Luxus - 01.04.1986, Side 40

Luxus - 01.04.1986, Side 40
Ragna Sæmundsdóttir er Ungfrú Hollywood og slíkar konur mega búast við meiri athygli en almennt gengur og gerist, ekki síst þegar verðlaunin, bifreið af gerðinni Daihatsu Turbo, er þrælmerktur „Ungfrú Hollywood" í bak og fyrir. Upphaflega átti þessi áletrun að standa í eitt ár, en Ragna fékk að taka hana af um síðustu áramót. „Það varágætt. Stundum var svolítið þreytandi að hafa fólk glápandi á mann í umferðinni með allskonar augnagotum og •svipbrigðum,1' segir hún. Önnur kvöð sem enn fylgir titlinum er að hún þarf að láta sjá sig einu sinni í viku í Hollywood. „Sem er reyndar ekkert mál, því það er alltaf gaman í Hollywood, þó ég sé ekki beint sú týpa sem getur rokið á ball hvenær sem er, jafnvel mörgum sinnum í viku...“ En hvað er Ungfrú Hollywood að fást við þessa dagana? Fyrirsætustörf taka mikinn tíma hennar og í sumar mun hún fara erlendis þeirra erinda og þá annað hvort aftur til Parísar eða til Þýskalands, á vegum Elite. Auk þess kemur hún til með að vera fulltrúi ungu kynslóðarinnar á erlendri grund í haust. „Fyrirsætustarfið er mér afar mikils virði, það er bæði spenn- andi og skemmtilegt og ég hef áhuga á að sinna því eins lengi og ég get. En þetta er líka mikil kúnst, maður er alltaf að læra og tekur vonandi framförum í samræmi við það.“ 40 LUXUS

x

Luxus

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Luxus
https://timarit.is/publication/1644

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.