimsins besta nammi.“
Er einhver saga bak við upp-
skriftina?
„Þegar ég gaf út mína fyrstu
matreiðslubók Fljótlegir réttir fyrir
sælkera (hún er því miður uppseld)
þá var ég nýbyrjuð með GRGS og
langaði að prufa að gefa hana út
sjálf. Það er gífurleg vinna að gefa
út bók sjálfur en ég lærði fullt af
þeirri reynslu. Á þessum tíma vissi
enginn hvað Gulur, rauður, grænn
og salt var svo ég þurfti að vera
dugleg að koma mér á framfæri.
Ég mætti í fullt af fyrirtækjum
með Kúlugottið í för og seldi ófáar
bækurnar út á þessa snilld. Ég vissi
að þegar fólk tæki fyrsta bitann þá
væri ein bók seld. Þannig að það
má þakka Kúlugottinu fyrir það að
bókin er ófáanleg í dag. Reyndar
seldi ég óvart eintakið mitt líka
þannig að ég á ekki þessa bók, sem
er smá skellur, svo ef einhver er
með eintak af Fljótlegum réttum
fyrir sælkera sem sá hinn sami vill
losna við, þá má sá hinn sami hafa
samband. Að lokum vil ég panta
púðursnjó á aðfangadag. Annað
var það ekki.“
Kúlugott
U.þ.b. 35 litlar kúlur
Bökunartími 20 mínútur
260 g hnetusmjör
50 g Rice Krispies
300 g flórsykur
30 g smjör, brætt
300 g suðusúkkulaði
Látið öll hráefnin saman í hrærivél
og hrærið þar til allt hefur blandast
vel saman. Hnetusmjör hefur
mismunandi áferð þannig að ef
kúlurnar eru of blautar bætið þá
meiri flórsykri saman við, ef þær
eru of þurrar, bætið meira hnetu
smjöri saman við. Hnoðið litlar
kúlur úr deiginu. Dýfið þeim í brætt
súkkulaðið og geymið á ofn
plötu hulinni smjörpappír þar til
súkkulaðið hefur harðnað lítillega.
Geymið í kæli eða frysti og laumist í
þær eftir löngun. n
Leikur á aðventu – nýr dagur og nýr kjóll
Kúlugottið hennar Berglindar sem gerði allt vitlaust.
Berglind Guðmundsdóttir skiptir um kjól á hverjum degi í desember og fylgjendur hennar á Instagram fá að fylgjast með.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Áhugasamir auglýsendur hafi samband við:
Sími 550 5078 / serblod@frettabladid.is
Fimmtudaginn 30. desember mun sérblaðið Heilsa fylgja Fréttablaðinu.
Fjallað er um allt sem viðkemur bættri heilsu.
Í blaðinu verða áhugaverð viðtöl og fróðleiksmolar sem unnið er af blaðamönnum
Fréttablaðsins.
Boðið er upp á auglýsingapláss í blaðinu af öllum stærðum og gerðum.
Einnig er hægt að fá kynningarumfjöllun sem unnin er af blaðamanni Fréttablaðsins.
Pantanir og skil á auglýsingum er til og með 29. desember.
Kynningarumfjallanir þarf að panta í síðasta lagi miðvikudaginn 22. desember.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
HEILSA
6 kynningarblað A L LT 10. desember 2021 FÖSTUDAGUR