Bændablaðið - 21.10.2021, Síða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 202124
ÁHUGALEIKHÚS Á ÍSLANDI
√ Leikfélag Hveragerðis er með gamanfarsann Nei, ráð-
herra enda kominn tími á að hlæja almennilega!
Áætlaðar sýningar þennan mánuð eru 22. og 23. október.
√ Leikfélag Keflavíkur býður upp á lifandi tónlist, söng og
dans í sýningunni Fyrsti kossinn sem frumsýnd var 22. október
síðastliðinn. Stefnt er að því að áframhaldandi sýningar verði að
mestu leyti á fimmtu-, föstu- og sunnudögum a.m.k. út nóvember.
√ Leikfélag Kópavogs gleður okkur með uppátækjum Rúa
og Stúa. Sýningar verða allar helgar í október. Upplýsingar um
sýningartíma og annað er viðkemur sýningunni má fá á vef LK,
www.kopleik.is.
Hvað er í gangi ?!
Leikfélag Selfoss var stofnað þann
9. janúar árið 1958 fyrir tilstuðlan
Kvenfélags Selfoss.
Leikfélagið var upphaflega nefnt
Leikfélagið Mímir en nafninu var
fljótlega breytt eftir beiðni þess efnis
frá nemendafélagi Menntaskólans á
Laugarvatni sem bar sama nafn.
Leikfélag Selfoss hefur frá upphafi
verið afar virkt og verið í hópi virkustu
leikfélaga landsins en settar hafa verið
upp 1-2 sýningar nánast hvert einasta
ár frá stofnun. Því ber helst að þakka
gríðarlega dugmiklu og hæfileikaríku
fólki sem starfað hefur í leikfélaginu í
gegnum tíðina og hefur unnið sitt starf
eingöngu af leiklistaráhuga.
Síðan 1988 hefur leikfélagið haft
til fullra afnota gamla iðnskólahúsið
á Selfossi sem nú er kallað Litla leik-
húsið við Sigtún – en þar er iðulega
glatt á hjalla.
Undanfarnar vikur hefur staðið yfir
uppsetning og æfingar á gamanleik-
ritinu Beint í æð eftir Ray Cooney í
þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar
heitins. Verkið er hvorki meira né
minna en bráðfyndið og drephlægi-
legt, eða „Bráðdrepandi og hlægilega
fyndið“ eins og leikstjórinn, Gunnar
Björn Guðmundsson, mismælti sig svo
skemmtilega á einni æfingunni.
Á sviðinu verða bæði þrautreyndir
og glænýir leikfélagar, og úrvalsfólk
á bak við tjöldin. Ellefu leikarar eru á
sviði en í heildina koma um 40 manns
að uppsetningunni í ár.
„Við vildum endilega hefja leik-
árið með hlátri og gleði, það veitir
ekki af eftir síðustu misseri,“ segir
Guðný Lára Gunnarsdóttir, formað-
ur leikfélagsins. Frumsýning er þann
29. október en samkvæmt formanni
eru aðrar sýningar flesta þriðjudaga
kl. 18, fimmtudaga og föstudaga kl.
20 og sunnudaga kl. 18. Einhverjar
sýningar geta forfallast en áætlað
sýningarhald er út nóvember með
möguleika á áframhaldi eftir áramót
ef landið liggur þannig. /SP
Beint í æð:
Leikfélag Selfoss
Leikfélag Fljótsdalshéraðs:
Tom, Dick & Harry
Leikfélag Fljótsdalshéraðs var
stofnað á Egilsstöðum 31. ágúst
1966 og samkvæmt dagblað-
inu Austra var gamanleikurinn
Kjarnorka og kvenhylli frum-
sýndur í Valaskjálfi 27. maí
ári seinna. Til gamans bauð
leikfélagið frambjóðendum í
Austurlandskjördæmi á sýn-
inguna og skemmtu frambjóð-
endur sér hið besta.
