Bændablaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 202114
FRÉTTIR
Norðurland vestra:
Tæplega eitt hundrað
gönguleiðir hnitsettar
Á liðnu sumri hefur staðið yfir
framhald af verkefni sem hófst í
fyrrasumar og snýst um hnitsetn-
ingu gönguleiða á Norðurlandi
vestra.
Liðlega 30 leiðir voru skráðar
í fyrra en nú hefur verið bætt um
betur og eftir sumarið hafa alls 94
leiðir verið skráðar, þ.e.a.s. grunn-
upplýsingar þeirra: GPS-punktar,
myndir og texti, og eru þær nú
hýstar á vefsíðunni wikiloc.
Þessi hýsing grunngagna er aðal-
lega hugsuð til að leiðirnar verði
aðgengilegar almenningi, en auk
fyrirhugaðra upplýsingahluta um
gönguleiðir á nýuppgerðri vef-
síðu Markaðsstofu Norðurlands
hefur Ferðamálastofa einnig hrint
af stað verkefni þar sem flestallar
gönguleiðir landsins eiga að vera
undir.
Einnig er í skoðun að gönguleið-
irnar verði aðgengilegar hjá fleiri
erlendum efnisveitum, sem sérhæfa
sig í framsetningu og miðlun efnis
til áskrifenda sinna. Þá eru leiðirn-
ar og aðgengilegar á yfirlitskorti
á vefsjá Samtaka sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra þar sem greint
er frá þessu.
Fyrirhugað er að skiltamerkingar
við upphafspunkt leiðanna sýni
QR-kóða, sem fólk getur nýtt til að
hlaða leiðirnar upp í síma sína.
350 kílómetrar að baki
Anton Scheel Birgisson hefur haft
umsjón með hnitsetningum í sumar
en ekki er þó ofsögum sagt að meira
hafi mætt á fótum hans þegar tillit er
tekið til þess að Anton hefur lagt að
baki alls um 350 kílómetra í sumar
við verkefnið. Einnig hefur verk-
efnið notið velvildar gönguhópa
á svæðinu, bæði í Skagafirði og á
Blönduósi, sem og sveitarfélaga
sem hafa lagt til leiðir sem hnitsettar
höfðu verið á þeirra vegum.
Verkefnið var skilgreint sem eitt
af átaksverkefnum í kjölfar Covid-
19 og sem slíkt fjármagnað með
sérframlagi stjórnvalda í gegnum
Uppbyggingarsjóð Sóknaráætlunar
Norðurlands vestra. /MÞÞ
Opnað fyrir tilnefningar norrænu
matvælaverðlaunanna Emblu 2021
– Þekkir þú einhvern sem skarar fram úr í matvælaiðnaði?
Kallað er eftir tilnefningum fyrir
Norrænu matvælaverðlaunin
Emblu 2021 sem veitt verða í
þriðja sinn í Osló á næsta ári.
Vegna heimsfaraldursins þurfti
að fresta verðlaununum í vor en
nú taka Norðmenn við keflinu í
mars en verðlaunin eru styrkt
af Norrænu ráðherranefndinni.
Norrænu matvælaverðlaunin
Emblan fara fram í þriðja sinn í
Osló á næsta ári en fyrst var keppn-
in haldin í Kaupmannahöfn og
síðan í Hörpunni í Reykjavík árið
2019. Í flokkunum sjö á norrænu
matvælaverðlaununum Emblunni
er lögð áhersla á hráefni, listfengi,
miðlun og fólkið bak við matinn
í heimi norrænnar matargerðar.
Emblu-matarverðlaunin voru sett á
stofn af sex norrænum landbúnað-
arstofnunum árið 2017 og hlutverk
þeirra er að breiða út þekkingu á
norrænum matvælum.
Norræna samkeppnin er erfið,
á milli bestu framleiðendanna,
miðlara og áfangastaði fyrir nor-
ræn matvæli. Norræna eldhúsið
er vel þekkt fyrir hreint bragð
og ósveigjanleg samskipti og
hefur gert „norrænan mat“ að
hugtaki sem nær langt út fyrir
Norðurlöndin.
„Markmiðið með Emblu-
verðlaununum er að bæta sjálfs-
mynd norræns matar og heiðra
fólkið á bakvið matinn,“ segir
Bjørn Gimming, formaður norsku
Bændasamtakanna, en Noregur er
gestgjafi verðlaunanna árið 2022.
Í mars verður norrænum mat
fagnað með verðlaunaafhendingu
í Osló. Nú hefur verið opnað fyrir
tilnefningar í sjö flokkum. Nú geta
allir tilnefnt sjálfa sig, samstarfs-
mann eða þá sem eru til fyrirmynd-
ar í matvælageiranum.
Á emblafoodaward.com getur
þú nú tilnefnt aðila í eftirfarandi
flokkum:
• Norrænn matvælaframleið-
andi
• Frumkvöðull í norrænni mat-
argerð
• Handverksmaður í norrænni
matargerð
• Boðberi norrænar matargerðar
• Norrænn matur fyrir marga
• Áfangastaður í norrænni mat-
argerð
• Norrænn matur fyrir börn og
ungmenni
Mismunandi viðmið verða notuð
við mat á þeim sem tilnefndir
verða, eins og sjálfbærni, frumleiki,
heiðarleiki og „norrænt“. Opið er
fyrir tilnefningar á heimasíðunni í
október. Dómnefnd í hverju landi
fyrir sig mun velja keppendur í
hverjum flokki frá sínu eigin landi.
Þeir sem verða fyrir valinu verða
kynntir um miðjan desember.
Norrænu matvælaverðlaunin
Embla voru stofnuð af norrænu
Bændasamtökunum og eru styrkt
af Norrænu ráðherranefndinni.
