Strandapósturinn - 01.06.1995, Blaðsíða 18
um, m.a. í Steinadal í Kollafirði þar sem flóð féll úr norðurhlíð
dalsins langt upp í hlíðina á rnóti. Flóðið olli miklu tjóni á girðing-
um, og eru engin dæmi um svo stórt flóð á þessum slóðurn. Stór
snjóflóð féllu einnig í Staðardal og við Munaðarnes. Einnig féll
snjóflóð á endurvarpsstöð sjónvarps við Kjörvog í Arneshreppi,
og af þeim sökum var byggðin innst í Reykjarfirði sjónvarpslaus
allt fram íjúní.
Veðráttan gaf lítil grið eftir þetta, og næstu vikur rak hvert
norðanáhlaupið annað. A þessurn tíma þurftu menn oft að taka
sér skóflu í hönd, því að göng sem mokuð voru að kvöldi voru
gjarnan full að morgni. Þá kom snjóbíll Björgunarsveitarinnar
Dagrenningar á Hólmavík oft í góðar þarfir, bæði til að flytja fólk
sem kornst ekki leiðar sinnar með öðrum hætti, og til aðstoðar við
snjómokstur af þökurn húsa.
Mikil röskun varð á daglegu lífi fólks, ekki síst vegna truflana á
samgöngum. Þannig var ófært landleiðina til Drangsness samfellt
í 8 vikur, þrátt fyrir tilraunir til að opna leiðina með öflugustu
snjóruðningstækjum. Þennan tíma þurfti að flytja fólk og varning
með bátum. Vegagerðin bauð Drangsnesingum upp á flutning á
bílum sjóleiðina til Hólmavíkur, og nýtti einn bíleigandi sér þá
þjónustu. Snjósleðar og fjallajeppar komust að vísu landleiðina,
en slík ferðalög voru ekki hættulaus þar sem kennileiti voru engin
nema stjörnur himinsins.
I marslok tók harðindunum heldur að linna, og eftir það bætti
lítið á snjóinn. Afram var þó norðanátt nær alla daga. Síðasta
verulega norðanáhlaupið kom 2. í páskum, 17. apríl, en því fylgdi
lítil úrkoma. Norðanáttin stóð fram í maí, og hafði þá verið nær
óslitin í hálft ár. Gríðarlegt fannfergi var víða á Ströndum eftir
veturinn, líklega það rnesta á öldinni. Víða voru þykkar fannir
langt frarn á sumar. Snjóalög voru þó rnjög mismunandi eftir
staðháttum og langmest undir norðurhlíðum. Margir höfðu
áhyggjur vegna flóðahættu sem skapast myndi í asahláku ofan í
þennan mikla snjó, en ekkert slíkt gerðist, því að vorið fór sér
hægt.
Júní var óvenju vindasamur. í 2. viku mánaðarins gerði nokk-
urra daga hlýindakafla með miklum leysingum, en lítilli úrkomu.
16