Strandapósturinn - 01.06.1989, Page 12
hitta ættingja og vini. Þar söng kór Átthagafélagsins undir stjórn
Svavars Sigurðssonar og íjórar ungar stúlkur sýndu dans. Aðal-
fundur félagsins var haldinn 11. maí.
Sumarferð félagsins var farin norður í Árneshrepp dagana
7,—9. júlí, þátttakendur voru 45 með rútu, auk þess komu margir á
einkabílum. Lagt var af stað frá Umferðarmiðstöðinni föstudag-
inn 7. júlí kl. 14.00 og ekið norður í Árnes og komið þangað um
miðnætti. Flestir fengu inni í skólahúsinu á Finnbogastöðum en
nokkrir voru í tjöldum. Morguninn eftir var farið í gönguferð í
blíðskaparveðri út að Reykjaneshyrnu og Þórðarhelli og íleiri
staðir skoðaðir þar undir leiðsögn Sigursteins Sveinbjörnssonar í
Litlu-Ávík. Eftir að mannskapurinn hafði fengið sér hressingu og
smáhvíld eftir gönguna var aftur lagt af stað og nú í Norðurfjörð-
inn út að Munaðarnesi og Krossnesi. Margir fengu sér sundsprett
í lauginni þar, aðrir þvoðu einungis af sér göngusvitann.
Áætlað hafði verið að fá báta í Munaðarnesi og sigla yfir Ingólfs-
fjörð, allt norður að Drangaskörðum, en veður var talið óhagstætt
til skemmtisiglingar, svo að hætt var við hana og látið nægja að
skoða umhverfi í Munaðarnesi og horfa út að Drangaskörðum.
Um kvöldið var svo haldin heljarmikil fjölskylduskemmtun í
félagsheimilinu í Árnesi sem hófst kl. 20.00 með söng kórs Átt-
hagafélagsins í Reykjavík undir stjórn Halldóru Aradóttur. Þá
sýndi Leikfélag Hólmavíkur gamanleikinn „Landabrugg og ást“,
síðan var dansað fram eftir nóttu við fjöruga músik hljómsveitar-
innar sem var með í ferðinni að sunnan. Húsfyllir var í Árnesi og
þótti mönnum þetta hin besta skemmtun. Á sunnudagsmorgun
var lagt af stað frá skólanum á Finnbogastöðum kl. 11.30, heim á
leið. Stansað var í Djúpuvík og skoðaðar leifar síldarverksmiðj-
unnar með leiðsögn húsbóndans á staðnum. Á eftir var snæddur
notalegur hádegisverður á hótelinu. En ekki voru ferðalangarnir
komnir langt þegar rútan bilaði, eða nánar tiltekið út í Byrgisvík-
urhlíð. Var nú kallað á fólksbíla frá Laugarhóli til að sækja fólkið
og flytja að hótelinu. Þar beið það í góðu yfírlæti, meðan bílstjór-
inn gerði við með aðstoð fararstjóra og fleiri góðra manna. Senda
varð fólksbíl til Hólmavíkur eftir varahlutum, því boltar höfðu
brotnað í hjólafestingum að aftan. Þessar aðgerðir tóku drjúgan
10