Gnúpverjinn - 01.12.1992, Blaðsíða 2
Frá ritnefnd
Ágætu lesendur!
í svartasta skammdeginu lítur Gnúpverjinn dagsinss ljós og er þetta 67.
tölublað. í blaðinu kennir ýmissa grasa og sem fyrr er það fremur eldra fólkið
sem skrifar í blaðið. Pað hefur frá mörgu að segja og er það betur geymt en
gleymt. Samt sem áður er skaði að unga fólkið skuli ekki láta í sér heyra, því að
áreiðanlega hefur það líka sínar skoðanir og áhugamál, sem vert væri að setja á
blað.
Það er von ritnefndar að Gnúpverjinn veiti lesendum ánægju og fróðleik o
við minnum á að efnissöfnun í blaðið okkar stendur alltaf yfir og skorum því
alla að skrásetja eitthvað fróðlegt og skemmtilegt og skella því í Gnúpverjann.
Að lokum þökkum við öllum sem sent hafa efni í blaðið eða á einhvern hátt
hafa stuðlað að útgáfu þess og óskum lesendum gleðilegra jóla, árs og friðar.
F.h. ritnefndar,
Á.J.
Ritnefnd skipuðu:
Árdís Jónsdóttir, EystrajGeldingaholti, formaður
Halla Guðmundsdóttir, Ásum
Jón Eiríksson, Steinsholti
Loftur S. Loftsson, Breiðanesi
Steinþór Gestsson, Hæli
Til vara:
Ámundi Kristjánsson, Minna-Núpi
Jóhann Valdimarsson, Stóra-Núpi
Aðstoð við tölvuvinnslu:
Gunnar Þór Jónsson, Stóra-Núpi
Axel Árnason, Tröð
&X fJQ