Bændablaðið - 21.10.2021, Qupperneq 27

Bændablaðið - 21.10.2021, Qupperneq 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 2021 27 Viljayfirlýsing um verkefni sem gæti hraðað orkuskiptum á Íslandi með uppbyggingu á grænum orkugarði á Reyðarfirði var undirrituð 12. október síðastliðinn. Landsvirkjun, Copenhagen Infrastructure Partners (CIP) og sveitarfélag- ið Fjarðabyggð hafa unnið að því undanfarið að kanna kosti þess að þróa slíkan orkugarð og nú hafa fyrirtækin Atmonia, Síldarvinnslan og Laxar bæst við. Markmiðið er að meta hvernig framleiðsla á grænu rafeldsneyti getur greitt fyrir orkuskiptum í sjávarútvegi, sjóflutningum og landflutningum. Því til viðbótar verða kannaðir möguleikar á fram- leiðslu á kolefnislausum áburði auk hagnýtingar súrefnis, sem er hliðar- afurð rafeldsneytisframleiðslu, í landeldi á fiski. Þá verða kostir þess að nýta glatvarma frá mögulegri rafelds- neytisframleiðslu til húshitunar á Reyðarfirði, sem er einn fárra þéttbýlisstaða á landinu sem ekki er með hitaveitu, kannaðir með Hitaveitu Fjarðabyggðar. Aðkoma Atmonia, Síldarvinnslunnar og Laxa er mikilvægur áfangi í þeirri vinnu sem nú stendur yfir við þróun og greiningu á tækifærum sem fel- ast í uppbyggingu græns orkugarðs á Reyðarfirði. Fleiri fyrirtæki hafa lýst yfir áhuga á aðkomu að verk- efninu og standa yfir viðræður við þau, að því er fram kemur í tilkynn- ingu frá Landsvirkjun. Landsvirkjun reynir að mæta áskorunum vegna loftslagsbreytinga „Landsvirkjun er í stöðugri leit að leiðum til að mæta áskorunum vegna loftslagsbreytinga, bæði hér heima og á alþjóðavísu. Grænn orkugarður á Reyðarfirði getur skapað bæði verðmæti og þekk- ingu samhliða því að ýta undir orkuskipti, bætta orkunýtingu og minni losun kolefnis. Samstarfið við CIP og fram- lag Fjarðabyggðar, Atmonia, Síldarvinnslunnar og Laxa getur hjálpað okkur að ná þessum markmiðum,“ segir Ríkarður Ríkarðsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun. Fjarðabyggð miðstöð verðmæta- og þekkingarsköpunar „Við erum sannfærð um að grænn orkugarður á Reyðarfirði getur orðið miðstöð verðmæta- og þekkingarsköpunar sem gagnast mun samfélaginu til lengri tíma og hjálpa til í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Það er líka mjög spennandi að hugsa til þess möguleika að Reyðarfjörður muni loksins geta fengið hitaveitu vegna þess starfs sem hér mun fara fram,“ segir Jón Björn Hákonarson, bæj- arstjóri Fjarðabyggðar. Copenhagen Infrastructure Partners (CIP) vill greiða fyrir grænum orkuskiptum „Verkefni eins og þetta á Reyðarfirði skiptir sköpum fyrir ríki og atvinnugreinar sem vilja taka næsta stóra skrefið til að draga úr kolefnislosun og ná markmiðum Parísarsamkomulagsins. Markmið okkar með verkefninu á Reyðarfirði er að greiða fyrir grænum orku- skiptum á Íslandi og í Norður- Evrópu og bæta orkunýtingu með því að nýta kosti hringrásarhag- kerfisins. Það er mikilvægt fyrir okkur að vinna með jafn öflugum aðila og Landsvirkjun og starfa með leiðandi fyrirtækjum í sjávarút- vegi, fiskeldi, vöruflutningum og nýsköpun á Íslandi við að leysa úr læðingi þau tækifæri sem felast í grænu rafeldsneyti, grænum áburði og verðmætasköpun úr hliðarafurð- um rafeldsneytis-framleiðslunnar,“ segir Felix Pahl, einn meðeigenda CIP. Atmonia spennt fyrir Reyðarfirði „Meginmarkmið Atmonia er að draga verulega úr losun gróður- húsalofttegunda með nýrri tækni á sviði ammoníaks- og nítratfram- leiðslu og passar þátttaka í græna orkugarðinum fullkomlega inn í þá vegferð. Er tækni fyrirtækisins bæði hagkvæm og umhverfisvæn nýj- ung og erum við mjög spennt yfir því að Reyðarfjörður verði með fyrstu stöðunum þar sem okkar tækni verður beitt í baráttunni gegn hlýnun jarðar,“ segir Guðbjörg Rist, framkvæmdastjóri Atmonia. Laxar að taka þátt í mótun á grænum orkugarði „Sjálfbærni og ábyrgð eru meðal kjarnagilda okkar og við erum því hæstánægð að taka þátt í mótun á grænum orkugarði. Að nýta verðmætar hliðarafurðir eins og súrefni og nota þær til að skapa enn frekari verðmæti verður spennandi áskorun fyrir okkur og samstarfsfyrirtæki okkar,“ segir Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Laxa. Síldarvinnslan segri verkefnið gera orkuskipti fýsilegri „Við leggjum áherslu á sjálfbæra nýt- ingu sjávarauðlindarinnar, þar sem leitast er við að nota nýjustu tækni sem völ er á til veiða og vinnslu. Við erum sífellt að leita leiða til að minnka kolefnisfótspor okkar, meðal annars með því að skipta út jarðefna- eldsneyti fyrir sjálfbærari orkugjafa. Þetta verkefni mun gera orkuskipti fýsilegri og verður vonandi til þess að framtíðin verði grænni en ella,“ segir Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar. /HKr. VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is Mikið úrval varahluta í Ifor Williams og allar aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum Á mynd eru í aftari röð: Karsten Uhd Plauborg, Felix Pahl og Anna-Lena Jeppsson frá CIP og Ríkarður Ríkarðsson frá Landsvirkjun. Í fremri röð: Hörður Arnarson frá Landsvirkjun, Jón B. Hákonarson frá Fjarðabyggð, Kristín Linda Árnadóttir frá Landsvirkjun, Jón Már Jónsson frá Síldarvinnslunni og Guðbjörg Rist frá Atmonia. Þrjú fyrirtæki munu taka þátt í þróunarferli græns orkugarðs á Reyðarfirði TÆKNI&VÍSINDI SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND MEÐ FLYTJANDA

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.