Bændablaðið - 21.10.2021, Page 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 2021 25
MÓ ÐIR JÖRÐ - LÍFRÆN RÆK TUN Í VALL ANESI
HRÖKKVI
brakandi hrökkbrauð
úr íslensku korni.
Sýningar eru hafnar á fyrsta
leikna barnaefninu fyrir sjónvarp,
sem framleitt er af fagfólki búsettu
á landsbyggðinni.
Um er að ræða 12-þátta seríu sem
fengið hefur nafnið Himinlifandi, en
þættirnir eru sýndir á sjónvarpsstöð-
inni N4 annan hvern sunnudag og
hafa fyrstu tveir þegar farið í loftið.
Þættirnir eru unnir í samstarfi við
Þjóðkirkjuna-Biskupsstofu.
„Það er spilað á allar tilfinningar
í þáttunum, bæði gleði og grátur.
Umfjöllunarefnið er byggt á gildum
kristinnar trúar og þessum mann-
legu spurningum sem við erum öll
að velta fyrir okkur, eins og t.d. hvort
við eigum alltaf að segja satt, hvað
okkur finnst, hvernig við getum tek-
ist á við óöryggi og fleira,“ segir
Stefán Friðrik Friðriksson, fram-
leiðslu- og markaðsstjóri á N4.
Prestshjón aðalleikararnir
Það eru hjónin Margrét Sverrisdóttir
og Oddur Bjarni Þorkelsson, prests-
hjón á Möðruvöllum, sem fara með
aðalhlutverkin í þáttunum en þau
sjá einnig um handritsgerðina. Þá
skapaði leikmyndahönnuðurinn Eva
Björg Harðardóttir hina ævintýra-
legu leikmynd sem prýðir þættina en
þættirnir voru teknir upp í Hlöðunni
við Litla Garð á Akureyri.
Stórar spurningar en líka sprell
Aðalpersónur Himinlifandi eru þau
Edda og Abbi sem lifa skrautlegu lífi í
koti sínu. Með aðstoð Ráðavélarinnar
takast þau á við stóru spurningarnar í
lífinu en alltaf er þó stutt í fíflagang
og sprell. „Það er ekki framleitt mikið
af leiknu íslensku barnaefni hér á
landi svo þetta eru töluverð tíðindi.
Þetta er eitt af stærstu verkefnunum
sem við á N4 höfum tekið að okkur
og erum við mjög ánægð með sam-
starfið við Þjóðkirkjuna og vonum að
áhorfendur verði himinlifandi með
útkomuna,“ segir Stefán Friðrik.
„Ég lá undir feldi í fósturstell-
ingu og reyndi af alefli að detta
niður á bestu hugmynd í heimi,“
segir Margrét Sverrisdóttir leikari
sem skrifaði handritið ásamt eigin-
manninum Oddi Bjarna. Margrét
hafði umsjón með Stundinni okkar
í tvo vetur og segist alveg óvart hafa
byrjað að skrifa handrit, m.a. barna-
efni. „Það gerist stundum í lífinu að
maður fer að gera eitthvað annað en
til stóð,“ segir hún en kveðst hafa
gaman af.
Kom á besta tíma
Þegar fulltrúar Biskupsstofu báðu
þau hjón á Möðruvöllum um að
skrifa barnaefni fyrir sjónvarp kom
það tilboð á besta tíma, í miðjum
kórónuveirufaraldri þegar ekkert var
að gerast í leikhúsum.
„Þessi tími hentaði mér mjög
vel, því ég var ekkert að gera,“
segir hún og bætir við að hún hefði
haft algjörlega frjálsar hendur með
efnisval. Þó kirkjunnar fólk hafi
óskað eftir barnaefninu hafi fyrst og
fremst verið lagt upp með að mæta
þeim spurningum og klemmum sem
börnin standa frammi fyrir, frekar
en endursögn á biblíusögum.
/MÞÞ
Fyrsta leikna barnaefnið sem framleitt er á landsbyggðinni:
Spilað á bæði gleði og grátur
LÍF&STARF
Hjónin Edda og Abbi búa í skrautlegu koti sínu. Þau eiga þar til gerða ráða
vél sem kemur sér vel að hafa heima við, því mikið er um að börn leiti ráða
hjá þeim við ýmsum stórum spurningum.
Myndir / Sindri Swan
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
SÍUR Í
DRÁTTARVÉLAR
á bbl.is og líka á Facebook