Bændablaðið - 21.10.2021, Side 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 2021 7
LÍF&STARF
E inn af skærustu hagyrðingum
Þingeyinga síns tíma var Karl
Sigtryggsson á Húsavík. (1896-
1966). Karl var einkar tryggur sósíalisti, og
orti af undraverðu orðkynngi um pólitík ef
hún var ekki að hans skapi og skoðun. Á
tíð Karls, var starfandi ríkisstjórn landsins
boðið allri á vinafund til Norðurlandanna.
Siglt var með Gullfossi utan og heim. Af
þessu tilefni orti Karl:
Ríkisstjórnar ferðafjör
freyðir í línu hverri.
Ill er hennar utanför,
en afturkoman verri.
Skömmu fyrir jól 1964 hafði fréttarit-
ari Þjóðviljans á Húsavík, Stefán Yngvi
Finnbogason tannlæknir, samband við
hagyrðingana Karl Sigtryggsson, Egil
Jónasson og Baldur Baldvinsson, bónda
á Ófeigsstöðum í Köldukinn, og falaði
af þeim kveðskap í jólablað Þjóðviljans.
Tóku þeir félagar erindi Stefáns nokkuð
vel, einkanlega þó Karl. Allir sendu þeir
ritstjóra Þjóðviljans kveðskap sinn. Vísur
Karls Sigtryggssonar orti hann um kosn-
ingar til Alþýðusambandsþings á Húsavík.
Borgaraflokkar bæjarins höfðu gengið í
bandalag með Framsókn í fylkingarbrjósti
gegn sósíalistum. Samt töpuðu þeir kosn-
ingunum, en sósíalistar unnu slaginn. Karl
orti:
Svona fór það mútumegin.
Margir sviku í reyndinni.
Mikið var hvað mannagreyin
misstu þá af greindinni.
Döpur Framsókn fylltist kvíða.
Fjaraði í skyndi mannþyrping
eins og þegar ormar skríða
undan sól í moldarbing.
Sérstaklega var Kalli rauði ánægður með
að fá kveðskap sinn birtan í málgagni sínu:
Þjóðviljanum þykir bratt
það sem reyndist göfugt.
Ef Morgunblaðið segði satt
sólin gengi öfugt.
Agli Jónassyni þótti reyndar með ólíkindum
að fá birtan sinn kveðskap í kommablaði.
Hann orti ritstjóra Þjóðviljans harla glaður:
Hefir það mitt grama geð
glatt í alla staði,
að vera talinn maður með
mönnum í þessu blaði.
Hækka tekur hagur minn
hugurinn liðkast stirði,
ef að rauði ritstjórinn
reynist einhvers virði.
Hvað Baldri á Ófeigsstöðum þótti um tilkall
Þjóðviljans skal ekkert fullyrt, en sem sveita-
manni hefur honum verið leiðindalaust að
yrkja fyrir Þjóðviljann, enda líkt og félagar
hans, alkunnur hagyrðingur. Ekki var Nikita
Krúseff þó endanlega fallinn þegar þetta var,
1964, en sennilega tekinn að eimast biðin,
því Baldur orti fremur sorgbitinn:
Fýkur yfir frosið barð,
fölna grænu stráin.
Kalt er nú um Kinn og Skarð,
Krútséff okkar dáinn.
Í vísu Baldurs er vitnað til Köldukinnar og
Ljósavatnsskarðs. Eitthvert sinn var Baldur á
Ófeigsstöðum á ferð í bíl við fimmta mann.
Kom þá til viðbótar í bílinn áður nefndur
Karl Sigtryggsson. Þegar Karl yfirgaf svo
farþega bílsins orti hann:
Tók ég far með fimmmenningum
förlast Drottni sköpun manns.
Fór ég þá í fimmeyringum
fyrst að meta verkin hans.
Baldur svaraði að bragði, enda góðvinur
Karls og vissi hvað hann þyldi:
Allir vasar eru að springa,
einskisverðu fé er sinnt.
Milli frónskra fimmeyringa
flækist ógild rússnesk mynt.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
284MÆLT AF
MUNNI FRAM
Einþór Logi Ólafsson býr vel að aksturshæfileikum systur sinnar,
hennar Ingunnar Báru Ólafsdóttur, heimasætu á Urriðaá.
Lúkas Nóa Ólafsson langar á tónleika
með hljómsveitinni Of Monsters and Men.
Sunna Dís Sigurðardóttir kyssir hest-
inn sinn, hann Brans.
Þau Thelma Bríet Ingimundardóttir, Elva Karítas Ingimundardóttir,
Ástrós Anna Ásbjarnardóttir, Jóhann Heiðar Kjartansson, Júlía Dís
Jörundsdóttir, Hlynur Valdimarsson Kristbjargarson, Sunna Dís
Sigurðardóttir, Magnús Thor Guðmundsson og Alodía Svövudóttir
Petit baða sig í sólskininu. Myndir / Aðsendar.
Ísak Rökkvi Zakason er á afar góðum
stað í lífinu.
Elías Dagur Gnarr Ingimundarson raðar
steinum af mikilli nákvæmni.
Snorri Ólafs gerði sér lítið fyrir og hjólaði í gegnum allan
Elliðaárdalinn.
Afladrottningarnar og systurnar Anna Lilja,
Steinunn María og Vigdís Magnúsdætur.
Elíott Þorsteinsson er nú næstum
því tilbúinn að mæta í skólann aftur.
Vinkonurnar Saga Sóley Baldursdóttir, Sunna Dís
Sigurðardóttir, Helga Katrín Grímsdóttir og Ragnheiður
Wolff eru miklir dýravinir.
Frændsystkinin Snorri og Sóla
Leban skemmta sér á ströndinni.
Auður Sjöfn Thoroddsen Vivat
hoppar á ærslabelg.
Galdri Þorsteinssyni tókst að fermast! Hér er hann þriðji frá vinstri með
félögum sínum – Sævari Björnssyni, Magnúsi Kemp og Daníel Hermannssyni.