Gnúpverjinn - 01.12.1992, Blaðsíða 11

Gnúpverjinn - 01.12.1992, Blaðsíða 11
-Hvenœr fórstu á fjall fyrst? Ég er nú ekki alveg akkúrat í því, ég gæti trúað að það hafi kannski verið svona 1926. Ég fór fyrst í Kistuver. -Var það sérstök leit, var ekki farið inní Gljúfurleit? Nei, það fóru fimm menn á mánudegi inn í Fitjaskóga og gistu í Skógakofanum. Svo var farið inn í Öræfaklauf á þriðjudagsmorguninn til móts við smalana. Kistuverskóngurinn skipti þar leitum. Pað var Þorsteinn í Háholti í minni fyrstu ferð, hann átti að vera að sínum stað í leitinni, en í þetta sinn lenti hann ekki á þeim stað, einhvernvegin æxlaðist svo til að það var ég sem lenti í kóngsleitinni og það er eina leitin sem er almennilegur reiðvegur, það er há Fossheiðin en hins vegar eru tóm helvítis gil. Ég held helst að kóngurinn hafi verið vestastur þennan dag, hann hefir af einhverjum ástæðum kosið það. Þessir fimm Kistuversmenn höfðu bara einn trússara, það var látið duga, en það var ekki alltaf vandalaust að búa upp á hann svo að öllum líkaði. Hesturinn var skilinn eftir í kofanum og þeir sem voru með trússarana úr Gljúfurleit tóku hann svo með fram í Hólaskóg, þar var tjaldað undir bríkinni við lækinn, en sá tjaldstaður hefir spillst af vikurrennsli. Ég held að það hafi ekki verið búið að byggja kofann í Hólaskógi þá og þar var því enginn kofi. í eftirsafni og eftirleit var legið í Gjánni. Ég gisti þar oftar en einusinni. Ég gisti þar meðal annars þegar ég fór á Eyrarnar og svo gisti maður þar oft síðustu nóttina þegar maður kom úr eftirsafninu. Pá var gist síðustu nóttina ýmist í Gjánni eða á Hjálp og þá í tjaldi. Legið var í litlum helli í Gjánni, honum var þá lokað með hlöðnum kömpum og dyraumbúningi. Fé var aftur á móti haft í stærri hellinum og sjást þar hleðslur ennþá. Dyraumbúnaðurinn var tekinn úr litla hellinum vegna þess að ferðafólk var farið að nota hann fyrir kamar en það var nú ekki ætlunin. Steinar ásamt Lofti S. Loftssyni á fjalli árið 1981. Með þei/n á myndinni eru Sigþrúður Jónsdóttir og Kristjana Bjarnadóttir. í fyrsta sinn sem ég komst inná afréttinn var í eftirsafni 1929. Það var vont haust, það var snjór og það var krapi í sumum vatnsföllum. Þá tjölduðum við þar við gamla kofann í byl. Það var þó ekki slæmt veður en gekk á með éljum. Kofinn sá, hann rúmaði kannski þrjá menn, ég hugsa að hann sé ekki meira en 3 álnir á kant . 11

x

Gnúpverjinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gnúpverjinn
https://timarit.is/publication/1637

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.