Bændablaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 40

Bændablaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 202140 LESENDARÝNI Riðuveiki í sauðfé og geitum – Útrýming veikinnar af Íslandi eða sambýli við hana áfram Í Bændablaðinu síðasta, 7. október 2021, og í pistli í sjónvarpinu nýlega, er fjallað um riðuveiki í Skagafirði og varnir gegn riðu- veiki á Íslandi. Í fyrsta lagi er fjallað um útrým- ingu með því að rækta fé sem hafi mótstöðu gegn riðuveiki. Slík rækt- un er vafasöm. Verndandi arfgerð gegn riðu, sem þekkt er í öðrum löndum, hefur ekki fundist í íslensku sauðfé svo öruggt sé eða líklegt er að að gagni geti komið hér á landi. Rannsókn og ný leit að arfgerðum í fé, sem verji gegn riðu er í gangi. Hún er þörf og góð, eins og rann- sóknir eru oftast. Óvíst er þó til lengri tíma, hver gætu orðið áhrif slíkrar ræktunar, sem kannski gæfi um skeið takmarkaða vörn. Rannsóknir, sem fyrr hafa verið gerðar, benda til þess, að slík rækt- un eyði ekki riðusmiti heldur dylji veikina, meðgöngutími hennar verði lengri og menn sitji uppi með smit eftir sem áður í stofninum. Um þetta er óvissa. Íslenskt fé er oft látið verða eldra en tíðkast víða erlendis. Ekki er vitað hvort kindur geta smitað áður en ein- kenni koma í ljós. Óraunhæft er því að fullyrða, eins og gert var, að hægt sé að útrýma riðuveiki á 10 árum við aðstæður hér á landi. Mér er ekki kunnugt um að nein lönd, sem eiga fé með verndandi arfgerð gegn riðu, hafi lýst því yfir, að þeim hafi tekist að uppræta riðuveikina úr sínu landi, þrátt fyrir margra ára tilraunir. Til framtíðar gæti slík ræktun stuðlað að langlífi riðunnar, sem við viljum útrýma. Áhrifaríkar aðgerðir Sú aðferð, sem beitt var á Íslandi gegn riðuveiki var áhrifarík og hafði næstum útrýmt riðu úr landinu, eins og kemur fram hér seinna í þessari grein. Þeirri baráttu þarf að halda áfram með sama hætti og áður. Það gæti gefið von um að útrýma mætti veikinni á Íslandi. Allt of snemma var slakað á vörnum líkt og nú gerist með kórónaveiruna í fólki. Það hefur leitt til einnar smitbylgju á fætur annarri. Lagðar voru niður margar varnarlínur, sem hindruðu samgang fjár og slakað á varúðar- reglum. sem áður giltu milli varn- arhólfa. Með því dreifist veikin og átak til útrýmingar ef illa fer verður mun erfiðara og dýrara. Í öðru lagi er því haldið fram í innsendum pistlum í Bændablaðið, að förgun á öllu fé á heilum svæðum (niðurskurður) hafi engu skilað til að verjast veikinni. Þetta er ekki rétt. Ég þekki þetta mál vel, því að ég vann í því samfellt frá upphafi viðnámsaðgerða 1978. Riðuveiki barst til landsins að talið er árið 1878 með innflutningi á enskum hrút. Smitefnið er hvorki baktería né veira, heldur sjúklegt protein sem kallast PRÍÓN. Það hefur aflagast en haldið að mestu sömu efnasam- setningu og eðlilegt protein, sem finnst í heilbrigðri skepnu. Fátt er vitað um krafta þá sem breyta eða aflaga hið eðlilega prion-prot- ein og gera það að smitefni. Eftir aflögunina hafa eiginleikar príon- proteinsins gjörbreyst. Það er orðið að smitefni, torleyst og tekur ekki þátt í efnaskiptum líkamans, eins og heilbrigð protein gera, en safnast upp í heilanum og taugavef og víðar og skemmir út frá sér og hleypir af stað riðueinkennum. Riðan færði út kvíarnar hægt og bítandi, hélt sig við Norðurland fram til 1953 og fór þá að breiðast út um landið með vaxandi hraða, líklega með verslun á fé og því sem óhreinkast hafði af fé og með hey- flutningi, því að riðan berst með heyi frá sýktum bæjum. Riðusmitefni hefur fundist í heymítlum (maur- um) frá þeim bæjum. Viðnám gegn riðu hófst með skipulegum aðgerð- um árið 1978, niðurskurði fyrst í Fjárborg í Reykjavík, þar sem voru 30 fjárhús og mismunandi eigendur, sýkt hús og ósýkt og útiblettir voru hlið við hlið með einfaldri girðingu á milli, og einungis fargað úr sýktum húsum. Aðgerðin í Fjárborg skilaði strax fullkomnum árangri, sem byggðist á sótthreinsun sýktra húsa, nákvæmu eftirliti og eftirfylgni, sem varð for- dæmi til stórtækari aðgerða á sýkt- um svæðum um land allt. Næst var ráðist gegn riðuveiki á Barðaströnd og öllu fé í sveitinni fargað, þar sem veikin hafði verið í marga áratugi og valdið miklum dauðsföllum. Það tókst líka full- komlega og byggði á því sama og í Fjárborg, rækilegri sótthreinsun, nákvæmu eftirliti og eftirfylgni. Þannig var haldið áfram hægum skrefum. Veikin hélt áfram að breiðast út annars staðar. Árið 1986 var hún komin í hámark. Þá var hún orðin hættuleg og skaðleg plága og hætta á að hún legði allt landið undir sig. Alls urðu 24 varnarhólf af 37 á öllu landinu sýkt af riðuveiki og fjöldi fjár, sem veiktist fór upp í 700 á ári. Vægari