Bændablaðið - 21.10.2021, Qupperneq 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 2021 19
Prófaðu nýju ostana frá Ostakjallaranum.
Sælkeraostar gerðir í takmörkuðu magni.
ALLAR GERÐIR
TJAKKA
SMÍÐUM OG GERUM VIÐ
VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður
Hraun 5 Reyðarfirði
Sími 843 8804 • Fax 575 9701
www.vhe.is • sala@vhe.is
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
RÚÐUR Í
DRÁTTARVÉLAR
FRÁBÆR VERÐ
John Deere
Zetor
Case IH
McCormick
Steyr
Claas
Ford
Fiat
New Holland
Deutz-Fahr
Massey Ferguson
Breiðdalsbiti Guð-
nýjar leggst í dvala
Nýverið auglýsti Guðný Harðar
dóttir hluta af tækjabúnaði sínum
til sölu, en hún hefur á undan
förnum árum rekið smáfram
leiðslu matvæla undir vöru
merkinu Breiðdalsbiti.
Hún segir ástæðuna
vera fjármagns- og
tímaskortur og því
neyðist hún til að
setja framleiðsl-
una í dvala.
Breiðdalsbiti
Guðnýjar hafði
skapað sér sess
meðal íslenskra
smáframleiðenda
matvæla, en helstu
vörurnar undir vörumerk-
inu voru unnar kjötvörur íslensku
sauðkindarinnar – einkum úr
ærkjöti. Guðný er sauðfjárbóndi á
Gilsárstekk í Breiðdal.
„Ég er ein með sauðfjárbúskap-
inn og þrjú börn og það er einfald-
lega ekki tími afgangs til að sinna
Breiðdalsbitanum nægilega vel,“
segir Guðný.
Vonandi bara tímabundinn dvali
„Ég er að selja allan
þriggja fasa tækja-
búnað, en vonandi
er þetta bara
tímabundið sett
í dvala,“ bætir
hún við.
Breiðdalsbiti
var stofnað-
ur árið 2016
þegar ábúendur
á Gilsárstekk og
Hlíðarenda í Breiðdal
tóku höndum saman og
stofnuðu félag utan um reksturinn.
Markmiðið var að framleiða
heilnæmar og góðar vörur úr sauð-
fjárafurðum. Meðal þekktra vara
út þeirri vöruþróun eru til dæmis
léttreykt ærbjúgu og ærberjasnakk.
/smh
Vík í Mýrdal:
Hámarkshraði verði
þrjátíu kílómetrar
Nú er til umræðu í sveitarstjórn
Mýrdalshrepps að leyfilegur
hámarkshraði í þéttbýlinu í Vík
verði lækkaður úr 50 km/klst. í
30 km/klst. á öllum götum nema
þar sem þjóðvegur 1 liggur eftir
Austurvegi.
„Já, þetta hefur verið í óform-
legri umræðu já okkur í þó nokkurn
tíma, við höfum fundið fyrir áhuga
íbúa og þá sérstaklega foreldra
barna sem ganga í skólann í Vík.
Þetta er gert fyrst og fremst til að
tryggja öryggi gangandi og hjólandi
vegfarenda.
Við viljum gjarnan að íbúar
geti haft áhrif á þessa framkvæmd
og höfum þess vegna auglýst eftir
ábendingum eða athugasemdum
frá íbúum. Samhliða þessu erum
við að endurskoða og betrumbæta
umferðarmerkingar.
Almennt aka bæði íbúar og
gestir okkar varlega en sumir
fullnýta hámarkshraða og eru þá
kannski í einhverjum tilfellum að
detta í 55 til 60 km, sem er orðinn
talsverður hraði í þéttbýli,“ segir
Þorbjörg Gísladóttir, sveitarstjóri
Mýrdalshrepps. /MHH
FRÉTTIR