Strandapósturinn - 01.06.1989, Page 94
Eftirmáli
Þorsteinn Matthíasson skrifaði ágæta grein í tilefni af 25 ára
afmæli Átthagafélagsins og birtist hún í 12. árg. Strandapóstsins.
Rekur hann þar upphaf félagsins og hlutverk þess á mörgum
sviðum á þessu tímaskeiði og var það vel við hæfi. Hins vegar hafa
slæðst tvær villur í frásögnina vegna misminnis, sem ekki hefur þó
verið hirt um að leiðrétta fyrr en nú í framanrituðum þætti. I
afmælisgreininni er sagt að stofnfundurinn hafi verið haldinn í
Skátaheimilinu, en það rétta er að hann fór fram í Oddfellowhús-
inu að Vonarstræti 10, sem þá var jafnan kallað Tjarnarkaffi. Hitt
atriðið varðar tildrög félagsins þar sem Þorsteinn telur að Sigvaldi
Kristjánsson hafi boðað til fyrsta fundar undirbúningsnefndar-
innar í Edduhúsinu. Og víst var Sigvaldi líklegur til þess, annar
eins félagsmála- og hugsjónamaður og hann var. En eins og at-
burðarásin þróaðist þá hafði hann ekki frumkvæðið í upphafí.
Hitt er aftur á móti víst, að engir lögðu á sig meiri undirbúnings-
vinnu en hann og þeir Þorsteinn báðir, eftir að nefndin tók til
starfa og málið komst á rekspölinn. Hér skal ekki getum að því
leitt, hvað hefði orðið ef símtal okkar Björns Benediktssonar
forðum hefði aldrei farið fram. En af tilsvari Björns má ráða að
Þorsteinn hafði þá þegar reifað félagshugmyndina við hann. Það
var því kannski tilviljun ein að frumkvæðið féll í okkar hlut. En
hvaða mali skiptir það? Aðalatriðið er, að stofnun átthagafélags-
ins var tímabær og heppnaðist fullkomlega. Allar götur frá upp-
hafi eða í 36 ár hefur mikið og fórnfúst starf verið unnið á vegum
félagsins. Viðfangsefnin hafa verið fjölþætt og starfsemin öll með
miklum menningarbrag. Og ánægjulegast er það, að hún hefur
aldrei verið gróskumeiri en einmitt nú á síðustu misserum. Sú
staðreynd gleður auðvitað alla Strandamenn, en enga meira en
þá, sem stóðu að stofnun félagsins á sínum tíma. Og sjálfur tel ég
símtal mitt við Björn Benediktsson forðum hafa verið eitt af
mínum fáu happaverkum og raupa gjarnan af því í elli minni, að
það hafí verið upphafið að Átthagafélagi Strandamanna. En hinu
má ekki heldur gleyma, að aðdragandann má rekja til skemmtun-
ar Strandamanna í Þórskaffi árið 1952. Hún var fyrirboði, sem
lofaði góðu og gerði eftirleikinn auðveldari.
92