Bændablaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 202120
Þrátt fyrir mikið regluverk
í matvælaiðnaði í Evrópu og
umfangsmikið eftirlitskerfi berast
stöðugt fréttir af matvælasvindli
og notkun margvíslegra eiturefna
í matvælum. Hafa ólögmæt
eiturefni eins og etýlen oxíð verið
notuð í þúsundir vörutegunda sem
enn er verið að eltast við í Evrópu.
Sumar þessara vörutegunda hafa
verið í sölu á Íslandi, jafnvel
lífrænar vörur.
Samkvæmt upplýsingum frá
MAST eru opinberar tilkynningar um
etýlen oxíð varnarefni sem ólöglegt
hefur verið notað í matvælaiðnaði
í Evrópu komnar upp í 679 frá því
haustið 2020.
Upplýst hefur verið m.a. um
notkun á sveppaeitri í matvælum
sem inniheldur etýlen oxíð (ethylene
oxide), en efnið er skilgreint
sem krabbameinsvaldandi
eiturefni með erfðabreytandi
eiginleikum. Alþjóða heil
brigðismálastofnunin WHO
lýsti áhyggjum yfir notkun á
etýlen oxíði þegar árið 2003.
Samkvæmt upplýsingum sem
MAST sendi Bændablaðinu þá
hefur etýlen oxíð ekki bráða
eiturvirkni, en efnið hefur
erfðaeituráhrif (getur skaðað
erfðaefnið) og getur því haft
skaðleg áhrif á heilsu. Efnið er
bannað að nota í matvælaiðnaði.
Fyrst greint frá menguðu
sesamfræi frá Indlandi
Fréttir af afhjúpun á notkun ólöglegra
efna í matvælum hafa verið áberandi
á Evrópu á liðnum misserum. Hafa
fréttirnar valdið miklu uppnámi í
matvælageiranum víða í Evrópu.
Á vefsíðu Food Safety News
segir m.a. að etýlen oxíð skandallinn
sem fyrst var upplýst um í Belgíu
varðandi innflutt sesamfræ frá
Indlandi í september 2020 teygi anga
sína víða inn í matvælaframleiðsluna.
Vörur með etýlen oxíð innihaldi
eru sagðar hafa fundist í þúsundavís,
bæði í hefðbundnum neysluvörum
og líka í vörutegundum sem aug
lýstar eru
sem líf
rænar en með
langan líftíma. Þar eru
t.d. nefndar döðlur, kornvörur,
súkkulaði, kex, brauð, hrökkbrauð,
krydd og kringlur. Í þessum vörum
var etýlen oxíð notað til að lengja líf
tíma með því að halda niðri örveru
myndun og salmonellusmiti. Slík
notkun á etýlen oxíði í matvælum
er með öllu bönnuð í Evrópu en látin
óátalin víða um heim.
Fannst líka í E410
Etýlen oxíð fannst svo líka í þykk
ingar eða bindiefninu E410. Ekki
kemur fram hvort mjöli úr sesam
fræði hafi verið blandað í E410. Hins
vegar sagði á vefsíðu Food Safety
News þann 20. júlí síðastliðinn
undir „Breaking news for everyone's
consumption,“ að:
„Sérfræðingar sögðu að engin
skýr viðmiðunarmörk hafi verið sett
fyrir neytendur varðandi vörur sem
innihalda aukefnið og vitað er að er
mengað af etýlen oxíði. Þetta þýðir
að matvæla- eða fóðurfyrirtæki sem
hafa sett slíkar vörur á markað ESB
þurfa að hætta dreifingu og innkalla
þær.“
Innköllunarskylda sett á etýlen
oxíð-mengað E410 bindiefni
Haldin var vefráðstefna um þessi
mál með fulltrúum allra aðildarríkja
Evrópusambandsins auk fulltrúa
Noregs og Íslands dagana 29. júní,
30. júní og 13 júlí. Var fundurinn
haldinn í því augnamiði að sam
ræma aðgerðir gagnvart viðbrögðum
við notkun etýlen oxíð í matvælum.
