Bændablaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 2021 27
Viljayfirlýsing um verkefni
sem gæti hraðað orkuskiptum
á Íslandi með uppbyggingu á
grænum orkugarði á Reyðarfirði
var undirrituð 12. október
síðastliðinn. Landsvirkjun,
Copenhagen Infrastructure
Partners (CIP) og sveitarfélag-
ið Fjarðabyggð hafa unnið að
því undanfarið að kanna kosti
þess að þróa slíkan orkugarð
og nú hafa fyrirtækin Atmonia,
Síldarvinnslan og Laxar bæst við.
Markmiðið er að meta hvernig
framleiðsla á grænu rafeldsneyti
getur greitt fyrir orkuskiptum í
sjávarútvegi, sjóflutningum og
landflutningum. Því til viðbótar
verða kannaðir möguleikar á fram-
leiðslu á kolefnislausum áburði auk
hagnýtingar súrefnis, sem er hliðar-
afurð rafeldsneytisframleiðslu, í
landeldi á fiski.
Þá verða kostir þess að nýta
glatvarma frá mögulegri rafelds-
neytisframleiðslu til húshitunar
á Reyðarfirði, sem er einn fárra
þéttbýlisstaða á landinu sem ekki
er með hitaveitu, kannaðir með
Hitaveitu Fjarðabyggðar. Aðkoma
Atmonia, Síldarvinnslunnar og
Laxa er mikilvægur áfangi í þeirri
vinnu sem nú stendur yfir við þróun
og greiningu á tækifærum sem fel-
ast í uppbyggingu græns orkugarðs
á Reyðarfirði. Fleiri fyrirtæki hafa
lýst yfir áhuga á aðkomu að verk-
efninu og standa yfir viðræður við
þau, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá Landsvirkjun.
Landsvirkjun reynir að
mæta áskorunum vegna
loftslagsbreytinga
„Landsvirkjun er í stöðugri leit
að leiðum til að mæta áskorunum
vegna loftslagsbreytinga, bæði hér
heima og á alþjóðavísu. Grænn
orkugarður á Reyðarfirði getur
skapað bæði verðmæti og þekk-
ingu samhliða því að ýta undir
orkuskipti, bætta orkunýtingu og
minni losun kolefnis.
Samstarfið við CIP og fram-
lag Fjarðabyggðar, Atmonia,
Síldarvinnslunnar og Laxa getur
hjálpað okkur að ná þessum
markmiðum,“ segir Ríkarður
Ríkarðsson, framkvæmdastjóri
Viðskiptaþróunar og nýsköpunar
hjá Landsvirkjun.
Fjarðabyggð miðstöð verðmæta-
og þekkingarsköpunar
„Við erum sannfærð um að grænn
orkugarður á Reyðarfirði getur
orðið miðstöð verðmæta- og
þekkingarsköpunar sem gagnast
mun samfélaginu til lengri tíma
og hjálpa til í baráttunni gegn
loftslagsbreytingum. Það er líka
mjög spennandi að hugsa til þess
möguleika að Reyðarfjörður muni
loksins geta fengið hitaveitu vegna
þess starfs sem hér mun fara fram,“
segir Jón Björn Hákonarson, bæj-
arstjóri Fjarðabyggðar.
Copenhagen Infrastructure
Partners (CIP) vill greiða fyrir
grænum orkuskiptum
„Verkefni eins og þetta á
Reyðarfirði skiptir sköpum fyrir
ríki og atvinnugreinar sem vilja
taka næsta stóra skrefið til að draga
úr kolefnislosun og ná markmiðum
Parísarsamkomulagsins. Markmið
okkar með verkefninu á Reyðarfirði
er að greiða fyrir grænum orku-
skiptum á Íslandi og í Norður-
Evrópu og bæta orkunýtingu með
því að nýta kosti hringrásarhag-
kerfisins.
Það er mikilvægt fyrir okkur
að vinna með jafn öflugum aðila
og Landsvirkjun og starfa með
leiðandi fyrirtækjum í sjávarút-
vegi, fiskeldi, vöruflutningum og
nýsköpun á Íslandi við að leysa úr
læðingi þau tækifæri sem felast í
grænu rafeldsneyti, grænum áburði
og verðmætasköpun úr hliðarafurð-
um rafeldsneytis-framleiðslunnar,“
segir Felix Pahl, einn meðeigenda
CIP.
Atmonia spennt fyrir Reyðarfirði
„Meginmarkmið Atmonia er að
draga verulega úr losun gróður-
húsalofttegunda með nýrri tækni
á sviði ammoníaks- og nítratfram-
leiðslu og passar þátttaka í græna
orkugarðinum fullkomlega inn í
þá vegferð.
Er tækni fyrirtækisins bæði
hagkvæm og umhverfisvæn nýj-
ung og erum við mjög spennt yfir
því að Reyðarfjörður verði með
fyrstu stöðunum þar sem okkar
tækni verður beitt í baráttunni gegn
hlýnun jarðar,“ segir Guðbjörg Rist,
framkvæmdastjóri Atmonia.
Laxar að taka þátt í mótun
á grænum orkugarði
„Sjálfbærni og ábyrgð eru meðal
kjarnagilda okkar og við erum því
hæstánægð að taka þátt í mótun á
grænum orkugarði.
Að nýta verðmætar hliðarafurðir
eins og súrefni og nota þær til að
skapa enn frekari verðmæti verður
spennandi áskorun fyrir okkur og
samstarfsfyrirtæki okkar,“ segir Jens
Garðar Helgason, framkvæmdastjóri
Laxa.
Síldarvinnslan segri verkefnið
gera orkuskipti fýsilegri
„Við leggjum áherslu á sjálfbæra nýt-
ingu sjávarauðlindarinnar, þar sem
leitast er við að nota nýjustu tækni
sem völ er á til veiða og vinnslu.
Við erum sífellt að leita leiða til að
minnka kolefnisfótspor okkar, meðal
annars með því að skipta út jarðefna-
eldsneyti fyrir sjálfbærari orkugjafa.
Þetta verkefni mun gera orkuskipti
fýsilegri og verður vonandi til þess
að framtíðin verði grænni en ella,“
segir Gunnþór Ingvason, forstjóri
Síldarvinnslunnar. /HKr.
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
Mikið úrval varahluta í Ifor Williams
og allar aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
Á mynd eru í aftari röð: Karsten Uhd Plauborg, Felix Pahl og Anna-Lena Jeppsson frá CIP og Ríkarður Ríkarðsson
frá Landsvirkjun. Í fremri röð: Hörður Arnarson frá Landsvirkjun, Jón B. Hákonarson frá Fjarðabyggð, Kristín Linda
Árnadóttir frá Landsvirkjun, Jón Már Jónsson frá Síldarvinnslunni og Guðbjörg Rist frá Atmonia.
Þrjú fyrirtæki munu taka þátt í þróunarferli
græns orkugarðs á Reyðarfirði
TÆKNI&VÍSINDI
SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND MEÐ FLYTJANDA