Bændablaðið - 21.10.2021, Blaðsíða 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 2021 23
„Ég er rósabóndi og er sjálf að
framleiða og selja afskornar rósir
á Starrastöðum í Skagafirði.
Við framleiðsluna fellur til ýmis
úrgangur, eins og knúppar, greinar
og laufblöð sem ekki eru söluhæf.
Hugsunin er að reyna að framleiða
ætar afurðir úr þessu en það er
þekkt að hægt er að nýta rósir í
alls kyns matvæli, t.d. rósasykur,
rósasalt, rósasultu, rósasmjör,
rósate og margt fleira.
„Þetta er allt á tilraunastigi
enn þá, við þurfum jú að finna út
hvað það er sem við myndum vilja
framleiða og smakka okkur áfram,
rósasortirnar eru misbragðmiklar,“
segir María Ingiríður Reykdal á
Starrastöðum, en hún fékk nýlega
styrk úr Matvælasjóði upp á tæplega
3 milljónir króna vegna verkefnisins
„Tilraunir og vöruþróun á ætum
rósum“. María segir að til að byrja
með myndi hún prófa að búa eitt-
hvað til heima á Starrastöðum og
smakka en nánari vöruþróun og þá
einhver framleiðsla myndi fara fram
í húsnæði Biopol á Skagaströnd.
„Ég og dætur mínar tvær munum
standa að þessu verkefni. Styrkurinn
tekur til 6 mánaða tilrauna- og vöru-
þróunartíma og eftir það ætti að
fara af stað einhver framleiðsla og
markaðssetning ef vel gengur. Hjá
okkur er einnig hugmynd að koma
upp kaffihúsi með rósasöluhorni við
garðyrkjustöðina og þar yrði vænt-
anlega fyrsta framleiðslan seld,“
bætir María við. /MHH
bustolpi@bustolpi.is • Sími 460 3350 • www.bustolpi.is
Takk fyrir!
Við hjá Bústólpa erum stolt af því að tilheyra
flokki Framúrskarandi fyrirtækja hjá Creditinfo
og það ellefta árið í röð.
Framúrskarandi fyrirtæki þurfa að geta sýnt fram á
heilbrigða og trausta starfsemi ásamt stöðugleika í rekstri.
Eftirsóknarvert er að komast á listann en aðeins um 2%
íslenskra fyrirtækja ná inn á lista yfir Framúrskarandi
fyrirtæki ár hvert.
Viðurkenning þessi er til marks um þá miklu vinnu sem
starfsfólk okkar leggur til á degi hverjum og er okkur
sannarlega hvatning til að gera enn betur um ókomna tíð.
LÍF&STARF
Skagafjörður:
Rósirnar á Starrastöðum
nýttar til manneldis
María með dætrum sínum en saman
ætla mæðgurnar að vinna að því að
nýta rósirnar frá Starrastöðum í ætar
afurðir. Ætu rósaafurðirnar yrðu full-
nýting á þeim rósum sem ekki eru
söluhæfar og myndu annars fara í
ruslið.
Rangárþing eystra:
Fjórum styrkjum
úthlutað
Menningarnefnd Rangárþings
eystra hefur úthlutað fjór-
um menningarstyrkjum vegna
haustúthlutunar nefndarinnar.
Fjöldi umsókna barst til nefndar-
innar og því ljóst að menningarlífið
blómstrar í sveitarfélaginu þrátt fyrir
að tímar hafi verið erfiðir síðustu
misseri vegna Covid. Sex umsóknir
bárust til nefndarinnar að heildar-
upphæð 1.615.000 kr. en 800.000
voru til úthlutunar. Eftirfarandi verk-
efni fengu styrk að þessu sinni:
• Katrínarlind, sögu- og upplýs-
ingaskilti 190.000 kr.
• Vika 861, ljósmyndaverkefni
125.000 kr.
• Jazz undir fjöllum, 250.000 kr.
• Náttúrutónar, 75.000 kr.
• Fiðlufjör, lokatónleikar 150.000
kr. /MHH
Rangárþing ytra:
Sálfræðiþjónusta
óskast bætt
Starfsmenn Grunnskólans á Hellu
hafa sent frá sér eftirfarandi
álykt un vegna sálfræðiþjónustu
í Rangár þingi ytra:
„Starfsmenn telja afar brýnt
að skólar í Rangárþingi hafi bein-
an aðgang að sálfræðingi sem
kæmi reglulega inn í skólana til að
sinna viðtölum við nemendur, m.a.
vegna tilfinninga- og hegðunar-
vanda. Skorað er á stjórn Odda
bs. að fylgja þessu málefni eftir
og leggja sitt af mörkum til að
bæta úr sálfræðiþjónustu við skól-
ana sem tilheyra þjónustusvæði
Skólaþjónustu Rangárvalla- og
Vestur-Skaftafellssýslu.“
Lagt hefur verið til að óska eftir
því við forstöðumann skólaþjón-
ustunnar að hann komi á næsta
reglulega fund Odda til að fara yfir
þessi mál en Oddi er samstarfsvett-
vangur sveitarstjórnarmanna um
skólamál og fleiri mál. /MHH