Gnúpverjinn - 01.12.1992, Side 24
Hofskirkja
I kirknatali Páls biskups, sem er gert um 1200, er kirkja á Hofi í
Eystrihrepp tilgreind.
1 syningarskrána Páskar 1983 - kirkiulist á Kiarvalsstöðum, skrifar Björn
Th. Björnsson listfræðingur grein er hann nefnir: Um kór og skip. Þar segir
svo á bls. 27: "Á miðöldum, og raunar langt fram eftir, var milligerð milli kórs
og framkirkju, ýmist með heilu þili umhverfis kórdyr eða með gagnbrotnu verki
neðra, en efri hlutinn og kórþilið sjálft heilt. Þil þetta, sem þá sneri að
kirkjugestum, virðist hafa verið algengasti staður veggmálverka. í máldaga
Reykjakirkju í Ölfusi, sem að framan er getið, er nefnd" pentan framan fyrir
kór," og í Hofskirkiu í Eystrihrepp er árið 1397" pentaður kór framan". Slík
málverk á kórvegg hafa að líkindum ýmist verið Maestas Domini, þ.e. Kristur á
veldisstól, dómari lifenda og dauðra, með utmálun Helvítis og Paradísar til
hvorrar handar, eða oftar hinn sigrandi Kristur á krossi, ásamt með Maríu og
Jóhannesi. Kristsmyndin sjálf hefur þá verið yfir miðjum kórdyrum, en hafi
málverk ekki verið, hékk þar gjarnan útskorin róða, svo sem oft er getið í
máldögum.
Þessi lýsing á skreytingu í Hofskirkju gæti bent til þess að þar hafi verið
meiriháttar kirkja, enda er hún við lýði að minnsta kosti í sex aldir.
í skjala- og bréfasafni Stóra-Núpsprestakalls er varðveitt ljósrit af
konungsbréfi varðandi Hofskirkju. Það er skrifað á danska tungu, sérkennilegu
stofnanamáli frá 18. öld og því kýs ég að birta hér útdrátt úr því. Ég ætla að efni
þess komi þannig best til skila. Efni þess er þetta:
Til Stiftamtmannsins á íslandi,, ásamt biskupnum í Skálholts stifti, Ole
Stephansen og hr. Geir Vidalín, um að leggja Stóra-Hofs kirkju niður.
Sérstaka athygli vora vakti það að sóknarpresturinn í Hrepphóla og Stóra
-Hofssöfnuðum í Skálholtsstifti hr. Björn Jonsen hefur allra auðmjúklegast bent á
að báðar þessar sóknir til samans séu langt frá þeirri stærð ýmissa annarra
prestakalla í landinu sem þó hafa aðeins eina kirkju. Nú hefur annexían Stóra
-Hof aðeins 5 bæi sem eiga styttra að sækja til aðalkirkjunnar en nokkur bær
hinsvegar í Hrepphólasókn. Þá er annexían Stóra-Hof á þeim jaðri sóknarinnar
sem er lengst frá aðalkirkjunni svo að presturinn verður að fara sóknina á enda
þegar hann þriðja hvern sunnudag skal halda guðsþjónustu á annexíunni, einnig
fellur á eftir sókninni, sem að vetrinum er ófær nema hún sé á heldum ísi, þess
vegna hendir það æðioft að aðeins verður messað tveim til þrem sinnum yfir
vetrartímann. Með hliðsjón af framansögðu sækir presturinn um að hin
"ónauðsynlega" kirkja á Stóra-Hofi verði aflögð og sóknin lögð til
aðalkirkjunnar, Hrepphóla. því tilkynnist hér með að af þessu tilefni og með
vísun til þeirra skýringa sem gefnar eru hér að framan og almennra ástæðna
þessara mála viljum vér allra náðarsamlegast leyfa:
1. Að Stóra-Hofskirkja skuli leggjast niður og sóknin leggjast til
aðalkirkjunnar, Hrepphóla. Hofskirkju skal selja á opinberu uppboði og af
söluverðinu greiða fyrst skuldir hennar en afgangurinn ganga til annarrar
fátækrar kirkju í stiftinu.
24