Í fundargerð segir m.a. að
aðildarríki þessa
samstarfs hafi komist að
þeirri niðurstöðu að í samræmi við
lagaákvæði í almennri matvælalög
gjöf GFL væri staðan þessi:
„Fyrir þær vörur sem innihalda
aukefnið E410 sem vitað er að er
mengað af etýlen oxíð, þ.e. auka
efnið inniheldur etýlen oxíð í magni
yfir viðmiði (Limit of Quantiation
LOQ eða 0,1 mg/kg sem kveðið er
á í reglugerð 396/2005), er ekki hægt
að skilgreina nein örugg mörk fyrir
neytendur. Þar af leiðandi á hvaða
stigi neytendur kunna að verða fyrir
skaða. Það felur því í sér hugsanlega
áhættu fyrir neytendur.
Þar af leiðandi er nauðsynlegt,
til að tryggja hámarks heilsu
verndarsjónarmið, að matvæla eða
fóðurframleiðendur sem hafa sett
slíkar vörur á markað ESB, skuli
undir stjórn innlendra lögbærra
yfirvalda, taka þær vörur til baka af
markaði ESB, og innkalla þær til að
koma í veg fyrir neyslu.“
E410 notað í íslenskri
matvælaframleiðslu
Við lauslega athugun Bændablaðsins
er ljóst að bindiefnið E410 er
notað í fjölda matvæla sem hér
eru á boðstólum og meðal annars
í brauðskinku og bacon og fjölda
sósutegunda sem hér er framleiddar.
Í ljósi erlendra frétta var ítrekað send
fyrirspurn til MAST um hvort ör
uggt sé að E410 sem hér er notað
í matvælaframleiðslu innihaldi
ekki etýlen oxíð. Í svarinu segir
að Matvælastofnun hafi ekki látið
mæla etýlene oxíð í matvörum sem
innihalda E 410. Þar segir einnig:
„Fyrirtækin voru kvött til að
athuga sína vörur m.t.t. E 410 og
láta rannsaka til að vera viss um
matvælaöryggið. Heilbrigðiseftirlitð
sem er með markaðseftirlit gengur
eftir því við eftirlitsskoðanir.”
30 innkallanir á Íslandi
Ísland tekur þátt í að innkalla þessa
vörur og hafa 30 tilkynningar borist
um matvæli sem eru innkölluð og
hafa komið til Íslands. Ísland hefur
tilkynnt eina vöru sem greinist ethy
lene oxíð í hráefni sem notað var í
töflur með fæðubótarefni. Ekki hafa
allar vörurnar sem eru innkallaðar
komið til Íslands eða náð því að fara
á markað.
Ísland er aðili að Evrópska hrað
viðvörunarkerfi RASFF (rapid alert
system of food and feed). Kerfið
tengist inn í önnur viðvörunarkerfi
í heiminum eins og INFOSAN
(The International Food Safety
Authorities Network (INFOSAN)
is a global network of 186 national
food safety authorities).
Mögulega í þúsundum
vörutegunda
Fréttir hafa borist af matvörum sem
rannsakaðar hafa verið og innihaldið
allt að þúsund sinum meira af etý
len oxíði en talið er heilsufarslega
ásættanlegt. Í franska vikublaðinu Le
Point er greint frá því að yfir 7.000
vörutegundir sem innihaldi etýlen
oxíð hafi verið innkallaðar í landinu.
Þetta kemur líka fram á vefsíðu Food
Watch, en þar segir að önnur ríki
Evrópusambandsins hafi ekki gripið
til svo viðamikilla innkallana.
Í sumum ESB löndum hafi svo
engar ráðstafanir verið gerðar til að
bregðast við vandanum. Virðist sem
Frakkland sé eina landið innan ESB
sem farið hefur að fullu eftir reglum
sambandsins um leyfilegt innihald
snefilefna í matvælum eins og etý
len oxíð.
Ís, gerjaðar mjólkurvörur,
ostar, kjötvörur, kex,
hrökkbrauð og
morgunkorn
Þrátt fyrir að etýlen
oxíð sé á bannlista yfir
íblöndunarefni í mat
væli, hefur það samt
verið að finna í þykking
arefni sem mikið er notað
í ísgerð, m.a. hjá Nestlé,
Mondelez og Picard,
morgunkorni, kjötvörum,
sæl gæti, gerjuðum mjólk
urvörum og ostum.
