Bændablaðið - 21.10.2021, Page 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 202122
UTAN ÚR HEIMI
Heimsmetabók Guinness:
Vetnisdrifni rafbíllinn Toyota
Mirai setti nýtt heimsmet
– Komst nær 1.360 km (845 mílur) á einni tankfyllingu (5,65 kg) af vetni
Toyota Mirai 2021 hefur opin
berlega slegið metið fyrir mestu
vegalengd vetnisknúins rafbíls
á einni tankfyllingu samkvæmt
Heimsmetabók Guinness.
Í hringferðinni í suðurhluta
Kaliforníu sem farin var dagana
23. og 24. ágúst 2021 náði Mirai
óvænt að ljúka 845 mílna (1.359.9
km) ferðalagi á einni tankfyllingu af
vetni og setti um leið nýtt heimsmet.
Aðeins tók fimm mínútur að fylla
vetnistanka bílsins fyrir aksturinn.
Lengdarmet Toyota Mirai var
nýlega viðurkennt af Ward's Auto
motive sem tíundi besti árangur allra
véla og drifkerfa og setji ný viðmið
í akstursvegalengd bíla sem losa
engan koltvísýring.
Notaði 5,65 kg af vetni
Það þurfti 5,65 kg af vetni til að fylla
geyma Mirai og var ekið framhjá 12
vetnisáfyllingarstöðvum á leiðinni
án þess að tekið væri eldsneyti. Mirai
var að mestu ekið á álagstíma á um
ferðargötum. Hitastigið á leiðinni
var á bilinu 18° til 28°C (65 til 83
gráður á Fahrenheit). Á leiðinni
skilaði efnarafallinn 0 kg af CO2
en hefðbundinn brunahreyfill hefði
framleitt um 292 kg af CO2 á sama
tíma.
Þriðja kynslóð Toyota Mirai
„Toyota Mirai var fyrsti vetnis
efnarafalsbíllinn sem boðinn var í
smásölu í NorðurAmeríku árið 2016
og nú er önnur kynslóð Mirai að
setja upp akstursmet. Þessi nýstár
lega tækni, er aðeins ein af mörgum
losunarfríum lausnum á okkar sviði
og veitir okkur gleði yfir að vera
leiðandi í greininni á þessu sviði,“
sagði Bob Carter, framkvæmdastjóri
Toyota Motor North America.
Tilraun Toyota Mirai til að setja
heimsmetið var gerð undir miklu
eftirliti starfsfólks Heims metabókar
Guinness, sem tryggði að fylgt væri
öllum formsatriðum og ströngustu
reglum samtakanna. Mirai náði
merkilegum árangri í skilvirkni og
það eina sem kom út úr púströrinu
var vatn. Vetnistankar Mirai voru
teknir út af Michael Empric, dómara
GUINNESS WORLD RECORDS,
bæði í upphafi og við lok ferðar
innar.
Tveggja daga ferðalagið hófst
mánudaginn 23. ágúst 2021 hjá
tæknisetri Toyota í Gardena í
Kaliforníu. Þar eru höfuðstöðvar
eldsneytisþróunardeildar Toyota.
Tæknilegur ökumaður var Wayne
Gerdes, en við stýrið var Bob
Winger. /HKr.
Vetnisknúni rafbíllinn Toyota Mirai árið 2021 komst í Heimsmetabók GUINNESS WORLD RECORDS í ágúst fyrir
lengstu vegalengd sem bifreið búin vetnis-efnarafal hefur komist á einni tankfyllingu, eða 1.360 km. Aðeins tók
fimm mínútur að fylla á tankana fyrir aksturinn og útblásturinn úr púströrinu var hreint vatn.
Veitingastaðurinn Noma í Kaupmannahöfn:
Sá besti í heimi í fimmta sinn
– Hlaut einnig þrjár Michelin-stjörnur fyrr á árinu
Veitingastaðurinn Noma í Kaup
mannahöfn var nýlega útnefndur
besti veitingastaður í heimi fyrir
árið 2021. Er það í fimmta sinn
sem staðurinn fær þessa útnefn
ingu.
Danskir veitingastaðir stóðu sig
vel í ár á meðal 50 bestu veitinga
staða heims. Þar var veitingastaður
inn Geranium í öðru sæti, en hann er
einnig í Kaupmannahöfn.
Jafnar afrek spænska
meistarans Ferran Adrià
Eigandi Noma, René Redzepi, var
áður efstur á listanum 2014, 2012,
2011 og 2010. Með útnefningunni í
ár jafnar hann stöðu veitingarstaðar
ins El Bulli hjá spænska matreiðslu
meistaranum Ferran Adrià, sem áður
átti metið fyrir að vera oftast í efsta
sæti.
Talsmenn The World's 50 Best
Restaurants sem standa að þessum
viðurkenningum hrósa Noma fyrir
nýstárlegan matseðil og notkun á
villtu hráefni.
„Engin ferð til Noma er nokkurn
tíma sú sama, þar sem René Redzepi
og teymi leita stöðugt að óvæntum
hráefnum og breyta þeim í fallega
rétti,“ segir í viðurkenningunni.
„Stundum þegar þú ferð í verð
launaafhendingu eins og þessa ... þá
finnur þú andlitið mitt,“ sagði René
Redzepi sposkur við þetta tækifæri.
Starfsfólkið er mér allt
„Ég lít á Noma sem risastóra þraut
og hver einstaklingur sem hefur tekið
þátt, hvort sem hann hefur verið nemi
eða eitthvað annað, á pínulítinn bita
af þrautinni. Án allra sem að þessu
koma er það ekki fullkomið.