Í lok ársins 1967 er svo auglýst að
leikfélagið sé að æfa verkið Valtý
á grænni treyju sem spunnið er í
kringum sannsögulega atburði sem
áttu sér stað á Egilsstöðum á 17.
öld. Það var svo frumsýnt í jan-
úarmánuði næsta árs og var það í
annað skiptið sem leikritið var sett
á fjalirnar. Frumflutningur þess var
árið 1953 í Þjóðleikhúsinu, en vegna
þess hve viðamikið það var í upp-
setningu var nær ógerningur að sýna
það nema á hringsviði.
Leikfélag Fljótsdalshéraðs var
svo lánsamt að fá til liðs við sig
leikara sem hafði staðið á sviði
Þjóðleikhússins er verkið var upp-
sett þar og tók hann að sér bæði
leikstjórn og aðalhlutverk, vann að
breytingum í samráði við höfund-
inn og fékk leikmyndum og atriðum
fækkað þó nokkuð. Sýningin tókst
því með prýði, hringsviðslaust þar
sem allir gerðu sitt besta.
Leikfélag Fljótsdalshéraðs, sem
nú telur 55 aldursár, er enn í fullu
fjöri og stefnir á frumsýningu þann
23. október, en á fjalirnar fer verkið
Tom, Dick og Harry eftir Ray og
Michael Cooney, sem er vandræða-
farsi af bestu gerð.
Höfundarnir eru vel þekktir og
hafa meðal annars samið verkin
„Með vífið í lúkunum“, „Úti að aka“
og „Nei, ráðherra“ en þau hafa verið
sett upp víða um heim síðastliðna
áratugi.
Sýningin Tom, Dick og Harry
fjallar um hjónin Tom og Lindu
sem eiga von á manneskju frá ætt-
leiðingastofnun sem ætlar að líta á
heimili þeirra, en bræðrum Toms, þó
velviljaðir séu að eðlisfari, tekst að
setja allt á annan endann og klúðra
fyrir þeim málum.
Þetta er grínverk af bestu gerð
sem mun heldur betur kitla hlátur-
taugarnar enda þarna á ferð leik-
endur af bestu gerð, alls níu talsins
í þessu verki. Að uppsetningu koma
þó um 25–30 manns, enda nóg um
að vera í leikhúslífinu.
Frumsýning er 23. október og
stefnt er á 8 sýningar í framhaldinu.
/SP
Ármann Guðmundsson leikstjóri (með derhúfu) ásamt Hafsteini Mána Hall-
grímssyni fylgjast með af athygli.
Þau Hrefna Hlín Sigurðardóttir í hlutverki Katarinu, Trausti Dagbjartsson í
hlutverki Harry, Víðir Már Pétursson í hlutverki Tom og Egill Sveinbjörnsson
í hlutverki Dick, kitla hláturtaugar áhorfenda.
Þau Víðir Már Pétursson í hlutverki Toms og Jóhanna Helga Jóhannsdóttir í hlutverki ættleiðingarfulltrúans.
Hljóðmaðurinn Jón Gunnar Jóhannsson er öllum hnútum kunnugur og einn
mikilvægasti liður sýningarinnar.
Dagbjört Frímann í hlutverki Díönu, Runólfur Óli Daðason í hlutverki Grettis
og Loftur lögga, leikinn af Davíð Helgasyni.
Stutt var í hláturinn á æfingum en þó reyndi fólk að hemja sig. Þarna eru
þau Runólfur Óli Daðason sem Grettir, Jórunn (í stólnum), Guðný Lára
Gunnarsdóttir og Stefán Örn Viðarsson í hlutverki Jóns Borgar. Í bakgrunni er
Súsanna, eða Jónheiður Ísleifsdóttir.
Frá vinstri er Grettir, eða Runólfur Óli Daðason, Jón Borgar leikinn af Stefáni
Erni Viðarssyni, Dagbjört Kristmann í hlutverki Díönu, Frímann, leikinn af
Rebekku Lind Jónsdóttur og Gróa, eða Íris Blandon.