Verðlaunin eru hluti af Nýju nor-
rænu matvælaáætluninni. Að þessu
sinni eru verðlaunin haldin í þriðja
sinn og fara fram í Osló þann 11.
mars 2022.
Um Emblu-matarverðlaunin
Sex norrænar landbúnaðarstofnanir
standa að baki Emblu sem Norræna
ráðherranefndin styður einnig fjár-
hagslega sem hluta af áætluninni
Ný norræn matargerðarlist III.
Markmiðið er að lyfta norrænni
matarmenningu og skapa aukinn
áhuga á henni utan svæðisins.
Emblu-verðlaunin eru veitt
annað hvert ár. Dómnefndir í
hverju landi senda tilnefningar í
mismunandi flokkum til norrænn-
ar dómnefndar sem tekur lokaá-
kvörðun um verðlaunahafa.
Handhafar verðlaunanna 2017
Hinir sjö handhafar Embluverð-
launanna 2017 voru:
• Matur fyrir börn og ung-
menni 2017; Geitmyra
Matkultursenter, Noregi
• Matvælaiðnaðarmaður
Norðurlanda 2017; Leif
Sørensen, Fish Chips,
Færeyjum.
• Matur fyrir marga; 2017:
Annika Unt, Svíþjóð.
• Matarblaðamaður
Norðurlanda 2017; Michael
Björklund, Smakbyn,
Álandseyjum.
• Mataráfangastaður
Norðurlanda 2017;
Heimablídni, Færeyjum.
• Hráefnisframleiðandi
Norðurlanda 2017;
Dímunargardur, Færeyjum.
• Matarfrumkvöðull
Norðurlanda 2017; Thomas
Snellman, REKO, Finnlandi
Verðlaunahafarnir 2019
Samkeppnin var hörð og voru allt
að sjö tilnefndir í hverjum flokki.
Verðlaunahafarnir voru:
Norrænn matvælaframleiðandi
2019: Grøna Oyggin, Færeyjum
Verðlaunahafinn hefur tekist á
við þá áskorun að rækta grænmeti
í Færeyjum með því að þróa sér-
staka ræktunaraðferð fyrir óblíð
veðurskilyrði. Aðgengi að hágæða
framleiðslu úr heimabyggð hefur
verið mikilvægt fyrir þróun fær-
eyskrar matargerðarlistar.
Norrænn matvælafrumkvöðull
2019: Bondens Skafferi, Svíþjóð
Verðlaunahafinn tengir saman
framleiðendur, matreiðslumenn
og matvöruverslanir. Hann hjálp-
ar bændum að koma framleiðslu-
vöru sinni á markað og tryggir að
framleiðendur fái gott verð fyrir
framleiðsluvöru sína. Skafferi
vekur athygli á mikilvægi upp-
runa matvælanna, gæða þeirra og
árstíðabundins breytileika.
Norrænn matvælalistamaður
2019: Ainoa Winery, Finnlandi
Verðlaunahafinn hefur fyllt upp
í eyðu í norrænni matargerðarlist
með því að nota villt ber og önnur
hágæðahráefni úr skógum til þess
að búa til vín sem hefur verið vel
tekið alþjóðlega og eru punktur-
inn yfir i-ið með matnum og skapa
hreina norræna bragðreynslu.
Norrænn matvælamiðlari 2019:
Claus Meyer, Danmörku
Claus Meyer hefur veitt danskri
matarmenningu innblástur í ára-
tugi. Í tengslum við stefnuyfir-
lýsinguna um ný norræn matvæli
miðlar Claus Meyer af hugsjón og
krafti um staðbundna framleiðslu,
sjálfbærni, aðlögun og líffræðilega
fjölbreytni.
Norrænn matur fyrir marga
2019 Anne-Birgitte Agger,
Danmörku. Verðlaunahafinn er
„vél með sýn“, óþreytandi að
skapa tækifæri sem þjóna þeirri
hugsjón að sjá eldhúsum opinberra
stofnana heillar borgar fyrir sjálf-
bærum, næringarríkum máltíðum
sem matreiddar eru frá grunni. Hún
leitast alltaf við að verja það sem
veikara er fyrir og skorar á alla –
frá forystufólki til námsmanna – að
velja sjálfbærni og umhverfið, allt
frá því sem fer á diskinn og áfram.
Norrænn mataráfangastaður
2019: Gimburlombini – Nólsoy,
Færeyjum.
Hinni litlu og afskekktu eyju
Nólsoy hefur tekist að komast á
kortið með því að virkja heimafólk
í ferðamennsku. Heimafólkið nýtir
það sem eyjan hefur upp á að bjóða
á nýskapandi og nútímalegan hátt.
Áður hafði fólkið yfirgefið eyjuna.
Nú er það um kyrrt og tekur þátt í
frásögninni um þennan áfangastað.
Norrænn matur fyrir börn og
ungt fólk 2019: Hävikki-battle –
baráttan gegn matarsóun – Motiva
Oy, Finnlandi.
Verðlaunahafinn hefur þróað
aðferð til þess að kenna og hvetja
ungt fólk til að breyta matarsóun
í verðmæti og deila því á samfé-
lagsmiðlum. Með því að nota allar
hugsanlegar aðferðir og koma til
móts við ungt fólk í daglegu lífi
þess skapar verkefnið þekkingu og
áhugahvetjandi meðvitund til þess
að læra af reynslu út lífið.
/ehg
SNJÓKEÐJUR
Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna!
isfell.is • sími 5200 500 Þekking og þjónusta
Anton Scheel Birgisson gönguhrólfur á góðum sumardegi. Mynd / Ssnv