Á þessum heimsfaraldurstímum
þurfti ég að glíma við miklar upp
sveiflur og niðursveiflur, aðallega
niðursveiflur. Ég get í hreinskilni
sagt að það sem hélt mér gangandi
var að vita að ... ég á þessa stórfjöl
skyldu sem ég treysti og það var mér
allt.“
Fyrr á þessu ári hlaut Noma þrjár
Michelinstjörnur. Michelin benti á
„sterka tengingu veitingastaðarins
við náttúruna og með heildrænni
nálgun sé óvenjulegt árstíðabundið
hráefni sýnt í skapandi og flóknum
réttum.“ /HKr.
Ferðamenn gengu fram á rúmlega 3 km langa sprungu í jarðvegi einnar
gróðurlausustu eyðimörk Arizona í Bandaríkjunum.
Sprungumyndun í
eyðimörk Arizona
René Redzepi fremstur til hægri á myndinni ásamt samstarfsfólki sínu á
Noma að fagna útnefningunni.
Ferðamenn ráku upp stór augu
er þeir gengu fram á rúmlega
3 km langa sprungu í jarðvegi
einnar gróðurlausustu eyðimörk
Arizona í Bandaríkjunum. Að
sögn jarðfræðinga á svæðinu
hjá stofnun að nafni Arizona
Geological Survey (AZGS) kom
sprungan nýverið í ljós er dróni
í eigu stofnunarinnar myndaði
svæðið.
Stærð sprungunnar er gífurleg
og á meðan hún er tiltölulega grunn
norðan megin, nær hún marga metra
niður í jörðina sunnan megin, eða
samkvæmt mælingum um níu
metra. Ástæða þess er vegna eldri
jarðvegar norðan til að sögn jarð
fræðinganna, sem benda á að vegna
jarðhræringa áður fyrr hafa myndast
á einhverjum stöðum op eða hell
ar neðanjarðar sem nú opnast enn
frekar vegna sprungunnar.
Jarðfræðingur að nafni J. Cook
sagði enn fremur að sprungur sem
slíkar væru ekki óalgengar á þessu
svæði, en vegna vatnsleysis myndist
gliðnun gjarnan í jarðveginum.
AZGS fylgist sem stendur með
26 öðrum stöðum þar sem einnig
hafa myndast svipaðar sprungur
og áætla að þær gliðni enn frekar á
komandi árum vegna vatnsþurrðar
og almennra jarðhræringa.
Stofnunin Arizona Geological
Eurvey hefur í nær 120 ár staðið
fyrir rannsóknum, kortlagningum og
skýrslugerðum varðandi jarðfræði
leg málefni. Hægt er að nálgast upp
lýsingar og ýmsan fróðleik á vefsíðu
þeirra (https://azgs.arizona.edu/) og
hala niður margvíslegu efni, fólki að
kostnaðarlausu. Einnig hýsir þessi
vefsíða blogg og fréttablað og er
finnanleg á samfélagsmiðlum fyrir
þá sem hafa áhuga. /SP
AlgiKnit:
Skófatnaður úr lífrænum
þráðum sjávargróðurs
Þari er ein þeirra ört vaxandi líf
vera á jörðinni sem er aðgengileg
um allan heim. Nú hefur Lamina
Digitata, eða hrossaþari, komið
sterkur til leiks þegar vinnslu
tilraunir hafa verið gerðar með
hönnun niðurbrjótanlegs efnis
sem hægt er meðal annars að nýta
í fatnað eða skótau.
Hrossaþari er brúnþörungur, en
þeir eru stærstir og mest áberandi
af öllum botnþörungum. Hann vex
neðst í fjöru og út í sjó, allt niður
á 20 metra dýpi og getur myndað
þaraskóg neðansjávar – og hefur
áður verið nýttur í ýmsar vörur,
meðal annars í lyfja og snyrti
vöruiðnaði.
Fyrirtækið AlgiKnit er einn af
leiðandi framleiðendum þeirra sem
bera hag umhverfisins fyrir brjósti,
en þeir eru sem stendur að þróa
endingargott efni, girni, eða þráð
öllu heldur, sem brotnar auðveld
lega niður í náttúrunni. Þráðurinn
er gerður úr hrossaþara og hefur
því ekki öfgafull áhrif á umhverf
ið – öfugt við skynditísku (fast
fashion) nútímans sem veldur alls
kyns óheppilegum skaða með fram
leiðslu sinni. Hefur fyrirtækið nú
hannað umhverfisvænan skófatn
að úr þráðum sjávargróðursins
sem kemur skemmtilega á óvart.
Hönnuðirnir benda á að á meðan
fólk slítur strigaskóm almennt út á
tveimur árum, hendir þeim á haug
ana þar sem þeir velkjast um næstu
30–40 árin áður en þeir eyðast að
fullu, þá brotna sjávargróðursskórn
ir niður mun fljótar og á annan hátt.
Skór AlgiKnits eru nefnilega
hannaðir þannig að hægt sé að
brjóta þá niður með aðstoð örvera
og nýta þannig næringarefnin
sem þeir innihalda til góðs – en
hönnuðirnir á bak við verkefnið
lofa að skórnir verði þó ekki étnir
upp á meðan eigendur eru í þeim.
A.m.k. ekki tvö fyrstu árin! /SP
Skór og annað efni sem unnið er úr hrossaþara.