Bændablaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 202132 LÍF&STARF Glæsileg hrútasýning á Flúðum Þrír verðlaunahafar með bestu gimbrar sýningarinnar, frá vinstri, Óskar Snorri Óskarsson, Hruna, Atli Geir Scheving, Hrafnkelsstöðum og Grímur Guðmundsson, Ásatúni. Myndir / Magnúr Hlynur Hreiðarsson „Sýningin tókst mjög vel, hér var mikið af fólki að fylgjast með og bændur og búalið komu með brot af því besta úr fjárhúsunum sínum á sýninguna. Allur áhugi á sauðfjárrækt hér í sveitinni og víðar um landið er greinilega að vaxa mjög mikið, sem er algjörlega frábært,“ segir Árni Þór Hilmarsson, for- maður Sauðfjárræktarfélags Hrunamanna, en félagið stóð fyrir glæsilegri hrútasýningu í reiðhöll- inni á Flúðum laugardaginn 16. október. /MHH Stjórnarmenn í Sauðfjárræktarfélagi Hrunamanna klæddu sig upp á í tilefni dagsins. Frá vinstri, Atli Geir Scheving, Óskar Hafsteinn Óskarsson og Árni Þór Hilmarsson, formaður. Forystufé vakti mikla athygli gesta. Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra í Syðra Langholti, og presturinn í sveitinni, Óskar Hafsteinn Óskarsson í Hruna, voru að sjálfsögðu mættir á hrútasýninguna. Jökull Helgason á Ósabakka og Sigurfinnur Bjarkar- son voru dómarar dagsins. Samningurinn undirritaður á aðalskrifstofu Skógræktarinnar í liðinni viku. Frá vinstri eru Gunnlaugur Guðjónsson, sviðsstjóri rekstrarsviðs Skógræktarinnar, Páll Snorrason, framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs Eskju, Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri, Erna Þorsteinsdóttir, stjórnarformaður Eskju, og Sigrún Ísaksdóttir, skrifstofustjóri hjá Eskju. Eskja bindur kolefni á ábyrgan hátt með skógarkolefni Sjávarútvegsfyrirtækið Eskja á Eskifirði hefur samið við Skógræktina um að þróa kolefn- isverkefni í landi jarðarinnar Freyshóla á Fljótsdalshéraði. Þar hyggst fyrirtækið binda kolefni með nýskógrækt á um 30 hekt- ara svæði. Gróðursetningu á að ljúka vorið 2023 og með verkefn- inu verða til vottaðar kolefnisein- ingar sem tryggja ábyrga kolefn- isbindingu á móti samsvarandi losun vegna starfsemi Eskju. Með þessu verður Eskja fyrsta sjávarútvegsfyrirtækið sem ræðst í ábyrga kolefnisjöfnun sam- kvæmt kröfum Loftslagsráðs að því er fram kemur í tilkynningu frá Skógræktinni. Hlutverk Skógræktarinnar er að gera ræktunaráætlun fyrir svæðið, verkefnalýsingu fyrir kolefnisverk efnið ásamt kolefnisspá og kostnaðaráætlun til 50 ára. Verkefnið skal fullnægja kröfum Skógarkolefnis þannig að það sé tækt til vottunar óháðs vottunaraðila til skráningar í Loftslagsskrá Íslands. Loks veitir Skógræktin aðra ráðgjöf sem Eskja kann að óska eftir við þróun verkefnisins. Framkvæmdir hefjast næsta vor Gert er ráð fyrir að undirbúningi ljúki fyrir árslok og framkvæmdir hefjist næsta vor með undirbúningi lands. Gróðursett verður í byrjun og lok næsta sumars og gróðursetningu lýkur vorið 2023. Þá verður fullgróð- ursett í svæðið og við tekur vaxt- artími skógarins með reglulegum úttektum. Gangi allt að óskum verða fyrstu vottuðu einingarnar til að fimm árum liðnum frá því að gróð- ursetningu lýkur. Aðgerðir til að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar Eskja sérhæfir sig í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski sem ýmist eru frystar eða framleitt úr hágæða fiskimjöli og lýsi. Fyrirtækið hefur á undanförnum árum ráðist í ýmsar aðgerðir til að draga úr umhverfisáhrifum starfsemi sinnar en nú er landvinnsla félagsins knúin rafmagni. Sem dæmi má nefna að félagið byggði uppsjávarfrystihús 2016 og flutti þar með frystingu sjávarfangs af sjó og í land þar sem notað er rafmagn í stað olíu. Árið 2012 var mjöl- og lýsisvinnsla Eskju rafvædd að fullu. Við endurnýjun skipaflota hefur Eskja lagt og mun leggja áherslu á sparneytnari skip og draga markvisst úr olíunotkun fyrirtækisins. Eskja hefur nú hafið útgáfu á árlegri samfélagsskýrslu þar sem notuð eru viðmið Global Reporting Initiative um samfélagslega ábyrgð. Kolefnisspor er mælt samkvæmt for- skrift SFS/Nasdaq. Með þessu eykur fyrirtækið gagnsæi í starfseminni, m.a. með því að gefa upplýsingar um umhverfisáhrif og mótvægisað- gerðir og gera grein fyrir árangri í umhverfismálum. Dregið úr losun eins og mögulegt er Ábyrg kolefnisjöfnun er í góðu sam- ræmi við þessi markmið Eskju. Í henni felst að dregið sé úr losun eins og mögulegt er á hverjum tíma. Með bindingarverkefnum er einungis unnið á þeirri losun sem ekki er hægt að stöðva að svo stöddu. Til að ferlið standist álit Loftslagsráðs um ábyrga kolefnisjöfnun er mikilvægt að farið sé eftir vönduðu regluverki eða gæðakerfi, árangur verkefnis- ins sé metinn af sérfræðingum og allt ferlið að lokum vottað af óháðu vottunarfyrirtæki. Skógarkolefni er þess háttar regluverk eða gæðakerfi. Verkefni sem unnin eru samkvæmt því eru skráð í Loftslagsskrá Íslands og eftir tiltekinn tíma verða til vott- aðar kolefniseiningar sem telja má fram á móti losun eða versla með líkt og verðbréf þar til ákveðið er að nota þær á móti losun. /MÞÞ Frá Eskifirði. Mynd / HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.