Saga


Saga - 2013, Blaðsíða 172

Saga - 2013, Blaðsíða 172
engilsaxnesku (bls. 30) og ekki er endilega auðvelt að lesa íslenska eða norska miðaldaskrift (bls. 37 og 38). Prent- eða ásláttarvillur eru ófáar, svo sem „half-unical“ fyrir „half-uncial“ (bls. 26), „farandpreWWdikara“ (bls. 32), „AM 655 IX 410“ fyrir „AM 655 IX 4to“ (bls. 36), „nýjársdag“ (bls. 94), „hvatningar bréf“ (bls. 94). Ein skiptingarvilla slapp í gegn: „ísl-enskra“ (bls. 98). Í yfirlitstöflu er blandað saman þróun bókstafa og hljóða auk þess sem saga táknunar sérhljóða í forníslensku er gróflega einfölduð og sumt rangt (bls. 34). Ritaskrá er ekki gallalaus og ósamræmis gætir í frágangi hennar, auk þess sem upplýsingar um sum ritin eru ófullnægjandi. Margt er merkilegt og fróðlegt í þessari bók, einkum um Rasmus Rask á fyrri hluta nítjándu aldar og síðan um tuttugustu öldina. Annað er yfir- borðslegt og bókin stendur engan veginn undir nafni sem ævisaga í þeim skilningi að gerð sé úttekt byggð á tiltækum heimildum, með öðrum orðum leitað fanga sem víðast og kapp lagt á að allt sem máli skiptir komist að og sé útskýrt. Höfundar hafa ekki vandað nógu vel til verka hvað þetta varðar og lesendur verða af þekkingu sem þó liggur fyrir í prentuðum ritum eða hefði verið auðvelt að nálgast og jafnvel búa til út frá óprentuðum heimild- um. Þrjú dæmi verða tekin um þetta: 1) Í stað þess að taka saman vandaða útskýringu á því hvernig bók - stafur inn ð varð til og breiddist út eyða höfundar púðrinu í sögulegt sam- hengi, með sex blaðsíðum um Engilsaxa og víkinga svo sem almennt (bls. 22–27) og litlu færri um kristnitöku og upphaf ritlistar á Íslandi (bls. 30–35). Hér gleymist eiginlegt viðfangsefni bókarinnar og ekki er fyllilega ljóst hvort bókstafurinn ð birtist fyrst í enskum handritum á áttundu, níundu eða tíundu öld (bls. 26). Sagt er að á tólftu öld hafi ð farið „að láta á sér kræla í norskum handritum“ í staðinn fyrir þ í seinni hluta orða (bls. 36) og sýnis- horn birt úr handritsbrotinu AM 655 IX 4to (Blasíus saga), sem sagt er vera frá upphafi aldarinnar. Viðurkenndur aldur þess er þó síðari helmingur aldar innar. Elsta íslenska handritið sem geymir ð er í bókinni sagt vera frá þrettándu öld, þegar fræðimenn hafa komið sér saman um fyrsta fjórðung hennar, og hér hefðu höfundar mátt vera nákvæmari (sjá Ordbog over det norrøne prosasprog. Registre. Kaupmannahöfn: Arnemagnæanske kommiss- ion 1989, bls. 459 og 462). Það var því ekkert endilega langt á milli þess að Norð menn og Íslendingar tóku stafinn upp. Er endilega öruggt að íslenskir skrifarar hafi fengið bókstafinn frá Noregi? Er ekki líklegt að hann hafi bor- ist beint frá Englandi eins og bókstafurinn þ nokkru áður? Hvimleitt er að ekki skuli vísað til heimilda í bókinni. Aðeins er hægt að átta sig á nýttum gögnum í óljósri umfjöllun um „meginrit“ í bókarlok (bls. 187–190) og í heimildaskrá (bls. 191–195), þar sem getið er tólf viðmælenda og ríflega hundrað prentaðra heimilda. Fyrir vikið verður ekki séð hvaðan höfundar hafa eftirfarandi útleggingu sína: „Að mati sérfræðinga eru elstu varðveittu ð í íslenskum handritum frá um 1240, þótt raunar sé oft erfitt að aldursetja miðaldahandrit með mikilli nákvæmni. Í elstu handritum var ritdómar170 Saga vor 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 8.5.2013 12:23 Page 170
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210
Blaðsíða 211
Blaðsíða 212

x

Saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Saga
https://timarit.is/publication/775

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.