Bændablaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 202132
LÍF&STARF
Glæsileg hrútasýning á Flúðum
Þrír verðlaunahafar með bestu gimbrar sýningarinnar, frá vinstri, Óskar Snorri Óskarsson, Hruna, Atli Geir Scheving,
Hrafnkelsstöðum og Grímur Guðmundsson, Ásatúni. Myndir / Magnúr Hlynur Hreiðarsson
„Sýningin tókst mjög vel, hér var
mikið af fólki að fylgjast með og
bændur og búalið komu með brot
af því besta úr fjárhúsunum sínum
á sýninguna.
Allur áhugi á sauðfjárrækt hér
í sveitinni og víðar um landið er
greinilega að vaxa mjög mikið,
sem er algjörlega frábært,“
segir Árni Þór Hilmarsson, for-
maður Sauðfjárræktarfélags
Hrunamanna, en félagið stóð fyrir
glæsilegri hrútasýningu í reiðhöll-
inni á Flúðum laugardaginn 16.
október. /MHH
Stjórnarmenn í Sauðfjárræktarfélagi Hrunamanna
klæddu sig upp á í tilefni dagsins. Frá vinstri, Atli
Geir Scheving, Óskar Hafsteinn Óskarsson og
Árni Þór Hilmarsson, formaður.
Forystufé vakti mikla athygli gesta.
Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra í Syðra Langholti, og presturinn í sveitinni, Óskar Hafsteinn Óskarsson í Hruna, voru að sjálfsögðu mættir á hrútasýninguna.
Jökull Helgason
á Ósabakka og
Sigurfinnur Bjarkar-
son voru dómarar
dagsins.
Samningurinn undirritaður á aðalskrifstofu Skógræktarinnar í liðinni viku. Frá
vinstri eru Gunnlaugur Guðjónsson, sviðsstjóri rekstrarsviðs Skógræktarinnar,
Páll Snorrason, framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs Eskju, Þröstur
Eysteinsson skógræktarstjóri, Erna Þorsteinsdóttir, stjórnarformaður Eskju,
og Sigrún Ísaksdóttir, skrifstofustjóri hjá Eskju.
Eskja bindur kolefni á ábyrgan
hátt með skógarkolefni
Sjávarútvegsfyrirtækið Eskja
á Eskifirði hefur samið við
Skógræktina um að þróa kolefn-
isverkefni í landi jarðarinnar
Freyshóla á Fljótsdalshéraði. Þar
hyggst fyrirtækið binda kolefni
með nýskógrækt á um 30 hekt-
ara svæði. Gróðursetningu á að
ljúka vorið 2023 og með verkefn-
inu verða til vottaðar kolefnisein-
ingar sem tryggja ábyrga kolefn-
isbindingu á móti samsvarandi
losun vegna starfsemi Eskju.
Með þessu verður Eskja fyrsta
sjávarútvegsfyrirtækið sem ræðst
í ábyrga kolefnisjöfnun sam-
kvæmt kröfum Loftslagsráðs að
því er fram kemur í tilkynningu frá
Skógræktinni.
Hlutverk Skógræktarinnar
er að gera ræktunaráætlun fyrir
svæðið, verkefnalýsingu fyrir
kolefnisverk efnið ásamt kolefnisspá
og kostnaðaráætlun til 50 ára.
Verkefnið skal fullnægja kröfum
Skógarkolefnis þannig að það sé
tækt til vottunar óháðs vottunaraðila
til skráningar í Loftslagsskrá Íslands.
Loks veitir Skógræktin aðra ráðgjöf
sem Eskja kann að óska eftir við
þróun verkefnisins.
Framkvæmdir hefjast næsta vor
Gert er ráð fyrir að undirbúningi
ljúki fyrir árslok og framkvæmdir
hefjist næsta vor með undirbúningi
lands. Gróðursett verður í byrjun og
lok næsta sumars og gróðursetningu
lýkur vorið 2023. Þá verður fullgróð-
ursett í svæðið og við tekur vaxt-
artími skógarins með reglulegum
úttektum. Gangi allt að óskum verða
fyrstu vottuðu einingarnar til að
fimm árum liðnum frá því að gróð-
ursetningu lýkur.
Aðgerðir til að draga úr
umhverfisáhrifum starfseminnar
Eskja sérhæfir sig í veiðum og
vinnslu á uppsjávarfiski sem ýmist
eru frystar eða framleitt úr hágæða
fiskimjöli og lýsi. Fyrirtækið
hefur á undanförnum árum ráðist
í ýmsar aðgerðir til að draga úr
umhverfisáhrifum starfsemi sinnar
en nú er landvinnsla félagsins knúin
rafmagni. Sem dæmi má nefna að
félagið byggði uppsjávarfrystihús
2016 og flutti þar með frystingu
sjávarfangs af sjó og í land þar sem
notað er rafmagn í stað olíu. Árið
2012 var mjöl- og lýsisvinnsla Eskju
rafvædd að fullu. Við endurnýjun
skipaflota hefur Eskja lagt og mun
leggja áherslu á sparneytnari skip
og draga markvisst úr olíunotkun
fyrirtækisins.
Eskja hefur nú hafið útgáfu á
árlegri samfélagsskýrslu þar sem
notuð eru viðmið Global Reporting
Initiative um samfélagslega ábyrgð.
Kolefnisspor er mælt samkvæmt for-
skrift SFS/Nasdaq. Með þessu eykur
fyrirtækið gagnsæi í starfseminni,
m.a. með því að gefa upplýsingar
um umhverfisáhrif og mótvægisað-
gerðir og gera grein fyrir árangri í
umhverfismálum.
Dregið úr losun
eins og mögulegt er
Ábyrg kolefnisjöfnun er í góðu sam-
ræmi við þessi markmið Eskju. Í
henni felst að dregið sé úr losun eins
og mögulegt er á hverjum tíma. Með
bindingarverkefnum er einungis
unnið á þeirri losun sem ekki er
hægt að stöðva að svo stöddu. Til að
ferlið standist álit Loftslagsráðs um
ábyrga kolefnisjöfnun er mikilvægt
að farið sé eftir vönduðu regluverki
eða gæðakerfi, árangur verkefnis-
ins sé metinn af sérfræðingum og
allt ferlið að lokum vottað af óháðu
vottunarfyrirtæki. Skógarkolefni er
þess háttar regluverk eða gæðakerfi.
Verkefni sem unnin eru samkvæmt
því eru skráð í Loftslagsskrá Íslands
og eftir tiltekinn tíma verða til vott-
aðar kolefniseiningar sem telja má
fram á móti losun eða versla með
líkt og verðbréf þar til ákveðið er
að nota þær á móti losun. /MÞÞ
Frá Eskifirði. Mynd / HKr.