Syrpa - 01.05.1948, Síða 5

Syrpa - 01.05.1948, Síða 5
ingamálum bæjanna er því orðin mjög knýjandi síðan Ijárbrall, í sambandi við lóðir og bygging- ar, kom til sögunnar, en það hélzt í hendur við upphaf stóriðjunnar (Industrialismans) og þá fólksflutninga til bæjanna, sem henni voru sam- fara. Markmið fjárbrallsmannanna er auðvitað sem mestur gróði, en slíkur gróði kemur mjög sjaldan heim við hagsmuni heildarinnar. Það liggur í augum uppi, að ef ekki er tekið fullt til- lit til allra liinna margvíslegu hagsmuna bæjar- btianna, þá lilýtur skipulagningin að komast í öngþveiti. Einstaklingurinn getur ekki haft þá yfirsýn, sem nauðsynleg er, til þess að geta dæmt um, hvernig bezt sé að skipuleggja og byggja, svo að bærinn eða bæjarhlutinn henti heildinni bezt. Einstaklingurinn hugsar vitanlega um eigin hag. og hefur venjulega mjög litla löngun til að liliðra til fyrir öðrum. Skipulagsleysi getur sérstaklega orðið háskalegt, þegar um uppbyggingu bæja er að ræða, því að í engri annarri framleiðslu er farið með jafn mikil verðmæti. Byggingaiðnað- urinn er stærsta iðngrein okkar (þ. e. Svíþjóðar). Arið 1939 var ca. 1 milljarði króna varið til hans, meðtaldar breytingar og viðgerðir. Af þessari upp- hæð fóru 600 milljónir króna til íbúðarhúsanna einna. Það er líka naumast í neinni annarri fram- leiðslu urn að ræða jafn varanlega hluti. Frá tæknilegu sjónarmiði séð á vandað íbúðar- luis að geta enzt í að minnsta kosti 100 ár. Með tilliti til skipulags og híbýlahátta er þó varla liægt að gera ráð fyrir meira en 60 ára notkun, þó að reyndin verði oftast sú, að húsin standi miklu lengttr. Auk þess eru ýms önnur mannvirki í bæjum og öðru fjölbýli bæði dýr og varanleg, svo sem götur, leiðslur, hafnir. vatnsveitur, rafmagns- veitur o. fl. Skipulagning borgar sig Þessa staðhæfingu er ekki hægt að véfengja, að minnsta kostí ekki á sviði bæjabyggingar. Það getur verið, að skipulagsleysi færi einhverjum jarðeiganda eða byggingabraskara stundarhagnað. en slíkt hefnir sín er til lengdar lætur. Reynslan hefur margsannað það. Eftirfarandi tvö dæmi skýra þetta betur: Hin skipulagslausa dreifing byggðarinnar, sem svo oft á sér stað í nágrenni bæjanna, er víti, sem verður að varast (sjá mynd 2). Það er kostnaðar- samt; götur, leiðslur og strætisvagnar verða mun 2. mynd. dýrari en í hæfilega þéttri byggð, og samt er að- búnaður fólksins lélegri en vera þyrfti. Það verður langt í verzlanir, skóla, kvikmyndahús, fundarsali o. þ. h. Slík handahófsdreifing húsanna er venju- lega ljót og veldur óyndi. Af þessu má draga þá á- lyktun, að auk þess sem skipulagið ákveði hverju mannvirki sinn rétta stað, þegar þar að kemur, þá verður jafnframt aðgera áætlun um, í livaða tíma- röð þau skuli koma. Það er auðreiknað, hvað ó- lientug tímaröð við uppbyggingu hverfis getur kostað. Tökum sem dæmi, að svæði svipað því, sem sýnt er á 3. mynd, rúmi fullbyggt 250 smáhús. Götur og leiðslur kosta þá ca. 2000 kr. á hverja lóð. Ef aðeins eru byggð nokkur hús hér og þar á þessu sama svæði, t. d. 50 hús, verður kostnaður við vegi og leiðslur ca. 10000 kr. á hverja lóð. Enginn getur staðið straum af því. Þrautalending- in er þá að láta sér lynda lélega vegi, neita sér um afrennsli o. s. frv., þar til byggðin eykst, ef það þá verður nokkurn tíma. Verði það ekki, hefur maður þarna varanlegt kotaþorp, sem 3. mynd. S VRPA 3

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/1642

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.