Luxus - 01.04.1986, Page 40
Ragna Sæmundsdóttir er
Ungfrú Hollywood og slíkar
konur mega búast við meiri
athygli en almennt gengur og
gerist, ekki síst þegar verðlaunin,
bifreið af gerðinni Daihatsu
Turbo, er þrælmerktur „Ungfrú
Hollywood" í bak og fyrir.
Upphaflega átti þessi áletrun að
standa í eitt ár, en Ragna fékk
að taka hana af um síðustu
áramót. „Það varágætt. Stundum
var svolítið þreytandi að hafa fólk
glápandi á mann í umferðinni
með allskonar augnagotum og
•svipbrigðum,1' segir hún.
Önnur kvöð sem enn fylgir
titlinum er að hún þarf að láta sjá
sig einu sinni í viku í Hollywood.
„Sem er reyndar ekkert mál, því
það er alltaf gaman í Hollywood,
þó ég sé ekki beint sú týpa sem
getur rokið á ball hvenær sem er,
jafnvel mörgum sinnum í
viku...“
En hvað er Ungfrú Hollywood
að fást við þessa dagana?
Fyrirsætustörf taka mikinn tíma
hennar og í sumar mun hún fara
erlendis þeirra erinda og þá
annað hvort aftur til Parísar eða
til Þýskalands, á vegum Elite.
Auk þess kemur hún til með að
vera fulltrúi ungu kynslóðarinnar
á erlendri grund í haust.
„Fyrirsætustarfið er mér afar
mikils virði, það er bæði spenn-
andi og skemmtilegt og ég hef
áhuga á að sinna því eins lengi
og ég get. En þetta er líka mikil
kúnst, maður er alltaf að læra og
tekur vonandi framförum í
samræmi við það.“
40 LUXUS