Syrpa - 01.05.1948, Blaðsíða 20
liúsi (18°—20°C) má klæða barnið líkt og á sumr-
in. Sé hins vegar illa kynt, gólfkuldi eða dragsúg-
ur, verður að sjálfsögðu að klæða barnið í hlýrri
föt, svo sem ullarbol milli laga, prjónaföt, síðar
skriðbuxur o. þ. h. Þegar barnið fer iit, á að klæða
það í yfirhöfn, er svarar til veðurfarsins.
Hér að framan hefur verið drepið á nokkur
þýðingarmikil atriði viðvíkjandi smábarnafatn-
aði með tilliti til vellíðunar barnsins. En sé mál-
ið athugað frá hinni hliðinni, þ. e. með tilliti til
þess, sem be/.t lientar móðurinni, verður niður-
staðan sú, að hagsmunir barns og móður rekast
livergi á.
Á heimilum, þar sem börn eru, hvort sem
þau eru mörg eða fá, fer mikill tími í að sauma
og hirða barnaföt, og er eðlilegt að svo sé. Þó er
enginn vafi á því að sumar mæður gætu stytt
þennan tíma verulega ef þær fylgdu þeim leið-
beiningum um barnafatnað, sem hér hafa verið
gefnar, þ. e. að klæða börn sín í fáar, einfaldar
flíkur úr hentugum efnum.
Alls konar bómullarefni, svo sem tvisttau,
flúnel, silkiléreft, riflað flauel, nankin o. fl., eru
einkar hentug í smábarnaföt, þar eð þau endast
vel og ern auðþvegin og strokin. Prjónaflíkur,
hvort sem þær eru úr ull eða bómull, eru einnig
ákjósanlegar. Hins vegar verða efni eins og satín,
taft, organdy, flauel og spegilflauel að teljast
mjög óhentugt, og er óskiljanlegt, hve þau eru
mikið notuð í „spariflíkur" smábarna hér á landi.
Föt úr þessum efnum eru vandhirt og þau verða
fljótt þvæld og ljót.
Mjög léttir það móðurinni að hirða um barnið,
ef föt þess eru einföld og lans við óþarfa „skreyt-
ingar“ svo sem pífur, slaufur og blúndur o. s. frv.
Ef vill, má prýða flíkina með fáeinum einföldum
skreytingarsporum (t. d. klósporum eða lykkju-
sporum), vöfflusaum eða smokksaum. F.n óneitan-
lega er smekklegur barnafatnaður, án skrauts,
ætíð fallegur, sé hann hreinn, heill og vel strok-
inn.
Ncerfatnaður
Nærfatnaður úr prjónaðri bómull (,,jersey“,
„normal") er hentugastnr á smábörn. Hann er
hlýr, teygjanlegur og endingargóður, þolir vel
þvott og suðu og það þarf ekki að strjúka hann.
Að sjálfsögðu eru rýjur notaðar undir nærbux-
unum, þar til barnið fer að segja til. Utan yfir
bómullarnærfatnaðinn er gott að nota íslenzk
ullarnærföt, ef ástæða þykir til. Þau þófna lítið
og þorna fljótt.
Ndtiföt
Náttföt úr flúneli, upphneppt og með áföstum
leistum, eru ákjósanleg á börn til þriggja eða
fjögurra ára aldurs. Þegar þau hætta að sparka
sænginni ofan af sér, má fara að nota á þau venju-
leg náttföt, síðar buxur og treyju. Ef hætta er á,
að barnið bleyti sig á nóttunni, er gott að eiga
tvennar biixur við hverja treyjn.
Hosur og sokkar
Betra er að láta smábörn vera í hosum heldur
en sokkum, þegar því verður við komið, en klæða
þau í síðar skriðbuxur eða leikbuxur til hlý-
inda, því að kot, sem halda uppi sokkunum, geta
þyngt óþægilega á axlir barnsins. Einnig leggjast
þykkir sokkar í fellingar í hnésbótinni á skríð-
andi börnum og erta hörundið.
Skór
Það er mjög þýðingarmikið að velja skó smá-
barnsins með nákvæmni. Barn, sem er að læra að
ganga, ætti að fá að vera berfætt eða í mjúkum
skórn með stinnri hælplötu og traustum kappa.
Þegar það er farið að ganga, eiga skórnir að vera
með stinnum, sveigjanlegum sólum, liælalausir,
en með þykkari sóla undir hælunum og fram und-
ir iljarnar. Hælkappinn þarf að falla vel að og
skórnir að fylgja vel lögnn fótanna, hafa breiða tá
og vera rúmgóðir yfir ristina. Barnaskór eiga að
vera 1 — 1 \/> cm lengri og í/íj— 1 cm breiðari en fót-
ur barnsins. í úrkomu er betra að færa barnið í
,,bomsur“ utanyfir mátulega stóra skó, heldur en
að láta það í gúmmískó eða vaðstígvél, því að
þau eru oft illa löguð og barninu hættir við að
verða kalt í þeim.
U tanyfirföt
Skriðbuxur með síðum skálmum eru lientug-
ustu utanyfirflíkurnar á telpur jafnt og drengi
frá |)ví þau eru sex mánaða gömid og fram að
tveggja ára aldri. Eftir þann tíma og til skóla-
skyldualdurs eru leikbuxur (vinnubuxur) mjög
hentug hversdagsflík. Við skriðbuxur og leikbux-
ur má nota bómullarprjónaskyrtur, blússur eða
ullarpeysur, og prjónatreyjur utan yfir, ef þörf
gerist.
A drengi ern falleg prjónaföt einkar hentug
,,betri“ föt fram til þriggja eða fjögurra ára ald-
urs. Eftir það eru stuttbuxur, t. d. úr rifluðu
18
S YRPA