Gnúpverjinn - 01.12.1992, Side 30

Gnúpverjinn - 01.12.1992, Side 30
í kindaleit Margar ferðirnar er ég búinn að fara vegna sauðkinda, gangandi, á bíl eða á sleða, ýmist til að leita kinda eða til að aðstoða við að ná í fé sem aðrir voru búnir að finna eða vitað var af, einkum ef um torleiði var að ræða. Hér segir frá tveimur slíkum ferðum frá árinu 1973. Sagan byrjar á því að Guðlaugur í Melhaga sá þrjár kindur, mislitar, vestan í Rauðukömbum í einni af sínum mörgu ferðum sem hann fór þangað inneftir til að sækja vikur. 11. nóvember fórum við eldri Geiri (Sigurgeir Runólfsson), Björgvin og Högni í Laxárdal á bíl inn að Bergólfsstöðum. Þar skiptum við okkur, Geri og Högni fóru fram með fjöllum sem kallað er, það er Geldingadalsfjöllum, og ætluðu svo fram að Ásólfsstöðum, en við Björgvin fórum á austurkantinn. Hjá Frönsku Tóftum fundum við eitt hvítt lamb og við Hveralækinn fundum við þrjár kindur og þó að þær væru allar mislitar þá passaði liturinn á þeim ekki við þann lit sem Guðlaugur sá, svo við héldum áfram og þegar við erum næstum því komnir heilan hring um Kambana þá fundum við það sem við leituðum að. Við settum kindurnar í kerru sem við vorum með og fórum að Ásólfsstöðum að vitja félaga okkar. Þá höfðu þeir einnig fundið sjö kindur og þannig urðu þrjár kindur að íjórtán kindum. Jón á Brúnavöllum sótti þær svo daginn eftir. Ekið út í Viðey. 30

x

Gnúpverjinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gnúpverjinn
https://timarit.is/publication/1637

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.