aðgerðir gegn riðunni skiluðu nokkrum árangri, en dugði ekki til að stöðva útbreiðsluna og halda veikinni í skefjum. Þá var hert á aðgerðum og gripið til niðurskurð- ar á öllu fé á sýktum svæðum. Það dugði til að uppræta riðuveikina á hverju svæðinu á eftir öðru. Alls var fargað fé á 800 riðubæjum, en aðeins 500 þeirra tóku fé aftur. Enginn taldi sér hag í því, hvorki ríkið né landeigendur, að sótthreinsa hús og umhverfi á bæjum, þar sem ekki var tekið fé aftur. Það var því ekki gert á öllum 300 bæjunum. Þar gæti því smit hafa leynst og sýkt nýjan stofn. Eftir erfiða baráttu með þessu móti í næstum 20 ár, hafði varnarhólfunum, sem reynslan bendir til að hafi losnað við riðuna fækkað niður í 3, en það eru einmitt svæðin á Norðurlandi, þar sem nú er lagt til að farga öllu sauðfé til að komast fyrir rætur veik- innar. Niðurskurður á rétt á sér og verður að fylgja eftir af nákvæmni Það er því ljóst að niðurskurður á rétt á sér, en honum verður að fylgja eftir með nákvæmni og hvergi gefa eftir, fara ekki of geyst í niðurskurðinn og tryggja fyrirfram sem allra besta samstöðu fjáreigenda. Annað sem þarf til er að tryggja að allar van- þrifakindur séu rannsakaðar en ekki grafnar, að ríkið kaupi þær, sendi í sláturhús og tryggi sjúkdóms-grein- ingu. Þar gæti verið um að ræða dýrmætustu kindur í hjörðinni, ef smitandi sjúkdómar eins og riða fyndust þá fyrr en ella. Herða þarf allt eftirlit á ný og stöðva fjárverslun innan fyrrum sýktra svæða um langt árabil og þess í stað láta sæða og/eða kaupa hrúta til kynbóta frá ósýktum svæðum. Til frekara öryggis ætti ekki, fyrstu árin eftir fjárskipti, að velja til ásetnings lömb af eigin stofni heldur kaupa þau frá ósýktum svæðum. Mistök að leggja niður Blöndulínu Mistök voru að leggja niður varnar- línur eins og Blöndulínu, sem er mjög ódýr í rekstri en gæti ef upp væri tekin á ný fækkað um tugi þúsunda því fé, sem þyrfti að farga vegna riðutilfella, því að áfram þarf að farga öllu fé á bæjum þar, sem riðuveiki finnst og bæjum, sem verið hafa í nánastri snertingu við hið sýkta fé og öllu, sem hefur verið selt frá þeim bæjum eða verið hýst þar yfir nótt eða lengur. Urðun á fé, sem skorið var niður var víða gerð. Ekki er vitað, hve lengi smithætta helst við á slíkum stöðum. Slík svæði þyrfti að skrá og kortleggja eins og gert hefur verið með miltisbrunagrafirnar á landinu öllu (sjá bókina Dýralæknatal, Búfjársjúkdómar og saga, útg. 2004, bls. 360-374), bókina Sigurður dýra- læknir II., útg. 2014, bls. 209-222 og ritið: Barátta gegn smitandi sauðfjár- sjúkdómum frá fyrri tíð, útg. 2021, bls. 24-38). 16.10 2021 Sigurður Sigurðarson, dýralæknir, s. 892 1644, Emill: sigsig@hi.is Sigurður Sigurðarson. HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Smáauglýsingar 56-30-300 Leita að bestu matarsprotum landsins til sjávar og sveita Icelandic Startups hafa síðastliðin tvö ár keyrt viðskiptahraðalinn „Til sjávar og sveita“ í samstarfi við Íslenska sjávarklasann og hafa 19 fyrirtæki farið í gegnum hraðalinn á þeim tíma. „Til sjávar og sveita“ er af mörgum talinn einn skemmtilegasti viðskiptahraðallinn sem er í boði þar sem fyrirtækin eru oftar en ekki að vinna með raunverulegar vörur sem þau geta sýnt og leyft fólki að bragða á. Í ár verður hraðallinn keyrður sem sérstakur markaðshraðall að erlendri fyrirmynd og er hann unninn í samstarfi við „GAN – Global Accelerator Network“. Nettó er bakhjarl hraðalsins annað árið í röð og taka þau virkan þátt í allri framkvæmd hraðalsins og deila þar sinni þekkingu og reynslu þegar kemur að markaðssetningu á matvöru. Verkefnið fékk einnig styrk frá atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytinu. Opnað hefur verið fyrir umsóknir og er umsóknarfrestur til 1. nóvember. Óskað er eftir fyrirtækjum sem eru langt komin í vöruþróun, tilbúin með vöru á markað eða hafa hafið markaðssókn. Aðeins fimm fyrirtæki verða tekin inn í hraðalinn og er því leitað að bestu matarsprotum landsins sem munu í gegnum hraðalinn fá öflugan undirbúning og stuðning fyrir markaðssókn innanlands og utan. Hraðallinn hefst þann 15. nóvember og lýkur með uppskerudegi þann 10. desember. Sterk nýsköpun á landsbyggðinni „Fyrirtæki af landsbyggðinni hafa tekið virkan þátt með okkur og maður finnur muninn á því á milli ára hvað nýsköpun hefur komið sterk inn þar. Það er alltaf gaman að tengja frumkvöðla saman sem eru í sama geira en þeir virðast ná sérstaklega vel saman í matvælaiðnaðinum og myndast því alltaf mögnuð stemning í þessum hraðli,“ segir Freyr Friðfinnsson, verkefnastjóri „Til sjávar og sveita“. /MHH Kemur næst út 4. nóvember
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.