Bændablaðið - 21.10.2021, Síða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 21. október 202128
„Það er ævintýri líkast að fylgjast
með þessum skógarhöggsmönn-
um, þeir eru fagmenn fram í
fingurgóma.
Harðduglegir og vinna mjög
skipulega við þetta verkefni, auk
þess að gæta sérlega vel að öllum
öryggismálum og þá fá þeir hrós fyrir
hversu vel þeir ganga um skógar-
afurðina,“ segir Ingólfur Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Skógræktarfélags
Eyjafjarðar, eiganda Vaðlaskógar
handan Akureyrar.
Þar hefur mikið gengið á undan-
farnar vikur, en unnið er að gerð
göngu- og hjólastígs sem í fyll-
ingu tímans mun ná frá Leirubrú
við Akureyri og að norðurmörkum
Svalbarðsstrandarhrepps, en hrepp-
urinn er framkvæmdaaðili verks-
ins.Fyrsti áfangi stígsins liggur frá
Vaðlareit og að Vaðla-heiðargöngum.
Töluvert þurfti að fella af trjám í reitn-
um áður en hægt verður að hefjast
handa við önnur verkefni. Ingólfur
segir að hugmyndin hafi í fyrstu verið
sú að starfsmenn Skógræktarfélagsins
myndu vinna verkið á komandi vetri,
en fljótlega fallið frá henni. Setti hann
sig þá í samband við Jón Heiðar
Rúnarsson hjá Skógarmönnum, sem
tók boltann á lofti og hóaði í það sem
kallað hefur verið landslið Íslands í
skógarhöggi, sem er hópur reyndustu
skógarhöggsmanna landsins. Þeir
brugðust vel við og mættu 11 þegar
mest var og tóku þátt í að fella trén.
130 tonn af timbri
Ingólfur segir að verkið hafi geng-
ið vel og verið á undan áætlun.Fyrri
vikuna sem skógargengið var að
störfum var leiðin rudd og þá seinni
var unnið við að snyrta og lagfæra út
fyrir stígasvæðið. „Nú tekur við hjá
okkur að keyra út trjáboli og greinar
og það er ærið verkefni, en við njót-
um við það verk liðsinnis verktaka,
bæði Nesbræðra, sem buðu lægst
í stígagerðina og munu senn hefj-
ast handa og einnig er Finnur ehf.
að vinna með okkur í útkeyrslu
efnis,“ segir Ingólfur. Lagnir fyrir
bæði heitt og kalt vatn verða lagð-
ar undir stíginn. Vatnið kemur frá
Vaðlaheiðargöngum og verður nýtt
í Skógarböðum sem verið er að
reisa og einnig verður það leitt til
Akureyrar. Stígurinn um Vaðlareit er
tæpir tveir kílómetrar að lengd. Um
130 tonn af timbri féll til við grisj-
un og verður allt efni notað. Borð
og bekkir verða smíðuð á þremur
áningarstöðum sem verða á leiðinni
og timbrið úr skóginum nýtt til þess.
Fjölbreyttur skógur
Skógræktarfélag Eyfirðinga fékk
landið til umráða árið 1936 og
var svæðið þá skóglaust með öllu.
Gróðursetning hófst sama ár og
var að fullu lokið við að planta í
Vaðlareitinn árið 1970. Elstu trén
sem féllu nú voru því 85 ára gömul.
Landið er fjölbreytt, þarna eru
mýrar, móar og melar, og einnig
klappir hér og hvar. Skógurinn er
sömuleiðis fjölbreyttur og má finna
þar fágætar tegundir, en ýmsar til-
raunir voru gerðar á fyrstu árum í
starfsemi félagsins með margvís-
legar trjáplöntur. Sumar voru líka
settar niður til skrauts. Í Vaðlareit
má finna síberíuþin, garðahlyn,
hvítþin og álm, einnig ask, lindi-
furu og bergfuru, fjallaþin og
ýmsar víðitegundir.
/MÞÞ
LÍF&STARF
Þessir eru í landsliðinu í skógarhöggi. Þeir hafa verið að störfum í Vaðlareit síðustu daga en um hann á að leggja göngu- og hjólastíg. Undir stígnum verða leiðslur sem flytja heitt og kalt vatn
úr Vaðlaheiðargöngum í Skógarböðin og til Akureyrar. Frá vinstri til hægri: Travis Anthony, Þrymur Heafield, Sigurður Ormur Aðalsteinsson, Jón Heiðar Rúnarsson, Hákon Aðalsteins, Jakob
Wayne Víkingur Robertson, Lucas Deroches, Johan Holst og Eiður Örn Elvarsson. Mynd / Jón Heiðar Rúnarsson
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Landsliðið í skógarhöggi var að störfum í Vaðlareit:
Ævintýri líkast að fylgjast með skógarhöggs-
mönnunum að störfum
– Trén, þau elstu 85 ára, víkja fyrir göngu- og hjólastíg
Einn þeirra skógarhöggsmanna sem tók þátt í grisjun Vaðlareitar er Hákon
Aðalsteinsson sem hér er að störfum. Mynd / Jón Heiðar Rúnarsson.
Vandað er til verka og óhætt að segja að í þessu verkefni hafi verið valinn
maður í hverju rúmi. Hér eru félagarnir Eiður Örn Elvarsson og Hákon Að-
alsteins önnum kafnir við skógarhöggið. Mynd / Jón Heiðar Rúnarsson.
Björg Erlingsdóttir, sveitarstjóri í Sval-
barðsstrandarhreppi, brá sér í Vaðlareit
að fylgjast með skógarhögginu. Hún
stóðst ekki mátið og prófaði helsta
verkfæri skógarhöggsmannsins,
keðjusögina. Mynd / Ingólfur Jóhannsson