Strandapósturinn - 01.06.1995, Blaðsíða 75
Ritverk Jóns lœrða:
Eftir Jón lærða liggur mikið af ritverkum um hin fjölbreyttustu
efni, þó að vafalaust hafi margt glatast. Bæði er um að ræða
frumsamin rit og eins afrit af verkum annarra. Til eru eftir hann
eiginhandarrit, bæði á skinn og pappír og prentuð rit. Sagt er að
hann hafi afritað fjórar lögbækur áður en hann varð tvítugur og
fleiri bækur hafði hann afritað fyrir i60021). Hér verða talin
nokkur af þekktari ritverkum hans:
Fjandafæla og Snjáfjallavísur frá 1611—1612, en það er mergjað-
ur særingakveðskapur.
Sönn frásaga af spanskra manna skipbrotum og slagi, sem áður
er getið, frá 1615—1616.
Grænlandsannáll frá 1623.
Jón var dæmdur 1631 á Bessastöðum fyrir galdrakver sem
kallaðist „Bót eður viðsjá við illu ákasti“.
Armanns rímur 1637.
Samantektir um skilning á Eddu 1641.
Tíðsfordríf 1644, rit urn hin margvíslegustu efni, að hluta svör
við ýmsum spurningum Brynjólfs biskups Sveinssonar.
Ein stutt undirrétting urn Islands aðskiljanlegar náttúrur,
skrifað eftir 1644.
Um nokkrar grasanáttúrur, óvíst urn aldur.
Heims historía, þýddur útdráttur á þýsku landfræðiriti. Þýtt
1647.
Aradalsóður, útilegumannasögur í bundnu máli, frá efri árum
Jóns.
Fjölmóður, ævikvæði 1649, sem er uppgjör við samtíðina22).
Þá hafa sumir eignað Jóni lærða hið alkunna rit Krukkspá, en
fræðimenn eru ekki sammála urn það23).
2I) Sama heimild.
22> Sama heimild.
23> Árbók Ferðafélags íslands 1952. Jóhann Hjaltason, bls. 133.
73