Yfir 60 ístegundir
innkallaðar í Frakklandi
Yfir 60 vinsælar ístegundir
sem seldar eru í Frakklandi
hafa verið innkallaðar vegna
þess að þær geta innihaldið
mikið magn af eitruðu efni.
Ísinn var seldur undir vöru
merkjunum Auchan, Carrefour,
Netto, Picard og Extrême, en
greint var frá þessu á fréttasíðu
The Connexion í Frakklandi. Var
etýlen oxíð notað í ísinn til að
drepa bakteríur. Vísaði fréttamið
illinn síðan í langan lista franskra
yfirvalda yfir vöruflokka sem talið
er að geti innihaldið etýlen oxíð.
Framkvæmdastjórn ESB ákvað
að fara að ráði Frakka og fylgja
eigin reglum
Eftir margs konar umræður á vett
vangi Evrópusambandsins um hvort
fylgja ætti reglugerðinni til hins
ýtrasta, eins og gerðist í Frakklandi,
gaf framkvæmdastjórn ESB út til
kynningu um málið þann 16. júlí
síðastliðinn. Þar segir að öll aðildar
ríkin verða að ábyrgjast heilsuöryggi
Evrópubúa og innkalla allar vörur
sem hafa orðið fyrir áhrifum etýlen
oxíð mengunar, þar með talið þær
vörur sem innihalda mengað bindi
efni E410 sem oft er notað í ís.
Glæpsamleg notkun sem getur
stóraukið gróða framleiðenda
Fjöldi funda hefur verið haldinn um
þessi mál á meðal yfirvalda í Evrópu,
en enn virðist ekkert lát á ólöglegri
notkun á etýlen oxíði. Notkun snýst
um peninga og glæpsamlegar leiðir
til að auka endingu á neysluvörum
í hillum verslana. Slíkir hagsmunir
geta verið mjög sterkir og teygt
anga víða. Sem dæmi þá sögðust
Belgía og Danmörk ætla að fylgja
aðgerðum ESB eftir, en lýstu um
leið yfir áhyggjum með beitingu á
kerfisbundnum innköllunum á öllum
matvælum sem eru framleidd með
hráefni yfir lögbundnu hámarks
innihaldi. Báðar þjóðirnar höfðu
áhyggjur af þeim mörkum sem sett
eru á notkun etýlen oxíð og töldu
að þau væru ekki í samræmi við
evrópskar reglugerðir um eftirfylgni
hugsanlega mengaðra matvæla og
fóðurs. Virðist því vera ósamræmi
í framkvæmd aðgerða á milli landa
ESB. Umræða kom líka upp um að
stöðva innköllun á vörum sem inni
héldu minna en 0,02 milligrömm af
etýlen oxíði í hverju kílógrammi af
vörum sem framleiddar voru fyrir
14. júní 2021.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Etýlen oxíð sem bannað er að nota í matvæli hefur vakið upp eiturefnaskandal í evrópskri matvælaframleiðslu:
Vel á sjöunda hundrað tilkynninga í ESB um
ólöglega notkun eiturefna í matvælum
– Frakkar stórtækir í innköllunum en mikið ósamræmi á milli ESB landa – um 30 innkallanir á Íslandi en mælingar mjög takmarkaðar
E410 er einnig nefnt „Locust
bean gum arob gum,
carob bean gum, carobin eða
karagúmmí.
E410 eða Locust bean
gum, er unnið úr fræjum carob
trésins sem algengt er við
Miðjarðarhaf. Baunirnar hafa
sætubragð og þegar þær eru
muldar í duft hafa þær oft verið
notaðar sem íblöndunarefni og
sem sætuefni í súkkulaði. Á
árinu 2016 kom um 75% fram
leiðslunnar frá Portúgal, Ítalíu
og Marokkó.
Locust bean gum
– E410 –
Hluti vöru-
tegunda sem
innkallaðar
hafa verið.
Tákn fyrir efnasamsetningu etýlen oxíðs