Syrpa - 01.05.1948, Blaðsíða 7

Syrpa - 01.05.1948, Blaðsíða 7
daginn. Þetta sjónarmið er þó ekki fátítt, þess verður jafnvel vart lijá ábyrgum starfsmönnum bæjanna, en við verðum að berjast gegn því. Það er hættulegt vegna þess, hve það er alltof „tæki- færissinnað“, þegar um er að ræða jafn varanlega framleiðslu sem byggingar o. þ. h. Oft er þetta sjónarmið blátt áfram dulbúið makræði og skammsýnn kotungsháttur. Meiri þekking Nei, rökréttur hugsunarháttur er þvert á móti þessi: Þó að áætlanirriár verði aldrei óskeikular. þá ættu þær að geta orðið nteira eða minna senni- legar. Það sem mestu máli skiptir er, að þær séu eins nákvæmlega gerðar og unnt er. Með öðrum orðum, við verðum að rannsaka núverandi ástand og undangengna þróun byggðarinnar gaumgæfi- lega til þess að geta gert okkur hugmynd um, hvað bezt muni henta framtíðinni. Reynslan sýnir, að oft þarf ekki annað en vita, hváð gerzt hefur, og livað er að gerast, til þess að augljóst verði livað gera skal. Alltof lítil áherzla hefur verið lögð á þetta. Við þurfum meiri rannsóknir og nákvæm- ari athuganir á hinum ýmsu sviðum bæjarlífsins og uppbyggingarinnar. Þessi krafa verður þeim mun sterkari, sem nauðsyn skipulagningar kemur betur í ljós. Sem dæmi um þýðingarmikið starf í þágu bæjamyndunarinnar, \ il ég minnast á fjölg- unaráætlunina (Befolkningsprognose), sem „Be- folknin<ískommissionen“# og aðrir hafa unnið að. Eins 02' kunnugt er varð niðurstaða hennar sú, að O O 7 íbúatala Svíþjóðar haldi áfram að aukast eitthvað fram á sjötta tug nítjándu aldarinnar, og riái hún þá hámarki sínu, ca. 6,5 milljónir, en síðan fari fólkinu að fækka. Eina atriðið, sem er verulega ótryggt í þessari áætlun, er innflutningur fólks til Svíþjóðar frá öðrum löndum, eða útflutningur fólks úr landinu. Á tímum hinna pólitísku fólks- flutninga, felur þetta óneitanlega í sér talsverða óvissu. í sambandi við félagsmálin, og þá ekki' sízt á sviði byggingar- og skipulagsmála, er slík áætlun þó til ómetanlegs gagns. Það er nauðsyn- legt að gera slíkar áætlanir um væntanlega breyt- ingu íbúatölunnar í hverri borg og stærri byggð- arlögum. Mikilvægi þessa sést af eftirfarandi dæmi. í flestum smábæjum hefur hingað til verið leyft að byggja á stórborga vísu, algjörlega án til- lits til, hvort þörf hefur verið fyrir það eða ekki. * Nefnd, stofnuð í Svíþjóð til að gera áætlanir um hverjar breytingar muni líklegar á íbúafjölda í bæjum og sveitum. 5. mynd. Næstum liver smábær státar af fáeinum fimm eða sex hæða húsum innan um hin venjulegu tveggja eða í mesta lagi þriggja liæða hús (Mynd 5). Það er varla hægt að gera ráð fyrir, að allur bærinn byggist af húsum af þeirri hæð. Til þess að það yrði eðlilegt þyrfti að verða stækkun á bænum, samfara skorti á hentugum byggingarlóðum. Hvorugri þessari ástæðu er að jafnaði til að dreifa í smábæjum. Þö ekki væri annað en þetta atriði, þá nægir það eitt til að sýna, hve háskalegt er að leyfa byggingu mjög hárra húsa í smábæjum. Hin árlega þörf nýrra íbúða er sjaldnast mikil. Bygg- ing eins stórhýsis öðru hvoru fullnægir því að mestu leyti þessari þörf. Ef mörgunt íbúðum er hlaðið upp á fáum lóðum, hljóta aðrar lóðir að verða útundan. Nauðsynlegt niðurrif gamalla húsa og endurnýjun þeirra er þar með tafið. Fá- einir lóðaeigendur hirða ágóðann af nýbygging- unufn, en aðrir verða af honum. Að þessu leyti er þetta fyrirkontulag því fjárhagslega brjálað. Frá fagurfræðilegu sjónarmiði er það einnig eyði- leogino'. Hið fráfælandi sambland af háum og lágum húsum, verður óhagganlegt. Frá fjárhags- legu sjónarmiði veldur þetta afturkipp, því að kröfurnar til þess að bærinn sé skipulega og þokkalega uppbyggður eru sífellt að aukast. Eftir nokkra áratugi, þegar það er betur kom- ið inn í meðvitund fólks, hve vel og fallega er hægt að koma einum bæ fyrir með góðu skipulagi. eiga þessar kröfur vafalaust eftir að verða ntiklu hærri en við getum nú gert okkur í hugarlund. Lifrœnt skiþulag Því djúptækari og áhrifameiri sem skipulagn- ingin er fyrir líf bæjanna, þeim mun mikilvægara SYRPA

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/1642

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.