Fréttablaðið - 10.12.2021, Qupperneq 62
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Ég ákvað að læra sjálf á
gítar til að hækka
aðeins standardinn.
ninarichter@frettabladid.is
Auður Ingólfsdóttir var búin að
kaupa sér flugmiða til Kaupmanna-
hafnar, aðra leiðina, þegar örlögin
gripu fram fyrir hendurnar á henni
og leiddu hana á Sauðárkrók, þar
sem hún unir hag sínum jafnvel
betur en hún hefði gert í Köben.
Hún á íbúð í Reykjavík en segir
húsnæðisverðið á Sauðárkróki
margfalt lægra en í borginni og því
takist henni í dag að borga lánin af
íbúðinni hraðar en áður.
„Ég var síðan fljót að komast inn
í samfélagið, ég er ekki sammála
því sem sumir segja, að það sé endi-
lega erfitt. Ég á fullt af vinum hérna
núna,“ segir Auður, sem f lutti á
Sauðárkrók í byrjun september.
Hún kveðst þó hafa þekkt aðeins til
og kynnst vinum vina sinna í pláss-
inu. „Ef maður hefur engin tengsl er
þetta kannski meira vesen,“ bætir
hún við.
Að sögn Auðar er þetta í fyrsta
sinn sem hún býr í smærra plássi
en segist þó hafa nóg fyrir stafni.
„Ég var þreytt á að vera í Reykjavík
að gera endalaust það sama,“ segir
hún. „Hér get ég verið að smíða og
gera upp húsgögn. Ég get gert það
bæði í Endurnýtingarmiðstöðinni
á Hofsósi og líka í Fab Lab, en þar
eru til dæmis prentari og skurðar-
vélar,“ segir Auður. Hún bætir við
að hún geti nýtt aðstöðuna sér að
kostnaðarlausu. „Ég myndi ekki
hafa þetta í bænum,“ segir hún um
aðstöðuna.
Auður segist nýta skíðasvæðið
í Tindastóli óspart og bætir við að
innanbæjar þurfi hún ekki að nota
bíl. „Ég labba almennt allt sem ég fer.
Ég keyri bara þegar ég fer til Reykja-
víkur eða Akureyrar. Annars eru
200 metrar í allt hérna.“
Aðspurð segir hún ungt fólk hafa
f leiri tækifæri í plássinu en áður.
„Covid hefur gefið fólki meiri séns
á að flytja til baka. Það getur verið í
fjarvinnu og flutt vinnuna með sér,“
segir hún. „Að mínu mati veitir það
fólki meiri hamingju að geta ráðið
sér sjálft.“
Auður starfar í dag sem verkefna-
stjóri áfangastaðaáætlunar á Mark-
aðsstofu Norðurlands. Hún segist
mjög ánægð í starfinu, enda gefi það
henni tækifæri til að ferðast mikið.
„Ég ferðast mjög mikið í vinnunni
og held líka vinnustofur í landshlut-
anum. Svo er ég að gista á þessum
fínu hótelum og í einhverjum enda-
lausum næsheitum uppi í sveit,“
segir Auður og hlær. n
Krókur á móti Danmerkurbragði
GEFÐU GJÖF TIL HEILLA
HEILLAGJAFIR.IS
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
PREN
TU
N
.IS
TARTALETTUR
Íslenskar hátíðar
................................................
Fyrir jól og áramót
Fléttubrauð, skrautrúnstykki, súpurúnstykkifín og
gróf snittubrauð, fín og gróf samlokubrauð,
partýbrauð 15 og 30 kúla
GLEÐILEG JÓL
Pantið í verslunum okkar
eða hringið í síma 561 1433
Sænsk-íslenska söngkonan
Hanna Mía Brekkan gefur í
dag út lagið Like a tree, sem
trommuleikari Florence and
the Machine, Matt Ingram,
hljóðblandar. Lagið er af
plötunni Human, sem kemur
út í heild sinni á gamlársdag.
ninarichter@frettabladid.is
Söngkonan Hanna Mía Brekkan
sendir frá sér plötuna Human á
gamlársdag en forsmekkurinn
af því sem koma skal, lagið Like a
tree, kemur út í dag. Matt Ingram,
trommari rokkhljómsveitarinnar
margverðlaunuðu Florence and the
Machine, hljóðblandar lagið.
Hanna Mía segist hafa tekið
plötuna upp í Reykjavík þegar sam-
göngubann stóð sem hæst í fyrra.
Hún segist hafa hlustað mikið á
tónlistarkonuna Lauru Marling á
þeim tíma og í framhaldinu farið
að velta fyrir sér hljóðblönduninni
sem Marling notaði.
„Ég fann í framhaldinu Insta-
gram-ið hjá Matt Ingram. Hann var
nýkominn í útgöngubann í Bret-
landi og var að auglýsa eftir verk-
efnum,“ segir Hanna Mía. Alla jafna
hefði Matt verið á tónleikaferðalagi
með Florence and the Machine, sem
tilnefnd hefur verið til sex Grammy-
verðlauna. Matt sló til og úr varð
lokaafurðin, platan Human, sem
kemur út í heild sinni á síðasta degi
ársins.
Pródúsent plötunnar er Salka
Valsdóttir, sem hefur getið sér gott
orð með Reykjavíkurdætrum og
Cyber. Leiðir Sölku og Hönnu Míu
lágu saman á námskeiði sem Hanna
Mía sótti fyrir nokkrum árum.
„Ég kynntist Sölku á raftónlistar-
námskeiði árið 2016 þegar ég var
nýkomin til Íslands,“ segir Hanna
Mía og bætir við að það sé búið að
vera skemmtilegt að fylgjast með
ferli Sölku dafna.
Amma fór holu í höggi
Hanna Mía samdi lagið Like a tree
um íslensku ömmu sína sem lést
2019. „Ég var úti að labba í snjókomu
veturinn eftir að amma lést. Það var
svo fallegt úti og ég hugsaði með
mér að nú væri ég f lutt til Íslands,
þar sem amma bjó þegar hún var
ung. Hún gekk þessar götur eins og
ég,“ segir Hanna Mía.
Amma Hönnu Míu hét Ólöf Helga
Brekkan. Hanna Mía segir að Ólöf
Helga hafi verið ein fyrstu kvenna
á Íslandi til að starfa sem tannrétt-
ingalæknir. Ólöf Helga rataði síðan
í fréttir árið 2011 þegar hún fór holu
í höggi á golfvellinum á Seltjarnar-
nesi, þá 82 ára gömul.
Samdi lag um ást á höfrungum
Hanna Mía segist hafa samið fyrsta
lagið sitt þegar hún var tíu ára
gömul. „Ég samdi þá lag fyrir Euro-
vision. Það fjallaði um ást mína á
höfrungum,“ segir hún og hlær. „Ég
er með leyni-hlekk á það lag,“ bætir
hún við.
„Svo lærði ég sjálf á gítar á netinu
þegar ég var þrettán ára. Þá var ég í
sumarbúðum og á kvöldin var spil-
að og sungið, mér fannst það svo illa
gert að ég ákvað að læra sjálf á gítar
til að hækka aðeins standardinn,“
segir Hanna Mía glettin.
Like a tree er aðgengilegt hlust-
endum á streymisveitum. n
Fékk trommara Florence +
The Machine til liðs við sig
Hanna Mía Brekkan fékk trommara einnar stærstu rokkhljómsveitar heims til
að hljóðblanda plötu fyrir sig í miðju samgöngubanni. MYND/CAT GUNDRY BECK
Auður
Ingólfsdóttir
26 Lífið 10. desember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