Strandapósturinn - 01.06.1989, Page 75
Ingimundur Ingimundarson, Svanshóli:
Skemmtiferð í
Parthólmaskóg
A þriðja og fjórða áratug aldarinnar var algengt í Nessveit að
unga fólkið færi á hestum í skemmtiferðalag inn í skóg. En svo var
kallaður víðiskógur í Parthólmum norðan Selár innfrá Gilsstöð-
um. Þá voru engir bílvegir hér um slóðir.
Valinn var góðviðrisdagur að sumrinu, þegar náttúran skartaði
sínu fegursta. Aður en vélvæðing hófst þurfti fólk að vinna alla
rúmhelga daga, en hafði sunnudaginn til hvíldar eða skemmtun-
ar nema í óþurrkatíð um sláttinn. Þá voru allar þurrkflæsur not-
aðar.
Hér er aðeins brugðið upp leifturmynd af einni skógarferð,
sem var á vegum Sundfélagsins Grettis sunnudaginn í 25. viku
sumars.
Formaður félagsins, hann Steini á Nesi, stjórnaði ferðinni. Lagt
var upp frá Skarði um kl. 10 í hægviðri og sólskini innyfir Bassa-
staðaháls. Allt var þetta ungt fólk, sem ætlaði að skemmta sér
rækilega án vímuefna eða tóbaksnotkunar. Hestagöturnar voru
mun nær Skarðs-Felli en bílvegurinn nú.
Allbratt var upp á Rönd, og á Fellshala var aðeins stansað til þess
að hrossin gætujafnað sig eftir brekkurnar. Þegar litið var til baka
blasti Bjarnarfjörðurinn við til sjávar, brúnafullur af sólskini. Auk
bændabýlanna vakti hin margsveiga BjarnarQarðará athygli aug-
ans. Hún var eins og silfurband í geislaflóðinu. Þverárfossar og
dökkgrænir birkiskógar norðurhlíðarinnar hresstu upp á mynd-
ina. En jarðhitinn andaði engri sjáanlegri gufu.
Afram var haldið með Fellið til hægri, en þaðan sést í góðu
73